Fréttablaðið - 21.09.2003, Page 11
11SUNNUDAGUR 21. september 2003
■ Persónan
Út er komin ljóðabókin„Einnota vegur“ eftir Þóru
Jónsdóttir. Bókin inniheldur 45
ljóð eftir skáldkonuna. Allt útlit
og umbrot er mjög einfalt. Útgef-
andi er Mýrasel og fæst hún í öll-
um helstu bókaverslunum. ■ www.isb.is
Útibú Eignast‡ring Eignafjármögnun Fyrirtækjasvi› Alfljó›asvi› Marka›svi›skipti
Hvernig stendur flitt húsfélag?
fiú fær› nánari uppl‡singar í næsta útibúi Íslandsbanka e›a
hjá fljónustuverinu í síma 440 4000.
Byrja›
u
strax
a›
safna
í
sjó›!
Styttist í a› gera flurfi vi› flaki›, gluggana, stéttina e›a
mála húsi›? Ef svo er flá borgar sig a› byrja strax a›
safna í framkvæmdasjó›. Auk fless bjó›ast húsfélögum
hagkvæm framkvæmdalán hjá Íslandsbanka.
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
8
7
4
framkvæmdir á döfinni?
Eru
BJÖRN INGI SVEINSSON
BORGARVERKFRÆÐINGUR
Hann hefur lagt til að börn og ungmenni
fái frítt í strætó á mesta annatíma.
??? Hver?
Verkfræðingur, núverandi borgarverk-
fræðingur.
??? Hvar?
Á skrifstofu minni í Skúlatúni.
??? Hvaðan?
Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík.
??? Hvað?
Hugsunin er að liðka fyrir samgöngu-
málum Reykjavíkurborgar.
??? Hvernig?
Með því að skoða leiðir að tengslum við
Strætó og til tals hefur komið að bjóða
börnum og ungmennum frítt í strætó á
háannatíma.
.
??? Hvers vegna?
Umferð hefur aukist, umferðarmannvirki
eru dýr og nýjar leiðir ákjósanlegar.
??? Hvenær?
Það væri ákjósanlegt að skoða það í
tengslum við nýtt leiðakerfi Strætó á
næsta ári.
Ég ætla að vera heima og taka ámóti börnum mínum og fjöl-
skyldum þeirra,“ segir Jón Birgir
Pétursson blaðamaður, sem í dag
er sextíu og fimm ára.
Jón Birgir hefur í sumar setið
við bókarskrif norður í landi og
segir að ef einhver vilji gefa út
eftir sig verði hann með í jóla-
bókaflóðinu í haust. „Ég byrjaði
seint, um það leyti sem aðrir voru
að ljúka, og því hefur þetta verið
mikil törn hjá mér. Við hjónin eig-
um hús í Hrútafirði og þar sat ég í
fimmtíu daga og fimmtíu nætur
einn við skriftir. Það er síðan les-
enda að segja til um hvernig til
hefur tekist,“ segir hann og upp-
lýsir að um sakamálasögu sé að
ræða. Hann er enginn nýgræðing-
ur á því sviði því fyrir mörgum
árum komu út eftir hann sögur í
þeim dúr og voru þær með fyrstu
glæpasögum sem komu út eftir ís-
lenskan höfund hérlendis.
Jón Birgir er einn okkar reynd-
ustu blaðamanna. Hann lét af störf-
um hjá Dagblaðinu í sumar og neit-
ar að það hafi verið erfitt. „Þvert á
móti er ég ósköp feginn að vera
laus. Ég var orðinn leiður á blaða-
mennskunni og tími til kominn að
ég hætti. Nú held ég mig við að
skrifa bækur ef einhver nennir að
lesa þær,“ segir hann hlæjandi og
bætir við að sér hafi þótt ósköp
gaman að endurnýja kynni sín af
sakamálasögunum.
Jón Birgir segist ekki finna fyr-
ir aldri þrátt fyrir að stutt sé í að
hann verði alvöru gamalmenni. „Ég
hlakka til þeirra ára, held að það sé
gaman að vera gamall og nú leggst
maður bara í ferðalög og nýtur lífs-
ins,“ segir Jón Birgir, sem ætlar að
bjóða börnum sínum upp á kaffi og
gúllassúpu í tilefni dagsins. ■
Afmæli
JÓN BIRGIR PÉTURSSON
■ Hann hefur setið við bókarskrif í
sumar og lítið séð af fjölskyldunni. Þess
í stað fá glæpasöguunnendur eitthvað
við sitt hæfi.
Kaffi og gúllassúpa
JÓN BIRGIR PÉTURSSON
Hann er afar sáttur við að verða brátt al-
vöru gamalmenni og hlakkar til að geta
lagst í ferðalög.
■ Nýjar bækur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A