Fréttablaðið - 21.09.2003, Blaðsíða 15
15SUNNUDAGUR 21. september 2003
Nánari upplýsingar á www.lv.is og í síma 515 9000.
„Hvað er með Ásum?“
Laxárstö› í A›aldal. S‡ning
á verkum Hallsteins Sigur›s-
sonar, myndhöggvara, í berg-
hvelfingum aflstö›varinnar.
Fró›leikur um go›in og
heimsmynd fleirra.
,,Náttúra orkunnar – orka náttúrunnar”
Í Ljósafossstö› vi› Sog. Umræ›an um virkjanir og
umhverfismál.
Végarður í Fljótsdal
Uppl‡singami›stö› um Kárahnjúka-
framkvæmdirnar og náttúruna nor›an
Vatnajökuls.
Takk fyrir komuna!
Við þökkum þeim þúsundum gesta sem hafa heimsótt aflstöðvar og sýningar
Landsvirkjunar í sumar. Sýningunum er nú lokið en verður framhaldið næsta sumar.
Vonumst til að sjá ykkur að ári!
Krafla og Bjarnarflag í Mývatnssveit
Kynning á rafmagnsframlei›slu úr jar›gufu.
Búrfellsstöð í Þjórsárdal – stærsta orkustö› landsins.
Í fijórsárdal er margt a› sko›a; fijó›veldisbærinn, Stöng,
Hjálparfoss, Háifoss, Gjáin og Búrfellsstö› – skemmtileg
dagsfer›!
Blöndustöð í Húnaþingi
Sko›unarfer› ne›anjar›ar sem er
ævint‡ri líkust.
Hrauneyjafossstöð á Sprengisandsleið
Sko›unarfer› um stö›ina, uppl‡singar um Kárahnjúkafram-
kvæmdir og vísindarannsóknir ásamt myndas‡ningu um
fijórsárver og Vatnajökul.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
0
3
4
2
•
s
ia
.is
REYKINGAR
Þeir sem vilja hætta hafa meðal annars
notast við tyggjó, plástra og lyf en munu
að öllum líkindum, í náinni framtíð, geta
leitað á náðir farsímans síns þegar löngun-
in er að bera þá ofurliði.
Nýtt vopn gegn
reykingum:
Farsímar
gegn fíkn
Reykingamenn sem þrá það aðlosna úr viðjum tóbaksfíknar-
innar geta fljótlega leitað á náðir
farsímans síns en sálfræðingar
við Háskólann í Sheffield hafa
komist að því að runa af blikkandi
punktum á tölvuskjá getur truflað
þann þankagang sem fer af stað
þegar tóbakslöngunin skýtur upp
kollinum.
Hugmyndin hefur þegar verið
prufukeyrð á tölvuskjám en dr.
John May, sem fer fyrir rann-
sókninni, telur líklegt að hægt
verði að laga hana að farsímum og
lófatölvum innan skamms.
„Upplausnin á skjánum verður
að vera nokkuð öflug en það má
alveg hugsa sér að í stað þess að
nota takka á GSM-símanum til
þess að velja sér tölvuleik á borð
við Tetris væri hægt að hafa sér-
stakan „stöðva fíkn“-takka.“
Dr. May og félagar hans hafa
rannsakað hugsanaferlið sem nær
hámarki þegar einstaklingurinn
fær óstjórnlega löngum í sígar-
ettu og þeir hafa komist að þeirri
niðurstöðu að ómeðvituð áreiti í
huganum fari af stað töluvert
áður en löngunin skýtur upp koll-
inum.
„Þetta eru ánægjulegar og já-
kvæðar hugsanir sem gera það að
verkum að það felst ákveðin
umbun í því að láta undan þeim.
Takist okkur að rjúfa tenginguna
milli þessara jákvæðu hugmynda
og sælunnar sem þær lofa verða
stöðugar hugsanir um sígarettuna
marklausar.“
Punktarnir skapa það sem kall-
ast „sjónrænn hávaði“ sem truflar
þær jákvæðu hugrenningar sem
tengjast sígarettunni. „Punktarnir
stöðva ekki hugsanaferlið en þeir
draga úr áhrifamætti þess,“ segir
May og bætir því við að þó forrit-
ið dragi fyrst og fremst úr löngun
geti það einnig, ef vel tekst til,
dregið úr reykingum almennt. ■
Hann er hugmyndaríkur og harð-duglegur,“ segir Júlíus Brjáns-
son leikari um þann sem um er
spurt. Júlíus telur einsýnt að væri
hann Kínverji væri hann þjóðþekkt-
ur einnig þar. „Fyrirferðarmikill og
næmur á að láta taka eftir sér. Hef-
ur skreytt mannlífið án þess að gera
nokkrum mein, sem er glæsilegt.“
Annar sem þekkir manninn er
Hallur Helgason leikhússtjóri:
„Áræðinn og bjartsýnn, lunkinn að
hvetja góða menn til dáða, hrífur
menn með sér. Vinur vina sinna. Það
er svolítill Einar Ben í honum.“
Enn einn sem hefur haft nokkuð
saman að sælda við þann sem um er
spurt er Mörður Árnason alþingis-
maður: „Einart og hjartahreint
glæsimenni, segull á fólk og at-
burði. Ein helsta orkuuppspretta Ís-
lendinga. En það hefur komið fyrir
hann að vera betri í að hefja sókn-
irnar en að klára þær. Við höfum
verið talsvert saman og sundur en
eftir stendur traustur kunnings-
skapur og gagnkvæm virðing.“
Nú spyrjum við: Hver er maður-
inn? Svar á síðu 19.
ORKUUPPSPRETTA ÍSLENDINGA
Maður sem er sagður einhver helsta orku-
uppspretta Íslendinga. „En það hefur komið
fyrir hann að vera betri í að hefja sóknirnar
en að klára þær,“ segir einn kunningi hans.
Hjartahreint glæsimenni
Hver er maðurinn?
Málverk vikunnar að þessusinni er eftir Sigtrygg
Bjarna Baldvinsson, ungan lista-
mann að norðan. Heiti verksins
kemur áhorfandanum á sporið:
„Stór hvítur merlandi sjór“. Hér
er það glitrandi hafflöturinn
sem flæðir um strigann. Túlkun
Sigtryggs á hafinu leitast ekki
síst við að þróa dýpt á myndefn-
inu þar sem hið hlutlæga, þ.e.
sjórinn, er skoðað á forsendum
abstraktsins, hann er stílfærður
en þó ekki leiddur of langt frá
hinni upphaflegu sýn.
Sigtryggur útskrifaðist frá
málaradeild Myndlistar- og
handíðaskóla Íslands árið 1990
en hafði
á ð u r
numið við
M y n d -
l i s t a -
skólann á
Akureyri.
Frá Mynd-
listar- og
h a n d í ð a -
skólanum
lá leiðin í
f r a m -
haldsnám til Strasbourg í Frakk-
landi og var hann þar frá 1991 til
1994 við École des Arts
Décoratifs. Umrætt verk er í
eigu Listasafns Íslands. ■
STÓR HVÍTUR
MERLANDI SJÓR
Verk frá 1999 eftir Sigtrygg
Bjarna Baldvinsson.
Glitrandi hafflötur
Málverk vikunnar