Fréttablaðið - 22.09.2003, Síða 8

Fréttablaðið - 22.09.2003, Síða 8
8 22. september 2003 MÁNUDAGUR ■ Dómsmál Lof sé Pútín „Og helzta afrek Pútíns Rúss- landsforseta virðist vera að snúa þeirri þróun við.“ Leiðarahöfundur hefur áhyggjur af því að þróun íslensks viðskiptalífs líkist því sem gerðist í Rússlandi. Morgunblaðinu, 21. september. Leiðréttum þetta á þingi „Því má aldrei gleyma – og það á ekki sízt við um alla þá sem mest koma við sögu í svipting- um samtímans – að Alþingi Ís- lendinga hefur síðasta orðið.“ Leiðari Morgunblaðsins, 21. september. Kannski kominn tími til? „Þótt Eimskip væri hlutafélag að forminu var því í upphafi ekki ætlað að skapa eigendum sínum sérstakan fjárhagslegan ágóða.“ Guðmundur Magnússon um Eimskip. Fréttablaðinu, 21. september. Orðrétt Albínóagórillan Snjókorn er dauðvona: Sú eina sinnar tegundar í heiminum BARCELONA, AP Gestum hefur fjölgað verulega í dýragarðinum í Barcelona á Spáni síðan tilkynnt var að albínóagórillan Copito de Nieve væri dauðvona. Górillan, sem talin er vera sú eina sinnar tegundar í heiminum, þjáist af húð- krabbameini og á aðeins fáeina mánuði eftir ólifaða, að sögn dýra- lækna. Vegna litarhaftsins er Copito de Nieve, eða Snjókorn, eins og nafn hans útleggst á íslensku, afar við- kvæmur fyrir geislum sólarinnar. Hann greindist með húðkrabba- mein árið 2001 og þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir dýralækna tókst ekki að stöðva framgang sjúkdómsins. Copito er talinn vera nálægt fer- tugu en í sínum náttúrulegu heim- kynnum ná górillur aðeins um 25 ára aldri. Albínóagórillur eru afar sjald- gæfar og er Copito sú eina sem vit- að er um í heiminum. Hann hefur getið af sér 22 afkvæmi en ekkert þeirra hefur erft litarhaft hans. Að sögn borgaryfirvalda er Copito mikilvægur hluti af ímynd Barcelona og eru uppi áform um að minnast hans með því að nefna götu í höfuðið á honum. ■ Nemendafélög fá ekki úthlutað kennitölu FÉLÖG Stúdentaráð Háskóla Ís- lands undirbýr nú stjórnsýslu- kæru vegna úrskurðar Fyrir- tækjaskrár ríkisskattstjóra sem synjaði beiðni nýstofnaðs félags fornleifafræði- nema um útgáfu kennitölu. Ný lög um fyrirtækja- skrá tóku gildi 1. júlí sl. og með þeim var rekstur skrárinnar, og vald til úthlutun- ar kennitala til félaga, fært frá Hagstofu Íslands til embættis Rík- isskattstjóra. Beiðninni var hafnað á þeim forsendum að ekki fengist séð af samþykktum félagsins að því væri ætlað að fara með eigna- umsýslu eða stunda atvinnu- starfsemi. Vegna úrskurðar Rík- isskattstjóra er Félagi fornleifa- fræðinema ókleift að stofna bankareikning því kennitala er forsenda þess að lögaðilar geti komið á fót viðskiptareikning- um hjá bankastofnunum. Davíð Gunnarsson, formaður Stúd- entaráðs, segir að þröng túlkun Ríkisskattstjóra á lögunum geti haft ýmis óæskileg áhrif. „Það er áhyggjuefni ef fólk sem vill stofna félög þarf að reka þau á sína persónulegu ábyrgð, á sín- um eigin kennitölum. Þetta er t.a.m. ákaflega erfitt þegar um nemendafélög er að ræða þar sem stjórnarskipti eru tíð og mikilvægt að ákveðin formfesta sé á rekstrinum,“ segir hann. Í kæru Stúdentaráðs er því haldið fram að túlkun Ríkis- skattstjóra á lögum um fyrir- tækjaskrá geri það að verkum að í raun sé ekki mögulegt að stofna ný áhugamannafélög og það hljóti að vera „óæskilegt í nútímalýðræðissamfélagi“. Þá nefnir Stúdentaráð í kæru sinni að í greinargerð með lögum um fyrirtækjaskrá nr. 17/2003 sé sérstök áhersla lögð á að túlkun á lögunum sé rúm. Þar segir að „húsfélög, veiðifélög, og önnur lögbundin samtök, ýmiss konar hugsjónafélög og anna[r] form- bundinn félagsskap[ur] einstak- linga um tiltekna eign eða eign- ir“ séu þess eðlis að óheppilegt sé að einstaklingar í forsvari þurfi að axla fjárhagslega ábyrgð. Í greinargerðinni segir svo: „Því er nauðsynlegt að fyr- irtækjaskrá hafi talsvert svig- rúm til skráningar, þegar svo háttar sem að framan greinir, þótt ekki sé um eiginlegan fyrir- tækjarekstur að ræða.