Fréttablaðið - 21.09.2003, Síða 10
Ég er ekki oft með steik á sunnu-dögum því Rúnar maðurinn
minn er oftast að leika þá. Í staðinn
fer ég í mat til foreldra minna og
þau eru alltaf með fínan mat á
sunnudögum,“ segir söngkonan
Selma Björnsdóttir. „Þetta er eigin-
lega í eina skiptið í vikunni sem ég
fæ mér almennilegt kjöt og það er
skemmtileg tilbreyting.“
Foreldrar Selmu eru bæði virk í
eldamennskunni: „Mamma býr
alltaf til ferskt og gott salat og
pabbi sér um kjötið og sósuna. Svo
er pabbi alltaf með nýjar útgáfur af
kartöflum, ýmist bakaðar eða brún-
aðar, kryddaðar eða skornar í skíf-
ur. Hann hefur sérstaklega gaman
af því að gera tilraunir með kjöt-
rétti.“
Rúnar Freyr leikur ekki á sumr-
in og þá gefst tækifæri fyrir Selmu
að snæða með honum á sunnudags-
kvöldum: „Á sumrin reynum við
alltaf að taka upp á einhverju snið-
ugu. Við ýmist grillum eða förum í
mat til tengdó. Tengdó er með
klassískan íslenskan sunnudags-
rétt: lambakjöt og brúnaðar kart-
öflur, æðislega sveppasósu, rauðkál
og baunir og ég hlakka alltaf til að
komast til þeirra.“
Selma segist ekki hafa mikla
reynslu af að elda stórsteikur: „Ég
er meira í kjúklingaréttunum, fiski
og öðru léttmeti. Skelfiskur er það
besta sem ég fæ. Ég elda þó sjaldan
á virkum dögum af því að við vinn-
um þannig vinnu. Rúnar er dug-
legri að elda en ég og það reyndi í
fyrsta skipti á hátíðarmatseldina
hjá okkur síðastliðið gamlárskvöld.
Rúnar sá um matinn og hann reiddi
fram humar í forrétt og nautalund-
ir í aðalrétt. Hann var kófsveittur
við þessa frumraun og ég man að
hann stóð ber að ofan við eldavél-
ina.“
Selma útilokar ekki að hún
muni öðlast meiri reynslu af því
að elda kjöt í framtíðinni: „Það
er eiginlega skömm frá því að
segja að ég hef aldrei eldað
lambalæri eða hrygg. Líklega
mun ég læra þetta í framtíðinni
því það er alveg greypt í mig úr
uppeldinu að fá góðan mat á
sunnudögum.“ ■
10 21. september 2003 SUNNUDAGUR
■ Andlát
Þennan dag árið 1792, rúm-lega þremur árum eftir að
byltingin var gerð í Frakklandi,
var einveldisfyrirkomulag
formlega afnumið þar í landi og
fyrsta lýðveldið stofnað. Sama
dag var lýðveldisdagatalið tekið
í notkun og Louvre-höllinni
breytt í safn.
Það var löggjafarþing lands-
ins sem samþykkti að afnema
einveldisfyrirkomulagið, ári eft-
ir að Loðvík XVI hafði sam-
þykkt, treglega þó, nýja stjórn-
arskrá þar sem völd hans voru í
raun að mestu afnumin.
Loðvík og drottning hans,
Marie Antoinette, höfðu verið
færð í fangelsi nokkrum vikum
áður en lýðveldið var formlega
afnumið. Stuttu síðar komu í ljós
sannanir þess að konungurinn
hefði róið að því öllum árum
með erlendum ríkjum að grafa
undan byltingunni, og var hann
því færður fyrir dómstól ákærð-
ur fyrir landráð.
Í janúar árið 1793 var Loðvík
síðan dæmdur til dauða og var
hann tekinn af lífi með fallöxi
þann 21. janúar. Drottningin var
tekin af lífi með sama hætti níu
mánuðum síðar. ■
Atli Heimir Sveinsson tónskáld er 65
ára.
Helga Kress prófessor er 64 ára.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræð-
ingur er 46 ára.
Helgi Hóseasson er ekkertvenjulegt gamalmenni og
við gerð myndarinnar áttuðum
við okkur á að hann hefur rétt
fyrir sér í einu og öllu,“ segir
Böðvar Bjarki Pétursson, sem
er framleiðandi nýrrar heimild-
armyndar um Helga sem frum-
sýnd verður í lok mánaðarins.
Leikstjórar myndarinnar eru
Jón Karl Helgason og Þóra
Fjeldsted.
Böðvar segir að þegar byrjað
hafi verið að vinna að myndinni
hafi menn ekki alveg vitað hvað
væri fram undan en þessi mynd
hafi farið af stað með miklum
krafti. „Við fylgdum eftir mót-
mælandanum Helga, sem fræg-
ur er fyrir að sletta skyri á Al-
þingishúsið, tjöru á Stjórnar-
ráðið og sakaður um að hafa
kveikt í kirkjunni sem hann var
skírður í. Áratugum saman hef-
ur Helgi mótmælt og ef menn
aka Langholtsveginn í dag má
sjá Helga standa þar með mót-
mælaskilti gegn stríðinu í Írak
Böðvar segir að þeir hafi
komist býsna nærri manninum
Helga sem fyrst og fremst sé
baráttumaður sem standi með
skiltið uppréttur með þaninn
brjóstkassann og ekkert hríni á.
