Fréttablaðið - 21.09.2003, Qupperneq 12
12 21. september 2003 SUNNUDAGUR
Fjármálaráð-
herrar funda
Fjármálaráðherrar sjö helstuiðnríkja heims lýstu því yfir að
loknum fundi í Dubai í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum að
efnahagsástandið í heiminum
færi senn að batna. Þeir ítrekuðu
þó mikilvægi þess að samninga-
viðræður yrðu teknar upp að nýju
um viðskipti á milli ríkra og fá-
tækra landa.
■ viðskipti
Viðskipti voru stöðvuð áfimmtudagsmorgun með um
40% félaga í úrvalsvísitölu Kaup-
hallar Íslands. Viðskipti með
þessi félög lágu niðri allan þann
dag. Tilkynning um valréttar-
samninga og framvirka samninga
barst morgunin eftir þar sem
eignarhald stórra félaga breyttist
verulega.
Krónan veiktist um 0,13% í vik-unni. Fremur litlar sveiflur
voru í viðskiptum með hana í vik-
unni. Ró virðist yfir gjaldeyris-
markaði í bili.
Úrvalsvísitala aðallista Kaup-hallar Íslands hækkaði um
1,36% í vikunni. Gildi hennar í
lok vikunnar var 1.825,49 stig.
Vísitalan er nú ekki langt frá
fyrra meti sínu, sem var 1.888,80
stig.
Fjárfestingarbók
Í fjárfestingarbók banka og verðbréfa-
fyrirtækja eru færð markaðsskuldabréf
og hlutabréf sem stofnun hefur með
formlegum hætti tekið ákvörðum um
að eiga til lengri tíma, skemmst eitt ár.
Til slíkra bréfa teljast ekki hlutir í hlut-
deildarfyrirtækjum eða tengdum fyrir-
tækjum.
■ Hugtak vikunnar
Spilunum í spilastokki við-skiptalífsins var raðað upp á
nýtt í vikunni. Fyrirtæki sem
voru á hendi Kolkrabbans svo-
nefnda fengu nýja herra. Eim-
skipafélagið og eignir þess féllu
Samsoni, undir forystu Björg-
ólfs Guðmundssonar, og Lands-
bankanum í skaut að undan-
skyldum eignum í Íslandsbanka,
Straumi, Sjóvá-Almennum og
Flugleiðum sem féllu í skaut Ís-
landsbanka og eigendum hans.
Íslandsbanki hóf kaup á Sjóvá-
Almennum með það að mark-
miði að gera félagið að dótturfé-
lagi sínu. Hræringar viðskipta-
lífsins breyttu landslaginu á
einni nóttu. Hræringar sem
komið höfðu fram á jarð-
skjálftamælum fjölmiðla og
markaðarins.
Hófst fyrir fjórum vikum
Atburðarás þess kafla sem
lauk í vikunni hófst fyrir tæpum
fjórum vikum með kaupum
Samsonar og Landsbankans í
Fjárfestingarfélaginu Straumi.
Fréttunum var ekki tekið fagn-
andi í herbúðum Íslandsbanka
svo vægt sé til orða tekið. Þar
töldu menn Landsbankann vera
að brjóta samkomulag um 20 til
25% eign í Straumi. Fulltrúar
Landsbankans töldu ekkert sam-
komulag brotið þar sem bankinn
sjálfur hefði ekki farið upp fyr-
ir þau mörk, enda þótt eigendur
bankans hefðu keypt í Straumi.
Bent var á að eigendur Íslands-
banka ættu einnig hlut í
Straumi.
Íslandsbanki þótti seinn að
bregðast við þessum tíðindum,
en að lokum náði hann vopnum
sínum og staðan endaði þannig
að hvor aðili um sig var með um
37% eignarhlut. Pattstaða sögðu
margir og víst var að hvorugur
bankanna var ánægður með
stöðuna.
Eignir Straums heilluðu
Flestum var ljóst að Straum-
ur sem slíkur var ekki markmið
Landsbankans og Samsonar. Það
voru eignir Straums sem heill-
uðu. Kenningar um að bankinn
hygðist sameina Straum bank-
anum þóttu harla ólíklegar.
Straumur hafði verið að bæta
við sig hlut í Eimskipafélaginu
smátt og smátt í allt sumar.
Borist á bankaspjót
Verðmæti upp á 25 milljarða króna skiptu um hendur í vikunni í innbyrðisviðureign viðskipta-
blokka. Framtíðin mun skera úr um hverjir gerðu góð kaup. Kolkrabbinn í sinni gömlu mynd
skolaðist burt í flóðinu og við blasir nýtt landslag.
Sé litið á þetta frá
hreinu peninga- og
viðskiptasjónarmiði eru allir
ánægðir með jólapakkann
sinn: „Einmitt það sem mig
langaði í!“ er setning dags-
ins.
,,
■ Vikan sem leið
BJARNI ÁRMANNSSON OG EINAR SVEINSSON
Yfirtaka Íslandsbanka á Sjóvá var frá sjónarhorni leikfléttunnar býsna glúrinn leikur.
STÓRVIÐBURÐIR
Tuttugu og fimm milljarðar skiptu um hendur í viðskiptum liðinnar viku. Kolkrabbinn er liðin tíð og viðskiptalandslagið gjörbreytt. Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson,
bankastjórar Landsbankans, kynna stórviðskipti vikunnar.