Fréttablaðið - 21.09.2003, Side 39
Tónlistarmaðurinn Daníel ÁgústHaraldsson býr í Brussel um
þessar mundir. Um helgina var
hann staddur hér á landi til að
koma fram á útgáfutónleikum
Bang Gang: „Ég er bara í stuttu
stoppi því mér fannst ég verða að
styðja við bakið á Barða frænda
mínum með því að leggja honum
lið á þessari mikilvægu stund,“
segir Daníel Ágúst.
Þó ættartengsl séu á milli
listamannanna tveggja hafa þeir
ekki þekkst mjög lengi: „Við
kynntumst í raun bara í gegnum
tónlistina. Hann kallaði mig til
sín og við náðum það vel saman
að við gátum samið eitt skemmti-
legt rokklag.“
Listamaðurinn Daníel Ágúst
hefur ekki setið auðum höndum í
Brussel: „Ég gerði þau leiðu mis-
tök að sækja um styrk frá tón-
skáldasjóði í mörg ár. Ég er nátt-
úrlega alls ekki tónskáld í augum
þeirra sem ákveða það hver er
tónskáld og hver ekki. En svo
sótti ég um laun úr listasjóði og
fékk úthlutað launum í hálft ár.
Þau hafa komið sér vel til að
brauðfæða fjölskylduna og ég
hef getað einbeitt mér að fyrsta
einherjaverkefninu mínu.“
Daníel Ágúst er að leggja loka-
hönd á sólóplötu þar sem öll lögin
eru eftir hann: „Þetta er kammer-
popptónlist. Ég er eini söngvarinn
en hef fengið fullt af fólki til að
spila á strengjahljóðfæri því ég
kann það ekki sjálfur. Megnið af
efninu er að verða tilbúið en ég
klára plötuna með Biggs (Birgi
Sigurðssyni) í október eða nóvem-
ber. Svo þarf ég að finna plötunni
heimili en ég er með tvo útsendara
í Ameríku og þeir eru að leita að
vænlegum útgefendum.“
Daníel Ágúst fer aftur til Bruss-
el í dag og vonandi líður ekki á
löngu þar til tónlist hans kemur
fyrir eyru almennings. ■
Tónlist
■ Daníel Ágúst Haraldsson hefur í tæp
tvö ár unnið að fyrstu breiðskífu sinni.
Hann hefur búið í Brussel síðustu
mánuðina en var á landinu um helgina.
39SUNNUDAGUR 21. september 2003
LJÓSBRÁ BALDURSDÓTTIR
Með góð spil á hendi.
Bridge
yngir upp
Þetta er átak og tilraun okkar tilað breyta ímynd íþróttarinn-
ar,“ segir Ljósbrá Baldursdóttir,
fræðslufulltrúi Bridgesambands-
ins, sem vill sjá ungt fólk við
bridgeborðin. Í því skyni hefur
Bridgefélag Reykjavíkur stofnað
klúbb fyrir unglinga og verður
spilað í höfuðstöðvum Bridgesam-
bandsins í Síðumúlanum öll mið-
vikudagskvöld frá því um kvöld-
matarleytið og fram til klukkan
23. Aðeins kostar 200 krónur að
vera með:
„Það hefur orðið allt of lítil
endurnýjun í bridgeíþróttinni og
kominn tími til að breyta ímynd-
inni og sýna fólki fram á að bridge
er ekki eingöngu tómstundagam-
an fyrir eldra fólk. Allir eiga að
geta spilað bridge,“ segir Ljósbrá
sem sjálf byrjaði ung að spila, er
fyrir löngu komin í landsliðið í
bridge og er meðal fremstu spil-
ara landsins.
Liður í andlitslyftingu bridge-
íþróttarinnar hér á landi er sam-
komulag sem gert hefur verið við
menntamálaráðuneytið um að
bridge verði kennt til eininga í
framhaldsskólum. Hafa þrír skól-
ar þegar tekið bridge inn í nám-
skrá sína; Fjölbrautaskólinn í Ár-
múla, Menntaskólinn við Sund og
Kvennaskólinn. ■
Í stuttu stoppi á Íslandi
DANÍEL ÁGÚST HARALDSSON
Dvelur um þessar mundir í Brussel við tónsmíðar og upptökur á sólóplötu.
Spil
■ Bridgespilarar vilja breyta ímynd
íþróttarinnar og fá yngra fólk til að spila.
Bridge er ekkert einkamál eldri borgara.