Fréttablaðið - 21.09.2003, Side 18

Fréttablaðið - 21.09.2003, Side 18
18 21. september 2003 SUNNUDAGUR Unglingarnir vilja til útlanda Við höfum alltaf haft þessa myndað krakkarnir vilji flytja utan af landi til Reykjavíkur og frá Reykja- vík til útlanda. Það sem hefur breyst núna er að það eru allir lík- legri til þess að vilja flytja til út- landa en áður og það er orðinn fyrsti kostur allra að flytja út,“ seg- ir dr. Þóroddur Bjarnason félags- fræðingur um niðurstöður nýrrar athugunar á framtíðarsýn íslenskra unglinga. Höfuðborgin freistar ekki „Það er sama hvar krakkarnir eru á landinu. Ef þeir fengju að ráða myndu þeir flytja til útlanda, ekki til Reykjavíkur. Það yrði mjög mik- il mannfjöldafækkun í Reykjavík ef búsetuþróunin yrði í samræmi við þetta. Það búa um 55% af krökkun- um í Reykjavík. Ef allir krakkar á landinu flyttu þangað sem þeir helst vildu þá yrðu 38% þeirra í Reykja- vík.“ Þetta eru niðurstöðurnar þegar krakkarnir eru spurðir hvar þeir vilji helst búa. „Þegar þau eru hins vegar spurð hvar þau búist við að búa kemur í ljós að um 56% búast við því að þau muni búa í Reykjavík. Einhvers staðar þarna á milli liggur hið rétta í þessu og spáir það tiltölu- lega vel fyrir um það sem gerist í raun og veru, þannig að ef þetta gengur eftir fækkar alls staðar á landinu nema Reykjavík stendur í stað og Íslendingum í útlöndum fjölgar. Þau sem búa í Reykjavík virðast þó vera þar hálfnauðug. Það er ekki það að þau vilji búa í Reykjavík, heldur búast þau við því.“ Frá sjávarþorpi til heimsþorpsins Þóroddur nefnir hnattvæðing- una sem helstu ástæðuna fyrir þeirri breytingu sem orðið hefur frá því sambærileg könnun var gerð árið 1992. „Þetta er allt að opnast upp og krakkar, hvort sem þeir eru í sjávarþorpum eða sveitum, sjá kannski ekki neina framtíð fyrir sig þar svo þau þurfi því að fara. Og þá eru svo margir aðrir staðir í heimin- um en Reykjavík. Það hefur töluvert verið skoðað hvað það er sem ýtir á krakkana og hvað það er sem heldur í þá. Þegar maður spyr þá hvar þeir haldi að það sé best að stofna fjölskyldu og ala upp börn nefna þeir mjög oft heimahagana. Það sama er að segja þegar spurt er hvar þeir telji að það sé auðveldast að fá vinnu, jafnvel krakkarnir í sjávarþorpunum nefna þá heimahagana, þar sem er kannski ekki mikil vinna. Þeir horfa þá til þess að þar hafa þeir vina- tengsl og ættartengsl og þess háttar sem gagnast þeim ef þeir þurfa að fá einhverja vinnu. Ef þú hins vegar spyrð hvar þeir haldi að sé best að fá skemmtilega eða vel launaða vinnu kemur strjálbýlið illa út og það eru þeir þættir sem toga voða mikið í þá.“ Upplausn í sveitunum Þóroddur segir að þegar búið sé að taka tillit til svara við spurning- um um góða vinnu, góð laun, afstöð- una til frumframleiðslunnar, til dæmis hversu mikla virðingu krakkarnir telji að fólk beri fyrir sjávarútvegi og landbúnaði, sé samt mjög mikill munur á milli lands- hluta. „Þetta eru hlutir sem segja að ákveðnu leyti til um hvað krakkarn- ir muni gera. Það sem gerist er það að krakkarnir í sveitunum eru sex- falt líklegri til þess að vilja flytja, eða búast við að flytja, heldur en aðrir. Þetta sýnir það bara að það er að verða