Fréttablaðið - 30.07.2003, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
Ég get gubbað
ferskt íslenskt grænmeti sérmerkt þér!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
5
1
1
Það eru fimm og hálft ár frá þvíég reykti síðast. Það er reyndar
líka hægt að segja að ég hafi þyngst
um skrambi mörg kíló frá því ég
hætti að reykja. En nóg um það.
Áður en mér tókst að hætta hafði ég
gert nokkrar tilraunir. Sumar dugðu
ekkert, aðrar um tíma. Ég var mikill
reykingamaður, byrjaði ungur og
reykti mikið. Vaknaði á nóttum til að
reykja og suma morgna var ég ekki
viss hvort ég ætti fyrst að reykja
eða pissa. Stundum gerði ég hvort
tveggja í senn.
NÁLARSTUNGUR eru meðal þess
sem ég reyndi. Hafði enga trú á
meðferðinni. Var ákveðinn í að um
leið og nálarnar höfðu verið dregnar
úr mér myndi ég kveikja mér í sí-
garettu. Var með opinn Prinspakk-
ann í hægri jakkavasanum einsog ég
hafði haft í áratugi. Og annan óupp-
tekinn í vinstri vasanum. Vildi alltaf
vera viss um að eiga nógu margar sí-
garettur. En viti menn, mig langaði
ekki í sígarettu og þannig var það í
eitt ár. Engin löngun í 365 daga. Kol-
féll eftir árið.
REYKTI MEIRA en áður og fannst
það flott, allavega töff. Svo sagði ég
allavega en auðvitað vissi ég betur.
Vissi af fylgikvillum, hættu á alvar-
legum veikindum og kostnaðinum.
Reiknaði áðan að til að kosta reyk-
ingarnar þyrfti ég að auka tekjurnar
um 700 þúsund á ári. 700 þúsund á
ári. Nei takk. Vona að ég byrji aldrei
aftur.
EKKI FER allt eins og ætlað er.
Misheppnaðasta tilraun mín til að
hætta reykja var dáleiðslufundur í
Gamla bíói. Við sátum þar tugir
reykingamanna og hlustuðum á dá-
vald. Hann fékk mig til að sitja í
dróma og hugsa um fullan ösku-
bakka. Ég sá ekki óþverrann og við-
bjóðinn einsog hann vildi. Mig lang-
aði að taka einhvern stubbinn upp og
kveikja í. Dávaldurinn vildi að við
fengjum svo mikla óbeit á reyking-
um að við þyrftum að kasta upp. Ég
náði því - bara því. Meðan ég gekk út
úr Gamla bíó kveikti ég mér í sígar-
ettu og hélt áfram að reykja í langan
tíma. Það sem ég lærði hjá dávaldin-
um - að búa til flökurleika gleymist
ekki. Hef svo sem ekki framkvæmt
það en held að ég geti gubbað á met-
tíma. Ætti kannski að beita þeirri að-
ferð næst þegar ég held áfram að
borða - en er fyrir löngu orðinn
pakksaddur. Kannski. ■