Fréttablaðið - 21.09.2003, Side 30
30 21. september 2003 SUNNUDAGUR
EIÐUR SMÁRI
Var í liði Chelsea sem burstaði
Úlfanna 5-0.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
18 19 20 21 22 23 24
SEPTEMBER
Sunnudagur
Ásgeir Elíasson:
Skrýtið mót
FÓTBOLTI „Þetta gekk ekki í dag en
ég tel að við hefðum átt að vera
búnir að bjarga okkur frá falli
fyrr,“ segir Ásgeir Elíasson, þjálf-
ari Þróttar, sem féll úr úrvals-
deildinni í gær eftir 0-1 tap gegn
Fram.
Ásgeir sagði um mitt mót að
hann teldi að 22 stig myndu nægja
liðinu til að sleppa við fall en svo
reyndist ekki vera. „Þetta er búið
að vera mjög jafnt mót og KR
tryggði sér titilinn allt of
snemma. Það er í raun ótrúlegt að
lið tryggi sér titilinn með 33 stig
þegar tvær umferðir eru eftir,“
sagði Ásgeir. „Það sýnir kannski
hvað þetta hefur verið skrýtið
mót, allt öðruvísi en oft áður.“
Ásgeir á eitt ár eftir af samn-
ingi sínum og á ekki von á öðru en
að hann haldi áfram að stýra
Þrótti.
„Mér líkar vel hjá Þrótti, þetta
er fínt starf og gott lið. Það er al-
gjör synd að þetta lið hafi fallið
því mér finnst það með betri lið-
um á landinu. En ég á ár eftir af
samningnum og á ekki von á öðru
en að halda áfram. Við verðum að
koma okkur upp úr 1. deildinni á
næsta ári og verðum þá reynsl-
unni ríkari og vel undir það búnir
að koma aftur.“ ■
Fram bjargaði sér frá falli
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
dramatíkin hafi verið allsráðandi
í gær þegar lokaumferð Íslands-
mótsins hófst enda fimm lið sem
gátu fallið úr úrvalsdeildinni og
baráttan um Evrópusæti hörð.
Valur og Fram voru í botnsætun-
um með 20 stig, KA í því þriðja
neðsta með stigi meira og
Grindavík og Þróttur með 22
stig.
Valsmenn byrjuðu vel gegn
Fylki í Árbænum með marki frá
Jóhanni Hreiðarssyni strax á 10.
mínútu. Það hleypti vonarneista í
stuðningsmenn Hlíðarendaliðs-
ins en sá neisti slokknaði þó
fljótt. Sævar Þór Gíslason jafn-
aði leikinn fyrir Fylki og þannig
var staðan í leikhléi. Eftir hlé
sýndu Fylkismenn hvað í þeim
býr, eftir heldur dapra leiki á
undan, og skoruðu fimm mörk til
viðbótar gegn einu marki Vals-
ara. Lokatölur 6-2 fyrir Fylki og
Valsmenn fallnir um deild.
Fram og Þróttur áttust við í
Laugardalnum í sannkölluðum
botnslag. Kristján Brooks var
hetja Framara þegar hann skor-
aði úr seinustu spyrnu fyrri hálf-
leiks. Þróttarar sóttu mun meira
í seinni hálfleik en án árangurs.
Fram fór með sigur af hólmi og
bjargaði sér frá falli fimmta árið
í röð. Þróttarar leika hins vegar í
fyrstu deild að ári.
Allt leit út fyrir að Grindvík-
ingar myndu falla niður um
deild þegar þeir lentu undir
gegn KA-mönnum á heimavelli.
Steinar Tenden skoraði mark
KA-manna þegar um tíu mínút-
ur voru liðnar af seinni hálfleik.
Grindvíkingar sóttu talsvert
meira það sem eftir lifði leiks og
uppskáru mark á 88. mínútu
þegar Sinisa Kekic kom knettin-
um í netið og bjargaði Suður-
nesjamönnum frá falli.
FH-ingar eru á mikilli sigl-
ingu þessa dagana. Þeir tóku Ís-
landsmeistara KR í kennslu-
stund á Kaplakrika. Guðmundur
Sævarsson skoraði þrennu fyrir
Fimleikafélagið en þeir Jónas
Grani Garðarsson og Allan
Borgvardt sitt markið hvor.
KR-ingar léku tveimur mönn-
um færri drjúgan hluta seinni
hálfleiks en Sverrir Bergsveins-
son og Garðar Jóhannsson fengu
báðir að líta rauða spjaldið.
