Fréttablaðið - 30.07.2003, Síða 13
■ Ameríka
MIÐVIKUDAGUR 30. júlí 2003
Hva› segja stjörnurnar um flig og flína í dag? Ná›u flér í valmyndina
Stjörnuspeki á vit.is í GSM símann flinn e›a sendu SMS: VIT STAR 1 í 1848
og fá›u persónulega stjörnuspá, ítarlegt stjörnukort og kanna›u hver er
rétta ástin fyrir flig. Skrá›u flig núna og láttu stjörnunar vísa flér veginn. Léttkaupsútborgun 1.980 kr.1.000 kr. á mán. í 12 mán.
13.980,-
Sony Ericsson
T310
SPÁÐU Í STJÖRNURNAR
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum GSM.
Jarðskjálfti í Öxarfirði:
Algengt
skjálftasvæði
JARÐSKJÁLFTI „Það varð skjálfti
vestarlega í Öxarfirði í um 20
km fjarlægð frá Kópaskeri,“
segir Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur. Skjálftinn
reið yfir snemma á þriðjudags-
morgun.
„Stærðin á skjálftanum var
um 3,4 en það er vanalegt að
jarðskjálftar séu á þessu svæði,
síðasti skjálfti varð fyrir um
tveimur árum.“ Ragnar segist
ekki búast við að þetta sé undan-
fari einhvers stærra. „Við mun-
um fylgjast vel með í framhald-
inu.“ ■
SEX BRUNNU INNI Tvær konur
og fjögur börn þeirra á aldrinum
fjögurra til tólf ára, brunnu inni
þegar íbúðarhús í San Bernard-
ino í Kaliforníu brann til kaldra
kola. Faðir og tvær dætur hans
sluppu naumlega úr brennandi
húsinu. Talið er að kviknað hafi í
húsinu út frá logandi sígarettu.
HIV TILFELLUM FJÖLGAR Alnæm-
istilfellum í Bandaríkjunum
fjölgaði um 2,2% í fyrra og er
þetta í fyrsta sinn frá árinu 1993
sem tilfellum fjölgar. Það er helst
á meðal samkynhneigðra manna
sem aukningar verður vart. Heil-
brigðisyfirvöld telja að aukning-
una megi að einhverju leyti skýra
með framförum í læknisfræði.
Almenningur sé ekki eins hrædd-
ur við sjúkdómin og áður og telji
að hægt sé að lækna alnæmi, líkt
og aðra sjúkdóma.
EINHLEYPAR KONUR Í NEW YORK
Meirihluti kvenna í New York er
einhleypur. Kannanir sýna að
300.000 konur á aldrinum 35 til
44 ára er í hjónabandi en 400.000
konur á sama aldri eru einhleyp-
ar. Fráskildar konur í New York
eru þrefalt fleiri en fráskildir
karlmenn. Einhleypar konur í
New York eru tíu sinnum líklegri
en þær giftu til að leigja íbúð í
stað þess að kaupa. Og líkurnar á
því að einhleypar konur hafi
meira en 100.000 Bandaríkjadali í
laun á ári eru þrefalt minni en
hjá giftum konum.
■ Innlent
NÁTTÚRUPERLUR SKOÐAÐAR Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
er þessa dagana að skoða þau
svæði á Vestfjörðum sem eru í
drögum að náttúruverndaráætlun,
en áætlunin verður lögð fyrir Al-
þingi í haust. Í drögunum eru alls
77 svæði á landinu og hefur ráð-
herra skoðað drjúgan hluta þeirra
fyrr í sumar. Í drögunum eru þrjú
svæði á Vestfjörðum þ.e. Látra-
bjarg - Rauðasandur (þjóðgarður),
Snæfjallaströnd - Æðey - Dranga-
jökull - Drangar - Furufjörður og
Ingólfsfjörður - Reykjarfjörður.