Fréttablaðið - 21.09.2003, Page 31
31SUNNUDAGUR 21. september 2003
Hnefaleikanefnd ÍSÍ:
Nefndin
endurvakin
HNEFALEIKAR Engilbert Olgeirs-
son hefur verið skipaður
formaður nýrrar hnefaleika-
nefndar sem framkvæmda-
stjórn ÍSÍ setti á fót í vikunni.
Með honum í stjórn verða Bubbi
Morthens, Guðjón Vilhelm og
Konstantín Mikael Mikaelsson.
Kristinn Reimarsson á skrif-
stofu ÍSÍ mun svo starfa með
nefndinni.
Framkvæmdastjórnin leysti
upp síðustu hnefaleikanefnd í
mars síðastliðnum vegna trún-
aðarbrests sem upp kom milli
nefndarinnar og einstaklinga
innan hennar. ■
Markahæstu menn:
Björgólfur markakóngur
FÓTBOLTI Björgólfur Takefusa úr
Þrótti varð markahæsti leikmaður
Landsbankadeildar karla í ár með
tíu mörk. Sören Hermansen, Þrótti,
og Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
ÍBV, skoruðu jafn mörg mörk en
léku einum leik meira en Björgólfur
og hlýtur hann því gullskóinn.
Björgólfur og Sören voru marka-
hæstir fyrir lokaumferðina en hvor-
ugum tókst að skora í gær. Gunnar
Heiðar var búinn að skora níu mörk
en bætti því tíunda við þegar hann
jafnaði fyrir ÍBV gegn ÍA.
Steinar Tenden úr KA varð fjórði
markahæsti leikmaður deildarinnar
með níu mörk. Hann skoraði fyrir
KA gegn Grindavík í gær. ■
SVEKKTIR
Stuðningsmenn Þróttar voru svekktir þegar
ljóst var að liðið var fallið. Þeir geta þó
glaðst yfir því að eiga tvo markahæstu
menn Íslandsmótsins.
MARKAHÆSTU MENN
ÍSLANDSMÓTSINS:
Björgólfur Takefusa Þrótti 10
Sören Hermansen Þrótti 10
Gunnar H. Þorvaldsson ÍBV 10
Steinar Tenden KA 9
Versti ósigur
KR í 81 ár
FÓTBOLTI Tap KR í gær var stærsta
tap Vesturbæjarliðsins í 81 ár.
Árið 1922 tapaði KR 7-0 fyrir
Fram, sem seinna varð Íslands-
meistari. Þrjú lið tóku þátt í Ís-
landsmótinu það ár.
Ekkert lið hefur tapað jafn
stórt sama ár og það varð Íslands-
meistari. Árið 1992 urðu Skaga-
menn meistarar en töpuðu á því
tímabili fyrir Val 5-1.
Guðmundur Sævarsson varð í
gær fyrsti leikmaður Íslands-
mótsins til að skora þrennu gegn
KR síðan 1980. Þá skoraði Matthí-
as Hallgrímsson öll mörk Vals-
manna í 3-0 sigri. Sigur FH í gær
var jafnframt stærsti sigur liðs-
ins í efstu deild. ■
WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON
Var að vonum ekki sáttur með
sína menn í gær.
Willum Þór Þórsson
um tapið gegn FH:
Hvorki hægt
að réttlæta
né útskýra
FÓTBOLTI Willum Þór Þórsson, þjálf-
ari Íslandsmeistara KR, var að
vonum ekki sáttur við sína menn
eftir 7-0 tap gegn FH í Kaplakrika
í gær. „Það þjónar engum tilgangi
að tala um þetta. Á þessari stundu
er best að segja sem minnst. Það er
ekki hægt að réttlæta eða útskýra
svona tap,“ sagði Willum Þór við
Fréttablaðið í gær.
KR-ingum hefur gengið afleit-
lega síðan þeir tryggðu sér Ís-
landsmeistaratitilinn, féllu meðal
annars úr undanúrslitum bikar-
keppninnar gegn FH og steinlágu
svo í gær. Þetta var stærsta tap
KR í 81 ár.
„Ég get ekki verið sáttur með
svona leik. Þetta bara gerðist og
ég verð að lifa með því.“ ■