mjög mikil upplausn í sveitunum. Það er ekki talað mjög mikið um þetta lengur, ólíkt því sem var í byrjun 20. aldar þegar vestur- flutningarnir stóðu sem hæst. Þá var alltaf verið að flytja út beint úr sveitinni og þá óttuðust allir að hér yrði landauðn þar sem allir myndu flytjast út. Svo verður iðnbyltingin í sjávarútveginum og sjávarþorpin vaxa og síðan höfuðborgarsvæðið og þjóðin er náttúrlega búin að vera á fleygiferð alla tíð síðan. Fólki fjölgaði mikið og það flutti í þéttbýli og síðan til höfuðborgar- svæðisins þannig að við fáum ein- hvern veginn þessa mynd af höfuð- borgarsvæðinu sem flöskuhálsi. Nú hefur þetta opnast aftur og sú staða er komin upp að krakkarnir vilja fara beint út. Það sem hefur haft sitt að segja í sveitunum er framleiðslutakmarkanir og vél- væðing sem dregur úr þörfinni á fólki. Þegar maður spurði krakk- ana 1992 hvar þeir myndu helst vilja búa voru krakkarnir í sveitun- um líklegri til að vilja flytja og margir fluttu náttúrlega. Það eru miklu fleiri núna sem segjast vilja flytja. Ef við erum þannig að tala um að áform krakkanna gangi eftir lítur út fyrir að það verði einhver 3-4% eftir í sveitunum.“ Akureyri togar í sitt fólk „Krakkarnir í sjávarplássunum eru líklegri til að vilja flytja þegar búið er að taka tillit til efnislegra þátta, eins og atvinnu. Svo koma staðir eins og Akureyri, til dæmis, þar sem krakkarnir eru síður lík- legir til að vilja flytjast burt en maður hefði búist við þegar búið var að taka tillit til þessara efnis- legu þátta. Krakkarnir á Akureyri eru sem sagt síður líklegir til að vilja flytja heldur en krakkar í Reykjavík eftir að búið er að taka tillit til þess hvar þeir halda að það sé best að fá vinnu, bestu launin og svo framvegis. Þetta þýðir að það er einhver munur á því hversu fast þessi samfélög halda í krakkana. Það er alltaf talað um að það verði að passa að það sé næg vinna, þjón- usta og þetta og hitt en það er aldrei talað um samfélagið og við- horfin. Engum dettur í hug að segja að það sé mjög sérstakt að búa, til dæmis, á Kópaskeri. Að það sé einstakur staður. Það er auðvit- að ekkert fyrir alla og margir myndu vilja flytja en það eru margir aðrir sem myndu vilja vera um kyrrt. Það er voðalega lítið tal- að um það sem gerir það einstakt að búa á hverjum stað fyrir sig.“ Þóroddur segir það gleymist líka að það sé í raun ekkert slæmt við að það sé útþrá í krökkunum og það þurfi miklu frekar að huga að því hver eiga að vera leið þeirra til baka. Liður í stærra verkefni Könnunin er hluti af umfangs- meira verkefni. „Það er Rannsókn og greining sem stendur að þessu og við erum að fara út í samanburð á viðhorfum krakka í Færeyjum, á Ís- landi og Grænlandi. Við gerðum könnunina 1992 upp á eigin spýtur og hún varð eiginlega kveikjan að þessu stóra verkefni þar sem við ætlum að líta á lífskjör, framtíðar- sýn og aðstæður krakka í þessum þremur löndum, sérstaklega í strjál- býli. Það sem við höfum sérstakan áhuga á að skoða er hvernig þetta tengist alls konar félagslegum vandamálum hjá krökkunum. Hvernig er það til dæmis með krakka sem myndu vilja flytja en búast ekki við að geta það? Hefur það áhrif á áfengisneyslu, reyking- ar, og