Fréttablaðið - 22.09.2003, Side 6

Fréttablaðið - 22.09.2003, Side 6
6 22. september 2003 MÁNUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 78,39 -0,56% Sterlingspund 127,43 0,17% Dönsk króna 11,91 -0,43% Evra 88,53 -0,39% Gengisvísitala krónu 125,90 -0,08% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 993 Velta 31.215 milljónir ICEX-15 1.826 0,34% Mestu viðskiptin Sjóvá-Alm. tryggingar hf 9.291.074.502 Íslandsbanki hf. 9.009.298.316 Fjárf. Straumur hf 4.042.096.617 Mesta hækkun Marel hf. 4,10% Síldarvinnslan hf. 3,85% Samherji hf. 2,08% Mesta lækkun Nýherji hf. -3,16% Fiskmarkaður Íslands hf. -2,56% Jarðboranir hf. -1,18% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ 9.644,8 -0,1% Nasdaq 1.905,7 -0,2% FTSE 4 .257,0 -1,3% DAX 3.578,7 -0,9% NK50 1.419,4 0,1% S&P 1.036,3 -0,3% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Íslandsmeistarar KR í knattspyrnufengu slæma útreið á laugardag í loka- leik sínum á Íslandsmótinu í ár. Gegn hverjum léku þeir og hvernig fór leikurinn? 2Landsbanki Íslands hefur leikið lykil-hlutverk á síðustu vikum í uppstokkun í viðskiptalífinu. Hvað heita bankastjórar Landsbankans? 3Hver leikur Mikka ref í nýrri upp-færslu Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi? Svörin eru á bls. 26 Stefna Vegagerðinni: Bláhornið einangrað VERSLUN „Við erum með lokað enda er engin aðkoma lengur fyrir við- skiptavini,“ segir Ólafur Gíslason, einn eigenda söluturnsins Blá- hornsins við Smiðjuveg í Kópa- vogi. Ólafur segir að á fimmtudag í síðustu viku hafi borist dreifi- miði um að framkvæmdir myndu hefjast tveimur dögum síðar. Þetta gekk eftir og allt var sund- urgrafið í kringum Bláhornið. Þar með hrundu viðskiptin. „Öll viðskipti voru þar með í uppnámi. Það er óeðlilegt að bæj- arfélag komist upp með að loka á svona rekstur með engum fyrir- vara,“ segir Ólafur. Það komu þrír viðskiptavinir á laugardag í stað nokkurra hundruða, eins og venjan er að komi á laugardegi,“ segir Ólafur. Hann segir að vitað hafi verið að framkvæmdir myndu hefjast við söluturninn en eigendur hafi verið fullvissaðir um að þær myndu ekki hefjast fyrr en um miðjan október og ljúka í byrjun nóvember. Hann segist hafa spurst fyrir um málið fyrir tveim- ur vikum en þá fengið þau svör að ekki stæði annað til en að hefja framkvæmdir í október. „Við erum búnir að stefna Kópavogs- bæ og Vegagerðinni. Krafan er sú að teknar verði upp viðræður um bætur til okkar. ■ Kópavogsbær efast um vald úrskurðarnefndar STJÓRNSÝSLA Kópavogsbær telur Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála fara út fyrir vald- svið sitt og vera óþolandi svifa- seina. Þetta kemur fram í kvörtun sem Sigurður Geir- dal bæjarstjóri sendi umhverf- isráðuneytinu. Sigurður seg- ir mikinn málafjölda ekki réttlæta þann seinagang sem verið hafi á afgreiðslu mála hjá úrskurðar- nefndinni . „Dæmi eru um að bæj- arfélaginu berist ekki upplýsing- ar um að málum hafi verið skotið til nefndarinnar fyrr en nær tveimur árum eftir að kæra er lögð fram,“ segir hann. Bæjarstjórinn minnir á að nefndin hafi í mesta lagi þriggja mánaða frest til að kveða upp úr- skurði: „Gangur mála er ekki síð- ur óþolandi fyrir hinn almenna borgara.“ Einnig segir Sigurður að úr- skurðarnefndin hafi farið út fyrir valdsvið sitt með því að fella úr gildi deiliskipulag fyrir Lindir IV í Kópavogi á grundvelli atriða sem sá sem kærði skipulagið hafði ekki byggt á. Ámælisvert sé að úr- skurður um Lindir IV sé kveðinn upp í febrúar en berist bænum ekki fyrr en fyrir skömmu: „Við þessi vinnubrögð verður ekki unað.