Fréttablaðið - 21.09.2003, Page 24
Samkvæmt óformlegri könnunFréttablaðsins sjá menn einna
helst Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur borgarfulltrúa fyrir sér í
forsetaframboði að ári, en þá lýk-
ur öðru kjörtímabili Ólafs Ragn-
ars Grímssonar og óvíst hvort
hann gefur kost á sér að nýju.
Ingibjörg hlaut 10 tilnefningar og
19 stig í þessari könnun, en Davíð
Oddsson forsætisráðherra situr í
öðru sæti með 16 stig. Fast á hæla
þeirra kemur Jón Baldvin Hanni-
balsson sendiherra með 15 stig.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
mannfræðingur hlýtur 10 stig –
svo fara atkvæðin heldur að
dreifast.
Ingibjörg mótvægi við
valdablokk
Þessi fjögur voru í sérflokki.
Um Ingibjörgu Sólrúnu var sagt:
„Prímadonna, og prímadonna
kemst ekki lengra en á Bessastaði.
Hún telur sig eiga eitthvert fjölda-
fylgi og kannski með réttu.“ Lang-
besti kosturinn, sagði annar:
„Hana þyrstir í embætti og hún
myndi sóma sér vel á þeim for-
setastóli sem
Ólafur Ragnar
hefur smíðað
undanfarin ár.“
„Fullkomlega
frambærileg,
reynd og glæsi-
legt forsetaefni.
Á fallega fjöl-
skyldu. Gæti
sloppið út úr
þessari óþægi-
legu stöðu sem
hún lenti í eftir
kosningarnar í vor með því að
bjóða sig fram til forseta.“ „Þetta
gæti verið góður leikur fyrir hana.
Össur er ekkert að fara að hleypa
henni að.“ „Málefnaleg, yfirveguð,
diplómat. Mér finnst hún frábær
og hún myndi sóma sér vel á
Bessastöðum.“ „Persónufylgi og
mótvægi við ákveðna valdablokk.
Það virðist vera eini tilgangur
þessa embættis.“
Þægilegt starf fyrir Davíð
Menn sögðu almennt um Davíð
að hann væri einhvern veginn aug-
ljós kostur og tímasetningin full-
komin. „Heppilegt!“ Þannig væri
Davíð að fullkomna þrennuna.
„Hann hlýtur að velta því alvar-
lega fyrir sér. Færi vel um hann á
Bessastöðum við ritstörf.
Þetta er þægilegt innistarf
og vel launað.“ „Hann er
kominn með nógu langan
feril í pólitíkinni, nýtur
mikils álits og þar myndi
hann fullkomna þrennuna. Taka
alslemm í Grandi í því.“ „Ég tel
verulegar líkur á því að hann muni
bjóða sig fram,“ sagði annar.
„Hvort heldur Ólafur Ragnar gef-
ur kost á sér áfram eða ekki. Dav-
íð eru allir vegir færir. Held hann
yrði fyrirtaks forseti.“ „Hætt við
því að hann yrði í pólitískri spenni-
treyju á Bessastöðum sem er auð-
vitað ágætt út af fyrir sig.“
Kraftur Jóns og útgeislun
Sigríðar
„Jón Baldvin er kröftugur hug-
sjónamaður sem á auðvelt með að
hrífa fólk með sér. Mikill stjórn-
vitringur og herramaður frá toppi
til táar. Væri glæsilegur fulltrúi
þjóðarinnar í alþjóðasamfélag-
inu,“ sagði einn aðdáandi Jóns
Baldvins. Annar sagði: „Þá yrði
loks gaman á Bessastöðum. Jón er
náttúrlega eldklár, skemmtilegur
og mikill sjarmör og svo á hann
konu sem myndi halda veislur
sem munað væri eftir. Sjónar-
sviptir að þeim í útlöndum.“ „Er
manna líklegastur til að taka af
skarið og vera forseti með skoð-
anir... Reffileg-
ur og hress. Og
ekki spillir nú
hún Bryndís
fyrir.“
S i g r í ð u r
Dúna – „hún
væri svona tveir
fyrir einn því
Friðrik Sophus-
son maður henn-
ar gæti hlaupið í
skarðið ef svo
ber undir.“ „Er
ekki kominn tími til að fá flott
þenkjandi manneskju í forseta-
embættið? Vissulega hafði Vigdís
margt til síns ágætis og er afskap-
lega vönduð kona en hún bar það
svolítið með sér að vera fórnar-
lamb karlveldisins.“ „Hefur þá út-
geislun sem þarf. Bæði snjöll og
spræk og auk þess miklu fallegri
en Ólafur okkar Grímsson.“
Júlíus Hafstein eða Páll
Skúlason?
Júlíus Hafstein er hugsanlega
óvæntur á lista en: „Í alla staði
viðeigandi á 100 ára afmæli
heimastjórnar að svo glæsilega
margreyndur fulltrúi
ættarinnar hefjist
til æðstu met-
orða. Hann
er maður
sem læt-
ur hlut-
ina ger-
ast, vel
giftur og er meiri pólitískur ref-
skákmaður en ferill hans gefur til
kynna.“ Og: „Við þurfum fulltrúa
bláa blóðsins í framboð. Erfitt er
að hugsa sér forsetaframboð án
þess að einhver Hafstein komi þar
við sögu.“
Páll Skúlason rektor fær líka
talsvert af stigum. „Mjög vel
gerður og heilsteyptur einstak-
lingur sem hefur líka sannað
getu sína til að valda stóru verk-
efni sem er rekstur Háskólans.“
„Honum er betur varið í Háskól-
ann en hann væri örugglega mjög
góður forseti. Og svo: „Hann er
nógu tíðindalaus til að viðhalda
lognmollunni um embættið.“)
Hinn íslenski Hrói höttur
Kaupsýslumaðurinn Björgúlf-
ur Guðmundsson kemur sterklega
til greina: „Akkúrat maður sem
býður af sér allt sem á að fylgja
forsetaefmbætti,“ segir aðdándi
hans. „Fágaður maður í útliti og
framkomu sem á glæsilega konu.“
„Hefur á sér yfirbragð hins ís-
lenska Hróa hattar. Lítilmagninn
sér í honum vonina um upprisu.
