Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 4
4 22. september 2003 MÁNUDAGUR Hefur haustið tekið völdin? Spurning dagsins í dag: Eru eignir á Íslandi að safnast á of fáar hendur? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 19,7% 80,3% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lögreglufréttir Lettar greiða atkvæði um Evrópusambandið: Allar þjóðirnar tíu hafa samþykkt aðild VIRKJANAGERÐ Heilbrigðiseftirlit Austurlands hefur hvað eftir ann- að gert athugasemdir við ýmis- legt sem enn er í ólestri í búðum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo. Að sögn Helgu Hreins- dóttur framkvæmdastjóra hefur stofnunin haft mikla biðlund gagnvart starfsemi Ítalanna vegna erfiðra aðstæðna. „Það hefur ýmislegt vantað upp á að allt sé eftir settum regl- um. Sérstaklega höfum við tekið fyrir mötuneyti starfsmanna, sem eru fjögur talsins á svæðinu. Þar hafa litlar efndir orðið þrátt fyrir mikla pressu. Til stóð að loka því stærsta í höfuðbúðunum vegna þess að þar snæða yfir 300 manns og öll aðstaða var langt fyrir neð- an allar hellur. Sem betur fer kom ekki til þess þar sem drifið var í lagfæringum og ástandið er mun betra núna. Vinna stendur yfir við að breyta öðrum mötuneytum þannig að allt falli undir hollustu- reglur. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að starfsmenn stærsta mötuneytisins séu aðeins fjórir talsins og fái litla hvíld enda mik- ið verk að elda mat og útbúa kaffi fyrir fleiri hundruð manns á degi hverjum. Þrátt fyrir að starfsað- staðan sé mun betri en hún var vantar enn upp á að hún geti talist góð. Helga sagði aðstæður að mörgu leyti slæmar fyrir Impreg- ilo. „Skólpræsismál hafa verið í ólagi en það er ekki fyrir kæru- leysi heldur hefur sá búnaður sem settur var upp ekki reynst sem skyldi þrátt fyrir að okkar leið- beiningum hafi verið fylgt út í æsar. Einnig þarf að bora eftir öllu vatni sem notað er og síðast en ekki síst eru Ítalarnir óvanir því að sækja þurfi nauðsynlega hluti svo langt sem raunin er, og það er það sem þeir kvarta sárast undan. Það verður enn meira vandamál þegar veturinn leggst yfir með válynd veður og erfiðari færð.“ albert@frettabladid.is LETTLAND, AP Lettar samþykktu inngöngu landsins í Evrópusam- bandið með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða í þjóðaratkvæða- greiðslu um helgina. Um 67% kjósenda greiddu at- kvæði með aðild en 32% höfnuðu inngöngu landsins í sambandið. Kjörsókn var 72% sem er lítið eitt meira en í síðustu þingkosningum í landinu. Mest var andstaðan við aðild í Daugavpils, næststærstu borg Lettlands, þar sem Rússar eru meirihluti íbúanna. Áformað er að tíu lönd gangi í Evrópusambandið í maí á næsta ári. Malta, Slóvenía, Ungverja- land, Pólland, Tékkland, Slóvakía, Litháen og Eistland höfðu þegar samþykkt aðild að sambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslum og voru Lettar því síðastir í röðinni. Stjórnvöld á Kýpur hafa einnig samþykkt aðild en þar var málið ekki borið undir þjóðina. Lettar, sem eru um 2,3 milljón- ir, eru fátækastir þjóðanna tíu. ■ HERÆFING Á fjórða hundrað bandarískir hermenn hafa fallið í Írak síðan stríðið hófst. Sprengjuárásir í Írak: Þrír her- menn fórust BAGDAD, AP Tveir bandarískir her- menn létu lífið og þrettán særðust þegar sprengjum var varpað á tjaldbúðir hersins í Abu Ghraib- fangelsinu í útjaðri Bagdad. Fang- arnir sluppu allir ómeiddir. Annar bandarískur hermaður fórst þegar hann ók yfir sprengju skammt frá bænum Ramadi. Alls hafa 303 bandarískir her- menn farist í Írak síðan stríðið hófst. Rúmlega helmingur þeirra hefur fallið eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti stríðinu formlega lokið. ■ BYGGÐ VERÐA UNDIRGÖNG Hér má sjá hvernig Reykjanesbrautin verður færð til á meðan á framkvæmdum stendur. Hafnarfjörður: Reykjanes- braut færð til FRAMKVÆMDIR Í vikunni verður hluti Reykjanesbrautar rétt ofan við gatnamótin við Lækjargötu og Hlíðarberg færður til á meðan unnið er að undirgöngum. Það eru Vegagerðin og Hafnarfjarðarbær sem standa að framkvæmdunum. Ljúka á uppsteypu undirganga í desember á þessu ári en reiknað er með að umferð verði á bráða- birgðaveginum frá 6. október til 19. janúar á næsta ári. ■ Reikningar finnast á bæjarstjóraskrifstofu: Greitt úr bókhaldsóreiðu VESTMANNAEYJAR Týndir reikningar fyrir milljónir króna vegna Þróun- arfélags Vestmannaeyja hafa að undanförnu óvænt skotið upp koll- inum á skrifstofu bæjarstjórans og skrifstofu Þróunarfélagsins. „Þetta eru reikningar sem ekki fóru í þann farveg sem þeir áttu að fara í starfsemi