“ Umhverfisráðuneytið fram- sendi kvörtun Kópavogsbæjar til sjálfrar úrskurð- arnefndarinnar. Hjalti Stein- þórsson, fram- k v æ m d a s t j ó r i nefndarinnar, seg- ir í svari sínu að mannleg mistök hafi valdið því að K ó p a v o g s b æ r frétti ekki af áður- nefndri kæru fyrr en nær tveimur árum eftir að hún var lögð fram. Mál hafi safnast fyrir og af- greiðslutími stöðugt lengst vegna mikils málafjölda. Snemma árs 2002 hafi „loks“ fengist heimild umhverfisráðuneytisins til að ráða annan lögfræðing og í vor heimild til að ráða þriðja lögfræðinginn, tímabundið í eitt ár. Afgreiðslutími muni styttast þó ekki komi til greina að breyta því vinnulagi „að rannsaka hvert mál af kostgæfni“. Hjalti segir rangt að úrskurð- arnefndin hafi farið út fyrir valdsvið sitt með því að byggja á atriðum sem kærandi í Lindar- málinu hafi ekki nefnt. Nefndin hafi bæði leiðbeiningarskyldu og rannsóknarskyldu. Ekki sé rétt að nefndur úrskurður um Lindir hafi ekki verið sendur fyrr en seint og um síðir. Hann hafi verið sendur samdægurs í tölvupósti. gar@frettabladid.is FRÍTT Í STRÆTÓ Í DAG Menn eru hvattir til að skilja bílinn eftir heima og slaka vel á með bók í hönd á leið í vinnu. Frítt í strætó í dag: Bók við hvert sæti SAMGÖNGUR Lok evrópskrar sam- gönguviku eru í dag og lýkur henni með bíllausum degi um alla álfuna. Af því tilefni mun Strætó bs. bjóða öllum frítt í vagnana. Á meðan menn sitja og láta fara vel um sig á leið í vinnu geta þeir lit- ið í bók sem verður í hverju sæti. Það er Edda útgáfa sem býður upp á þá andlegu skemmtun. Ásgeir Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs. segir Strætó hafa tekið þátt í Evrópskri samgönguviku en hápunkturinn sé að bjóða öllum frítt í vagnana. „Við vonum sannarlega að fólk skilji bílana eftir heima og noti þetta tækifæri til að láta fara vel um sig og slaka á. Íslendingar hafa verið afskaplega latir við að taka strætó og greinilega ekki átt- að sig á hve þægilegt það er,“ seg- ir Ásgeir. Áður hafa bækur verið til stað- ar í vögnunum í samvinnu við Eddu útgáfu og reyndist það mjög vel að sögn Ásgeirs. „Það er okkar stóra verkefni að endurskoða leið- arkerfið einmitt með það fyrir augum að það verði skilvirkt þannig við komum fólki vel og fljótt á milli staða. Eitt af því er að auka tíðnina á álagstímum. Það þýðir ekki að berja hausnum við steininn því ef enginn vill koma er eitthvað að,“ segir Ásgeir. ■ Á FLÆÐISKERI Ólafur Gíslason, einn eigenda Bláhornsins, segir að framkvæmdir Kópavogsbæjar og Vegagerðar kosti reksturinn hátt í tvær milljónir króna. Með Ólafi á myndinni er eiginkona hans Guðborg Ómarsdóttir, og Jón Eiríksson, eigandi hússins, er lengst til hægri á myndinni. SIGURÐUR GEIRDAL Gangur mála er óþolandi, segir bæjarstjórinn í Kópavogi. Kópavogsbær gagnrýnir Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála harðlega fyrir seinagang og fyrir að fara út fyrir valdsvið sitt. Nefndin segist starfa innan valdsviðs síns. Rétt sé þó að mál hafi dregist vegna manneklu hjá nefndinni. Það sé að leysast með auknum mannafla. „Við þessi vinnubrögð verður ekki unað. KÓPAVOGUR Framkvæmdastjóri Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála segir ekki koma til greina að breyta því vinnulagi sem nefndin hafi að rannsaka hvert mál af kostgæfni. Átök í Breiðholti: Einn á slysadeild LÖGREGLUMÁL Hópum manna af ís- lenskum og erlendum uppruna laust saman við verslun Select í Breiðholti. Var beitt hafnabolta- kylfum og hnífum í átökunum og var einn fluttur á slysadeild með smávægilegan skurð. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem hópar Íslendinga og fólks af er- lendum uppruna eiga í átökum í Breiðholti og hefur lögreglan mikl- ar áhyggjur af sífellt ægilegri vopnaburði þessara aðila. ■ VÍSITALA BYGGINGARKOSTNAÐAR Reiknuð eftir verðlagi um miðjan september er vísitala byggingar- kostnaðar 287,3 stig og hækkar um 0,51% frá fyrri mánuði. Sam- kvæmt Hagstofu Íslands hefur vísi- talan hækkað um 3,6% síðasta ár ■ Vísitala FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.