Í Vestmannaeyjum áttust
ÍBV og ÍA við. Stefán Þór Þórð-
arson kom gestunum yfir en
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
jafnaði metin skömmu fyrir
leikslok. Þetta var tíunda mark
Gunnars Heiðars, sem hefur
skorað jafn mörg mörk og
Björgólfur Takefusa og Sören
Hermansen úr Þrótti. ■
Eggert Stefánsson:
Ekta
botnslagur
FÓTBOLTI „Þetta hafðist og var
mikil barátta enda botnslagur,“
sagði Eggert Stefánsson, leik-
maður Fram, eftir sigurleikinn
gegn Þrótti í gær.
Eggert var einn af bestu
mönnum Framara í gær og stóð
fyrir sínu í vörninni. Sigur
Framara bjargaði þeim frá falli
fimmta árið í röð.
„Ég hélt að liðsmenn Vals
myndu klára þetta miðað við
hvernig þeir spiluðu í síðasta
leik,“ sagði Eggert þegar hann
frétti af því hverjir hefðu fallið
um deild. ■
LOK
SIN
S, L
OKS
INS
BOLTI & BJÓR
í beinni í Vesturbænum
MAN. UTD. - ARSENAL
Húsið opnar kl. 14.00
Sun. 21. sept
á risaskjá í Sunnusal
Hótel Sögu
Tilboð á hamborgurum og bjór
11.30 Ítarleg umfjöllun um íslensk-
ar akstursíþróttir í Mótorsporti á Stöð 2.
Umsjón hefur Birgir Þór Bragason.
11.30 Boltinn með Guðna Bergs
er á Sýn.
12.50 Bein útsending frá leik
Middlesbrough og Everton á Sýn.
14.50 Bein útsending frá leik
Manchester United og Arsenal á Sýn.
17.00 Í Markaregni verða sýndir
valdir kaflar úr leikjum síðustu umferðar
í þýska fótboltanum.
17.35 Sýnt verður frá golfmóti í
Bandaríkjunum á Sýn.
18.30 Sýnt verður frá golfmóti í
Evrópu á Sýn.
19.15 ÍR og HK mætast í Austur-
bergi í suðurriðli Remax-deildar karla.
19.15 Nágrannaslagur verður í Ás-
garði þegar Stjarnan fær FH í heimsókn
í suðurriðli Remax-deildar karla.
19.15 Selfoss mætir Breiðabliki í
suðurriðli Remax-deildar karla.
19.20 Bein útsending frá leik
Malaga og Real Madrid á Sýn.
21.30 Boltinn með Guðna Bergs
er á Sýn.
Grindavík:
Á fimmtugs-
aldri í marki
FÓTBOLTI Þorsteinn Bjarnason, fyrr-
um landsliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu, stóð í marki Grindvíkinga í
gær þegar þeir léku við KA í loka-
umferð Landsbankadeildarinnar.
Þorsteinn er 46 ára og lék síðast í
efstu deild fyrir þrettán árum.
Hann hefur verið varamarkvörður
Grindvíkinga frá því að Ólafur
Gottskálksson meiddist.
Þorsteinn náði ekki að koma í
veg fyrir að Steinar Tenden skoraði
en Grindvíkingar jöfnuðu leikinn og
björguðu sér frá falli. ■
ÁSGEIR ELÍASSON
Býst við að halda áfram að stýra Þrótti þótt
liðið hafi fallið um deild.
SÁRT
Þróttarar grétu í leikslok enda ljóst að þeir leika í 1. deild að ári.
FRAMARAR FAGNA
Framarar kættust á Laugardalsvelli í gær þegar þeir unnu Þróttara með einu marki gegn engu og björguðu sér frá falli fimmta árið í röð.
Lokaumferð Íslandsmótsins fór fram í gær. Valur og Þróttur féllu úr úrvalsdeildinni. Framarar
björguðu sér frá falli fimmta árið í röð. FH valtaði yfir KR á Kaplakrika.
KARLAR LOKASTAÐA
L U J T Stig
KR 18 10 3 5 28:27 33
FH 18 9 3 6 36:24 30
ÍA 18 8 6 4 27:21 30
Fylkir 18 9 2 7 29:24 29
ÍBV 18 7 3 8 25:25 24
Grindavík 18 7 2 9 24:31 23
Fram 18 7 2 9 22:30 23
KA 18 6 4 8 29:27 22
Þróttur 18 7 1 10 27:29 22
Valur 18 6 2 10 24:33 20
ÚRSLIT 18. UMFERÐAR
Fram - Þróttur 1-0
Fylkir - Valur 6-2
Grindavík - KA 1-1
ÍBV - ÍA 1-1
FH - KR 7-0
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A