Þróunarfélagsins. Ég kann ekki skýringu á því,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sem tók við starfi bæjarstjóra í Vestmanna- eyjum í júlí. Jafnframt bæjarstjórastarfinu er Bergur framkvæmdastjóri Þró- unarfélagsins. Sem slíkur vinnur hann nú að því að loka félaginu. Hann segir reikningana óvæntu hafa fundist þegar verið var að hreinsa út á skrifstofu félagsins. Einnig hafi hann fundið reikninga í sínu eigin borði á bæjarstjóraskrif- stofunni. Hann segir suma reikning- ana hafa verið greidda en aðra ekki. Greiða þurfi úr flækjunni og koma svo öllu fyrir í bókhaldinu eins og lög geri ráð fyrir. Bergur vill ekki skýra nákvæmlega frá því hvers eðlis nýfundnu reikningarnir eru. Hann upplýsir þó að sumir séu vegna flutningskostnaðar og aðrir frá sýslumanni vegna skatta og op- inberra gjalda. „Því miður liggur fyrir að hér er um ámælisverða bókhaldsóreiðu að ræða,“ segir hann. Aðspurður hvort fjármálum og bókhaldi Þróunarfélagsins verði vísað til lögreglu segir Bergur ekki sitt að meta það: „Málið verður borið undir stjórn Þróunarfélagsins. Þetta er leiðin- legt fyrir Vestmannaeyjar og alla sem að málinu hafa komið. Aðalat- riðið er að klára þessa sorgarsögu og að menn læri af reynslunni,“ seg- ir bæjarstjórinn. Bergur áætlar að sögu Þróunarfélagsins ljúki í októ- ber. Hann játar því að niðurstaðan úr dæminu muni verða „stór mínus“ en vill að svo stöddu ekki segja til um stærðargráðuna. „Menn hafa ekki borið gæfu til að taka á þessu máli fyrr. Nú er ver- ið að gera það og koma á starfsemi sem getur verið þátttakandi í að byggja upp atvinnulíf í Vestmanna- eyjum. Ég efast ekki um að þegar fram í sækir muni menn hér snúa bökum saman,“ segir Bergur. ■ Herskáir hirðingjar: Myrtu 30 þorpsbúa ÚGANDA, AP Vopnaðir nautgripaþjóf- ar skutu að minnsta kosti 30 manns til bana í þorpi í norðausturhluta Úganda. Flest fórnarlömbin voru konur og börn. Mennirnir réðust inn í þorpið um hábjartan dag og hófu að skjóta á íbúana. Erindi mannanna var að stela nautgripum en að sögn vitna skutu þeir hvern sem fyrir þeim varð. Óttast er að fleiri lík eigi eftir að finnast í skóginum umhverfis þorpið en þangað flúðu margir hel- særðir. Ódæðismennirnir tilheyra hirð- ingjaættbálknum Karamojong sem er alræmdur fyrir árásir af þessu tagi. Úgandski herinn hefur gert til- raunir til að afvopna ættbálkinn en án teljandi árangurs. ■ FORSETINN SKÁLAR Vaira Vika-Freiberga (t.h.), forseti Lettlands, brosir og lyftir glasi eftir að úrslit þjóðarat- kvæðagreiðslunnar hafa verið kunngjörð. FRÁ KÁRAHNJÚKUM Impregilo hefur fengið frest eftir frest til að koma ýmsum heilbrigðismálum í lag. Lagfæringar ganga treglega Verulega vantar upp á að starfsemi Impregilo við Kárahnjúka sé eftir settum reglum. Einungis eftir að til stóð að innsigla mötuneyti aðalbúða, eftir ítrekaðar áminningar, var hlaupið til og málum kippt í liðinn. VESTMANNAEYJAR „Þetta eru reikningar sem ekki fóru í þann farveg sem þeir áttu að fara í starfsemi Þróun- arfélagsins. Ég kann ekki skýringu á því,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sem tók við starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum í júlí, um reikninga sem nú hafa fundist óvænt. HESTAKERRA FAUK Á Selfossi tókst stór hestakerra á loft og fauk á ljósastaur. Staurinn lagðist niður og hestakerran skemmdist talsvert. Lögregla þar fékk einnig tilkynningar um að þak- plötur hefðu fokið af á Selfossi eða í Hveragerði. VINNUPALLAR HRUNDU Í Vest- mannaeyjum var talsverður vind- ur og nokkuð um smárusl sem fauk um bæinn. Vinnupallar sem voru við Framhaldsskólann hrundu í verstu kviðunni og var það mesta tjónið vegna veðursins. FÁ SKIP Á SJÓ Tilkynningarskyld- an vissi af 83 skipum á sjó um há- degisbilið. Engir fiskibátar voru úti enda bræla á öllum miðum. FOK Á ÍSAFIRÐI Mikill vind- strekkingur var á Ísafirði. Varð talsvert vart við rusl sem fauk um bæinn og varð smávægilegt eignatjón þegar mark af knatt- spyrnusvæði bæjarins fauk á bif- reið í grenndinni. VANDRÆÐI Á HOLTAVÖRÐUHEIÐI Lögregla, björgunarsveitir og starfsmenn Vegagerðarinnar stóðu í ströngu á Holtavörðuheiði en þar var aftakaveður fram eftir degi. Lentu margir ökumenn í vandræðum, þar á meðal nokkrir bílar erlendra ferðamanna sem treystu sér ekki til að halda för sinni áfram enda kafaldsbylur og hálka á veginum. TOGARI HÆTT KOMINN Með snar- ræði tókst björgunarsveitinni á Sauðárkróki að koma í veg fyrir að rækjutogari losnaði frá bryggju. Eftir ítrekaðar tilraunir tókst að festa bátinn tryggilega.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.