Fréttablaðið - 22.09.2003, Side 9
9MÁNUDAGUR 22. september 2003
SÍMINN INTERNET
… á enn meiri hra›a fyrir sama ver›
Vi›skiptavinir Símans fá nú háhra›a internettengingu me›
1536 Kb/s flutningshra›a á sama ver›i og 512 Kb/s kostu›u á›ur.
Ekkert stofngjald til og me› 20. september.
flú getur gert fla› hvar sem erflrá›laust internet
Kynntu flér sérsni›nar internetlausnir
í næstu verslun Símans og á siminn.is.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
N
M
1
0
1
7
5
Tilbo› á flrá›lausu Interneti:
A›eins 2.490 kr.
Innifali›: • Beinir (router) me› flrá›lausum sendi
• firá›laust netkort í fartölvu
• Smásía
Tilbo›i› mi›ast vi› 12 mána›a áskrift a› ADSL 1500
tengingu hjá Símanum Internet.
ATH.
Áskriftarlei›in ADSL 512 ver›ur felld ni›ur og
núverandi áskrifendur a› fleirri lei› færast
sjálfkrafa í ADSL 1500.
ADSL 1500
Fleiri konur en karlar starfa við skóla á framhaldsskólastigi:
Rúmlega 80 prósent
skólameistara karlar
SKÓLAMÁL Um 54% starfsmanna
skóla á framhaldsskólastigi eru
konur, en af 36 skólameisturum
framhaldsskóla eru 29 karlar, eða
81%. Aðstoðarskólameistarar eru
27, þar af 22 karlar eða 81%.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu Íslands voru starfs-
menn skóla á framhaldsskólastigi
2.200 í mars 2002, þar af tæplega
1.600 við kennslu. Karlar eru í
miklum meirihluta í stjórnunar-
störfum en þegar kynjahlutfall
starfsmanna á skrifstofu, við
ræstingar eða þjónustu eru skoð-
uð snýst það við. Þar er hlutur
kvenna á bilinu 73% til 84%.
Alls starfa 1.572 af um 2.200
starfsmönnum skólanna við
kennslu. Þótt konur séu fjölmenn-
ari í heildina starfa fleiri karlar
við kennslu en konur. Um 54%
kennara eru karlar og 46% konur.
Næstum þrír af hverjum fjór-
um kennurum eru 40 ára og eldri.
Um 76% starfsfólks við kennslu
hefur lokið fyrsta prófi á háskóla-
stigi og um 73% þeirra sem störf-
uðu við kennslu í mars árið 2002
höfðu kennsluréttindi. Gögnin
sem Hagstofan vann þessar tölur
úr eru fengin frá Fjársýslu ríkis-
ins og frá skólunum. ■
KONUR Í MINNIHLUTA
Þótt fleiri konur starfi við framhaldsskólana í heildina en karlar starfa fleiri karlar við
kennslu en konur. Um 54% kennara eru karlar og 46% konur.
Baráttan gegn malaríu:
Gates gefur
milljarða
MÓSAMBÍK, AP Bill Gates, stjórnar-
formaður Microsoft, segist ætla
að gefa sem svarar rúmlega
þrettán milljörð-
um íslenskra
króna til rann-
sókna á malaríu.
Sjúkdómurinn,
sem berst á milli
manna með
moskítóflugum,
dregur um eina
milljón manna til
dauða á ári
hverju.
Gates til-
kynnti um fram-
lag sitt þegar
hann ávarpaði
starfsmenn á sjúkrahúsi í Mósam-
bík þar sem hann er staddur
ásamt konu sinni. Styrkurinn mun
meðal annars renna til rannsókna
sem miða að því að finna bóluefni
gegn malaríu og þróa ný lyf. ■
Tígrísdýr skotið:
Drukknir í
dýragarði
BAGDAD, AP Bandarískur hermað-
ur var bitinn af tígrísdýri þegar
hann teygði sig inn fyrir rimlana
á búri í dýragarðinum í Bagdad.
Félagi mannsins skaut dýrið til
bana. Að sögn öryggisvarðar í
dýragarðinum sátu hermennirnir
að drykkju þegar atvikið átti sér
stað.
Dýragarðurinn hefur verið op-
inn almenningi síðan 20. júlí en
honum var lokað vegna endurbóta
í stjórnartíð Saddams Husseins.
Fjölmörg dýr létust eða sluppu úr
búrum sínum þegar Bandaríkja-
menn gerðu innrás í Bagdad og
ráku starfsmenn dýragarðsins á
brott. ■
Wesley Clark:
Var andsnú-
inn innrás
IOWA, AP Wesley Clark, fyrrum
hershöfðingi, sem gefið hefur
kost á sér í prófkjöri demókrata
vegna forsetakosninganna 2004,
hefur lýst því yfir að hann hefði
kosið gegn heimild Bandaríkja-
forseta til þess að ráðast inn í
Írak. Kom þetta fram á fundi
frambjóðandans í Iowa City í
Iowa á föstudag. Á fimmtudag
hafði hann látið þau ummæli
falla að hann væri ekki viss hve-
rnig hann hefði greitt atkvæði
um málið.
Talið er að Clinton-hjónin muni
styðja framboð Clarks þótt engin
opinber yfirlýsing þess efnis hafi
komið frá þeim. Clark, sem lýsti
yfir framboði sínu sl. þriðjudag,
er af mörgum talinn sá frambjóð-
andi sem líklegastur er til þess að
fella George W. Bush í kosningun-
um í nóvember á næsta ári. ■
GJAFMILDUR
AUÐKÝFINGUR
Bill Gates heldur á
lítilli stúlku á
sjúkrahúsi í Mó-
sambík.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T