gáleysi í kynlífi, svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru hlutir sem hafa aldrei verið skoðaðir. Þetta sem við vorum að birta núna er bara fyrstu niðurstöðurnar þar sem við skoðum breytinguna frá 1992 til 2003. Næsta skrefið er að vinna úr þessum sam- anburði milli landanna“, segir Þór- oddur og er vongóður um að þar muni ýmislegt fróðlegt koma í ljós. thorarinn@frettabladid.is Niðurstöður nýrrar könnunar á framtíðarsýn ungra Íslendinga sýna að þeim fer stöðugt fjölgandi sem vilja búa í útlönd- um. Reykjavík er ekki lengur draumaáfangastaður krakkanna í strjálbýlinu sem vilja halda beint út í hinn stóra heim líkt og þekktist í upphafi síðustu aldar þegar vesturferðirnar voru í hámarki. HELSTU NIÐURSTÖÐUR Könnunin á framtíðarsýn unglinganna náði til nemenda í 9. og 10. bekk. Helstu niður- stöðurnar, eftir búsetusvæðum, eru þessar: Höfuðborgarsvæðið: Helmingur aðspurðra var uppalinn þar. Um 55% búa þar nú. 38,4% vilja helst búa þar, og 56% búast við að búa þar. Stór hópur ungs fólks telur því samkvæmt þessu að hann muni enda með að búa á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að hafa litla löngun til þess. Annað þéttbýli: 18,7% aðspurðra voru uppalin þar. 19,8% búa þar nú. 13,8% vildu helst búa þar, og 15,8% búast við því að búa þar. Hér er meira samræmi milli löngunar og væntinga en í tilviki höfuðborgarsvæðisins. Svipað margir segjast vilja búa á þessum stöðum og þeir sem segjast búast við að búa þar. Sjávarþorp: 17,6% aðspurðra voru þar uppalin. Um 16% búa þar nú. Helmingi færri, eða 8,1%, vildu helst búa þar og 6,8% búast við að búa þar. Samkvæmt þessu er útlit fyrir að helmingur þeirra unglinga sem búa í sjávarþorpum vilji og geri ráð fyrir að flytja það- an burt. Sveit: 8,9% aðspurðra ólust upp í sveit. 8,5% búa þar nú og 7,6% vildu helst búa þar. Aðeins 3,6% búast hins vegar við því að búa þar. Þetta er athyglisvert: Um helmingi fleiri ung- lingar vilja búa í sveit en þeir sem gera ráð fyrir að búa þar. Erlendis: 4,3% aðspurðra voru uppalin í útlöndum. 0,1% býr þar nú. Um 32% vilja búa þar og 17,9% búast við að búa þar. Þessar niðurstöður segja sína sögu: Hugur íslenskra ung- menna stendur til útlanda, þótt þeir séu reyndar helmingi færri sem gera ráð fyrir að eitthvað verði af áformunum. Það er alltaf talað um að það verði að passa að það sé næg vinna, þjón- usta og þetta og hitt en það er aldrei talað um samfélagið og viðhorfin. Engum dettur í hug að segja að það sé mjög sérstakt að búa, til dæmis, á Kópaskeri. Að það sé einstak- ur staður.“ ,, DR. ÞÓRODDUR BJARNASON Ef allir krakkar á landinu flyttu þangað sem þeir vilja helst búa myndu einungis 38% þeirra búa í Reykjavík. Könnun Þórodds sýnir að unglingar, ekki síst á landsbyggðinni, eru líklegri nú en áður til að flytja til útlanda. UNGLINGAR Þrátt fyrir að það sé gott að liggja í Nauthólsvík í sólinni virðist hugur íslenskra unglinga ekki stefna neitt sérstaklega til Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Reykjvík er ekki lengur afdráttarlaust fyrsta stopp þeirra sem flytja úr strjálbýli, heldur veita útlönd öfluga samkeppni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.