„Mín niðurstaða er hrein og
klár, Helgi hefur rétt fyrir sér;
rétturinn er algjörlega hans
meginn. Ríkisvaldið hefur beitt
öllum ráðum til að brjóta aftur
kröfur hans og sagt að þær séu
fyrir utan lög og landstétt en
staðreyndin er að hann er ævin-
lega að glíma við mannanna
verk og reglur sem mennirnir
hafa sett,“ segir Böðvar og bæt-
ir við að afskaplega gott hafi
verið að vinna með Helga.
Hann segir að í myndinni sé
sögð sterk innri saga hans þar
sem við fylgjumst með Helga á
heimili hans. Á meðan tökum
stóð lést kona Helga og Böðvar
segir það mynda mjög sterkan
dramatískan hápunkt í mynd-
inni. „Við kynntumst ákaflega
hreinlyndum og ástúðlegum
manni sem hugsar um sína konu
af gríðarlegri natni en er um
leið afskaplega harður af sér í
baráttu sinni fyrir málstaðn-
um,“ segir Böðvar og bendir á
að Helgi sé alls ekki skemmdar-
verkamaður, hann sé útpældur í
baráttu sinni fyrir réttlætinu
enda séu öll efnin sem hann not-
ar lífræn. ■
Kvikmyndir
HELGI HÓSEASSON ■
er mörgum kunnur fyrir mótmæli sín.
Hann sletti skyri á alþingismenn og skvetti
tjöru á Stjórnarráðið í baráttu sinni fyrir
þeim sjálfsögðu mannréttindum í hans
huga að vera skráður úr kirkjubókum. Um
hann hefur verið gerð heimildarmynd
sem sýnd verður síðar í þessum mánuði.
STEPHEN KING
Bandaríski spennusagnahöfundurinn
Stephen King verður 56 ára í dag. Hann er
fæddur árið 1947.
21. september
■ Þetta gerðist
1866 fæddist rithöfundurinn H.G.
Wells, einn helsti frumkvöðull
vísindaskáldskapar.
1897 birti bandaríska dagblaðið The
New York Sun frægan leiðara
þar sem svarað var spurningu frá
átta ára stúlku, Virginia O’Hanlon
að nafni: Er jólasveinninn til?
1934 fæddist söngvaskáldið Leonard
Cohen.
1937 kom bókin The Hobbit eftir J.R.R.
Tolkien fyrst út.
1949 kynnti kínverski byltingarforing-
inn Mao Zedong ríkisstjórn nýja
flokksræðisins í Kína.
1954 var bíómyndin Sabrina með
Audrey Hepburn og Humphrey
Bogart frumsýnd.
1972 fæddist rokkarinn Liam Gall-
agher í Oasis.
Einveldi afnumið
LOÐVÍK XVI
■ Franska þingið afnam endanlega öll
völd hans þennan dag árið 1792.
21. september
1792
Helgi er ekkert
venjulegt gamalmenni
Sunnudagssteikin
SELMA BJÖRNSDÓTTIR
■ Segir að það hafi í fyrsta skipti reynt á
hátíðareldamennsku síðastliðið gamlárs-
kvöld en þá stóð eiginmaðurinn, Rúnar
Freyr, kófsveittur og ber að ofan við elda-
vélina.
Hefur aldrei eldað lambalæri
LEONARD COHEN
Söngvarinn djúpraddaði Leonard Cohen
fagnar 69 ára afmæli sínu í dag. Hann er
enn við hestaheilsu og gefur reglulega út
plötur.
Þórir Laxdal Sigurðsson, fyrrverandi
námsstjóri og teiknikennari, lést á
Landspítala Landakoti að morgni
fimmtudagsins 18. september.
Ingi Ragnar B. Björnsson, Miðleiti 5,
Reykjavík, lést á hjúkrunarheimil-
inu Skjóli aðfaranótt föstudagsins
19. september.
Guðrún Magnúsdóttir, frá Berunesi í
Reyðarfirði, lést á hjúkrunarheim-
ilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði,
föstudaginn 19. september.
BÖÐVAR BJARKI PÉTURSSON
Hann segir það hafa komið í ljós að
Helgi hafi algjörlega rétt fyrir sér. Hann
hafi öll þessi ár verið að glíma við mann-
anna verk.
SELMA BJÖRNSDÓTTIR
Er mest í að elda kjúklingarétti, fisk og annað léttmeti en skelfiskur er það besta sem
hún fær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
LIAM GALLAGHER
Yngri Oasis-bróðirinn og vandræðageml-
ingurinn Liam Gallagher fagnar 31 árs af-
mæli sínu í dag. Hann hefur blessunarlega
náð að halda sig frá slúðurdálkum heims-
pressunnar núna um langt skeið.
■ Afmæli
Húbert Nói listmálari er 42 ára