“ thkjart@frettabladid.is Ríkisskattstjóri um fyrirtækjaskrá: Forráða- menn stofni reikninga FÉLÖG Indriði H. Þorláksson rík- isskattstjóri segir að embættið hafi það hlutverk að framfylgja lögum um fyrirtækjaskrá og segir að gagnvart ríkisskatt- stjóraembættinu snúist málið ekki um úthlutun kennitölu heldur hvort viðkomandi félög eigi erindi á fyrirtækjaskrá. Hvað varðar áhugamannafélög segir Indriði: „Viðkomandi félag þarf ekki að vera með kennitölu. Ef forráðamaður eða forsvars- maður er með kennitölu er það fullnægjandi [til að stofna bankareikning]. Um leið og fé- lag er farið að vera með starf- semi, rekstur eða þess háttar, og ef félagsskapur er farinn að greiða laun, þá eru komnar skattalegar skyldur.“ Þegar rekstur félags er orðinn svo um- fangsmikill ætti ekki að reynast erfitt að fá úthlutað kennitölu. ■ YASSER ARAFAT Ahmed Qureia, verðandi forsætisráðherra Palestínumanna, bendir á að Arafat gegni lykilhlutverki í friðarferlinu fyrir botni Mið- jarðarhafs og hvetur Bandaríkjamenn til að líta á hann sem bandamann. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna: Vísa ályktun á bug JERÚSALEM, AP Ísraelsk stjórnvöld hafa vísað á bug ályktun Allsherj- arþings Sameinuðu þjóðanna þar sem þess er krafist að þau dragi til baka hótanir sínar um að „fjar- lægja“ Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna. Ályktunin var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í Allsherjarþinginu fáeinum dög- um eftir að Bandaríkin beittu neitunarvaldi gegn sams konar ályktun í Öryggisráðinu. Í ályktun Allsherjarþingsins voru sjálfs- morðsárásir Palestínumanna gegn Ísraelum fordæmdar en þó ekki aðgerðir einstakra samtaka eins og Bandaríkjamenn höfðu krafist. ■ NEFBROT Í SJALLANUM Átján ára piltur hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi yfir að skalla annan mann í andlitið og nefbrjóta í Sjallanum á Akur- eyri. Pilturinn, sem hafði greitt fórnarlambinu 77 þúsund króna bætur, játaði brot sitt. UNNU SKEMMDIR Á SUMARHÚSI Átján ára piltur hefur játað að hafa haldið fjölmennt samkvæmi í óleyfi í sumarbústað sem Verk- stjórafélagið á að Vatnsenda í Ólafsfirði. Honum hafði verið synjað um leigu á bústaðnum. Miklar skemmdir voru unnar í húsinu. Vegna ungs aldurs pilts- ins var refsingu frestað. ALBÍNÓAGÓRILLAN SNJÓKORN Yfirmenn dýragarðsins í Barcelona hafa hvatt fólk til þess að koma að kveðja Copito de Nieve. SYNJAÐ Félagi fornleifafræðinema var synjað um út- hlutun kennitölu. Stúdentaráð vinnur að stjórnsýslukæru vegna málsins. Stúdentaráð hefur lagt fram stjórnsýslukæru því Ríkisskattstjóri synjar nemendafélögum um skráningu. Í greinargerð með nýjum lögum er sérstaklega talað um að veitt sé aukið svigrúm til starfsemi frjálsra félagasamtaka. DAVÍÐ GUNNARSSON Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Búða- og Stöðvarhreppur – Austurbyggð: Yfirburðasigur framsóknarmanna SVEITARSTJÓRNIR Framsóknar- flokkurinn sigraði í kosningum sem fram fóru á laugardag í nýju sameinuðu sveitarfélagi Búðahrepps og Stöðvarhrepps. Nafnið Austurbyggð hlaut flest atkvæði í kosningu um nafn á nýja sveitarfélagið. Tveir listar voru boðnir fram í kosningunni. Listi Framsókn- arfélaga Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar hlaut 288 at- kvæði, eða 69,4 prósent. Listi Samfylkingarinnar og óháðra hlaut 127 atkvæði, eða 30,6 pró- sent. Nafnið Austurbyggð fékk 166 atkvæði, Búða- og Stöðvar- hreppur 147 atkvæði, Suður- fjarðabyggð 52 atkvæði og Sjáv- arbyggð 40 atkvæði. „Helsta verkefnið er að halda áfram stritinu. Það þarf að end- urskipuleggja starfsmannamál- in. Það þarf líka að hrista saman fólkið þannig að það upplifi sig sem eitt samfélag á einu svæði,“ segir Guðmundur Þorgrímsson, oddviti framsóknarmanna. Þrátt fyrir að nafnið Austur- byggð hafi fengið flest atkvæði er óvíst að það verði nafn nýja sveit- arfélagsins. „Sveitarstjórn ákveð- ur nafnið og mun reyna að koma því til leiðar að vilji íbúanna fái að ráða. En þar þurfum við að eiga við Örnefnanefnd sem ekki gat lagt blessun sína yfir þetta nafn fyrir kosninguna.“ ■ AUSTURBYGGÐ HEITIR ÞAÐ Framsóknarmenn unnu kosningar í sameinuðu sveitarfélagi sem fékk nafnið Austurbyggð. FÍKNIEFNAMÁL Á BLÖNDUÓSI Lögreglan á Blönduósi handtók mann sem var með fíkniefni í fórum sínum. Viðurkenndi mað- urinn að efnin hefðu verið ætluð til sölu á Blönduósi. Einnig fundust fíkniefni í bíl sem stöðvaður var á leið norður í land. Var það efni til einka- neyslu. ■ Lögreglufréttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.