Hann yrði hin lýsandi vonar-
stjarna yfir Bessastöðum.“
Guðrún Agnarsdóttir lækn-
ir er líka nefnd. „Hún hefur
þennan Vigdísarsjarma
sem ég sakna. ... kaus hana
síðast. Kannski ólíklegt að
hún gefi kost á sér aftur, en
aldrei að vita.“
Jakob Frímann Magnússon
tónlistarmaður er sagður geta
komið Íslandi rækilega á kortið.
„Er það ekki einmitt hlutverk for-
setans?“ „Listamaður sem á von-
andi eftir að blómstra aftur á rét-
tri hillu í lífinu.“ Þorsteinn Páls-
son sendiherra er sagður reyndur
pólitíkus sem þekkir ýmsa í þess-
um alþjóðlegu stjórnmálum.
„Gæti komið sér vel.“ „Maður í
fullu fjöri og kann á alla
diplómasíuna sem starfinu hlýtur
að fylgja. Rithöfundurinn Þráinn
Bertelsson kemst á blað. „Alvöru
maður á virðulegum aldri, verð-
ugur fulltrúi alþýðunnar, mælsk-
ur, ritfær og fyndinn.“ „Af vel
kunnri ætt af Kjalarnesi sem hef-
ur fyrir löngu sýnt að hann er
manna hófstilltastur en jafnframt
sniðugastur í samkvæmum. Það
þarf húmor á Bessastaði.“ Gunnar
Smári Egilsson ritstjóri
höfðar til
s u m r a .
„ H e f u r
kjark til
að segja
s a n n -
leikann
og þor
til að ráðast gegn valdhroka og
gerræði ríkjandi valdhafa.“
„Hann myndi gera eitthvað úr
þessu embætti með vinstri um
leið og hann sneri upp á hár sitt
með þeirri hægri.“
Hvað gerir Ólafur Ragnar?
Nú er spurt: Hver tekur slag-
inn? Og: Mun sitjandi forseti fara
aftur? Ólafur Ragnar Grímsson
hefur nú setið á forsetastóli í rúm
sjö ár og samkvæmt því lýkur
hann sínu öðru kjörtímabili á
næsta ári. Í sextugsafmæli sínu
14. maí síðastliðinn, en þá notaði
hann tækifærið og gekk í það
heilaga með Dorrit Moussaieff,
gaf hann út þá yfirlýsingu að hann
hygðist taka sér sumarið til að
hugleiða hvort hann myndi gefa
kost á sér til að sitja þriðja kjör-
tímabil sitt. Niðurstöðu sína hygð-
ist Ólafur Ragnar kynna nú í
haust. Til viðmiðunar má geta
þess að forverar Ólafs Ragnars í
embætti sátu flest lengur að
Sveini Björnssyni (1944-1952)
undanskildum en hann sat sat í
átta ár, var kjörinn lýðveldisárið
24 21. september 2003 SUNNUDAGUR
TOPP 10 LISTINN
1. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
2. Davíð Oddsson
3. Jón Baldvin Hannibalsson
4. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
5.-6. Júlíus Hafstein
5.-6. Páll Skúlason
7.-10. Björgúlfur Guðmundsson
7.-10. Guðrún Agnarsdóttir
7. 10. Jakob Frímann Magnússon
7.-10. Þorsteinn Pálsson
Eftir um það bil ár lýkur öðru kjörtímabili Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta lýðveldisins. Ekkert
liggur fyrir um hvort Ólafur hyggist gefa kost á sér aftur eða ekki. Fréttablaðið leitaði hugsanlegra
frambjóðenda með fulltingi álitsgjafa. Margir eru kallaðir en fáir útvaldir.
Hver verður forseti
Íslands?
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
„Fullkomlega frambærileg, reynd
og glæsilegt forsetaefni. Á fallega
fjölskyldu. Gæti sloppið út úr
þessari óþægilegu stöðu sem hún
lenti í eftir kosningarnar í vor með
því að bjóða sig fram til forseta.“
DAVÍÐ ODDSSON
„Hann hlýtur að velta því alvarlega fyrir
sér. Færi vel um hann á Bessa-
stöðum við ritstörf. Þetta er
þægilegt innistarf og
vel launað.“
SIGRÍÐUR DÚNA
KRISTMUNDSDÓTTIR
„Er ekki kominn tími til að fá flott
þenkjandi manneskju í forsetaemb-
ættið? Vissulega hafði Vigdís margt til
síns ágætis og er afskaplega vönduð
kona en hún bar það svolítið með sér
að vera fórnarlamb karlveldisins.“
FORSETI ÍSLANDS, ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON.
Lýsti því yfir að hann ætlaði að nota sumarið til að ákveða hvort hann myndi fara
fram. Yfirlýsingar er að vænta nú í haust.