Fréttablaðið - 22.09.2003, Page 10
Morgunblaðið kaus að líkjaástandinu á íslensku viðskipta-
lífi við Rússland eftir fall Kommún-
istaflokksins í leiðara sínum í gær.
Það má ekki skilja annað af leiðaran-
um en að nýríkir „óligarkar“ hafi
misnotað vanþroskaða umgjörð ís-
lensks viðskiptalífs og sölsað undir
sig eignir og fyrirtæki.
Morgunblaðið ákallar kjörna full-
trúa þjóðarinnar að fara að dæmi
Pútíns Rússlandsforseta og snúa
þessari þróun við.
Það er vel til fundið hjá Morgun-
blaðinu að líkja íslensku samfélagi
við austantjaldslöndin stuttu eftir
fall kommúnismans. Þessi samlíking
hefur margsinnis verið notuð á þess-
um vettvangi. Við Íslendingar bjugg-
um áratugum saman við lokað kerfi
þar sem viðskipti og stjórnmál voru
samþætt en erum nú að stíga fyrstu
skrefin í átt að að opnu lýðræðislegu
samfélagi. Þessum breytingum fylg-
ja skiljanlega átök. Þeir sem sóttu
stöðu sína í hið gamla kerfi eru að
missa tökin en nýir aðilar að hasla
sér völl.
Eins og í Rússlandi gefa þeir sem
gamla kerfið fóstraði ekki stöðu sína
eftir möglunarlaust. Þeirra hug-
mynd var aldrei sú að missa tökin
þótt kerfinu væri breytt. Pútín sjálf-
ur er til dæmis gamall flokkshestur í
Kommúnistaflokknum; traustur
stjórnandi leynilögreglunnar KGB.
Gorbatsjov trúði í einlægni að gömlu
valdamennirnir gætu breytt kerfinu
án þess að missa tökin á þróuninni.
Morgunblaðið hefur fengið lánaða
sýn þessara manna á ástandið í
Rússlandi. Samkvæmt henni standa
allir aðrir en gömlu valdaklíkurnar
fyrir stjórnleysi og upplausn. Pútín
gengur svo langt að siga lögreglunni,
ríkissaksóknara og leyniþjónustunni
á þá kauphéðna sem voga sér að
óhlýðnast tilskipunum hans um að
kaupahéðnar skuli láta fjölmiðla og
stjórnmál afskiptalaus. Það er hans
aðferð við að snúa þróuninni við.
Hann lætur nýjum aðilum eftir hluta
viðskiptalífsins en skilgreinir ný
heimalönd gömlu valdhafanna sem
ríkisvaldið, stjórnmál og fjölmiðla
og veigrar sér ekki við að misnota.
Fæstir aðrir en Morgunblaðið leggja
trúnað á málatilbúning Pútíns. Nú
síðast veittu bresk yfirvöld einum
hinna landflótta viðskiptajöfra hæli
og neituðu að framselja hann til
Rússlands á grundvelli vafasamra
ákæra ríkissaksóknara Rússlands.
Það á eftir að koma í ljósa hvaða af-
leiðingar fall Kolkrabbans hefur á
Íslandi. Vonandi munu menn átta sig
á að Kolkrabbinn féll á eigin bragði.
Allt of lengi gat fámennur hópur
manna haldið völdum í íslensku
viðskiptalífi með því að ráðstafa
annarra manna fé – hluthafa, lífeyr-
isþega og sjóðum ríkisbankanna – í
eigin þágu. Með opnari viðskiptum
gekk þetta ekki lengur; hald þeirra á
fyrirtækjunum var of veikt. Þeir
misstu tökin – miklu fremur en að
einhver hafi losað um þau. Fall Kol-
krabbans ætti ekki að vera nokkrum
harmdauði – og allra síst tilefni til
hvetja Alþingi til að hefna hans eða
endurreisa. ■
Í Fréttablaðinu 11. septembersíðastliðinn birtist grein eftir
framkvæmdastjóra LÍÚ sem hann
nefnir „Er tími
loddaranna ekki
liðinn?“ Eins og títt
er úr þeim ranni er
hreytt orðum í þá
sem eru annarrar
skoðunar. Fyrir
barðinu verða, auk
t r i l l u k a r l a n n a ,
hluti alþingis-
manna og meiri-
hluti þeirra sem
sátu landsfund
Sjálfstæðisflokks-
ins. Landsfundar-
fulltrúarnir sam-
þykktu tillögu um
línuívilnun til dag-
róðrabáta og „lodd-
ararnir“ ætla sér
að fá hana sam-
þykkta sem lög frá Alþingi. Í
greininni getur framkvæmda-
stjóri LÍÚ um mótsögn í tillögum
landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Þar gerir hann því skóna að full-
trúar landsfundarins af Snæfells-
nesi sem samþykktu tillöguna
hafi ekki vitað hvað þeir voru að
samþykkja.
Upplýst fólk
Sá hópur sem framkvæmda-
stjórinn tekur hér á beinið er, eft-
ir því sem ég þekki best til, upp-
lýst fólk sem ég fullyrði að vissi
hvað það var að samþykkja. Það
vissi að línuívilnun mundi styrkja
hinar dreifðu byggðir, með aukn-
um umsvifum, aukinni atvinnu,
meiri tekjum. Það vissi að línu-
ívilnun mundi auka vægi um-
hverfisvænna veiða, sem skilar
komandi kynslóðum betra lífsvið-
urværi í formi gjöfulla fiskimiða.
Það vissi að línuívilnun mundi
skila ferskara hráefni til vinnslu
og þar með bestu möguleikum á
hágæðavinnslu þess. Það vissi að
línuívilnun mundi skila hærra út-
flutningsverðmæti á hvert kíló
sem tekið væri úr auðlindinni.
Auk Snæfellinganna vissi meiri-
hlutinn á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins þetta líka.
Engin fyrirstaða
Í dag fylgist sá hópur sem
samþykkti tillögu Guðmundar
Halldórssonar um línuívilnun á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
með fulltrúum flokksins á Al-
þingi. Hann hlýtur að ætlast til
þess að samþykktin verði fest í
lög og komi til framkvæmda sem
fyrst. Þeir sem verða undir á
landsfundi verða einfaldlega að
sætta sig við það, en ekki hreyta
í flokkssystkini sín.
Í flestum málum sem stjórnar-
flokkarnir leggja fyrir Alþingi
gerist það að stjórnarandstaðan
leggst gegn þeim. Línuívilnun er
ekki eitt þessara málefna, allir
flokkar sem nú sitja á Alþingi
hafa lýst velvilja til hennar og rík-
isstjórnin hefur skráð hana í
stjórnarsáttmálann. Það er því
engin fyrirstaða að hún komi til
framkvæmda í haust eins og for-
sætiráðherra benti réttilega á á
Ísafirði 22. apríl síðastliðinn. ■
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
■ skrifar um Pútín og óligarkana.
10 22. september 2003 MÁNUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Rafpóstur auglýsingadeildar:
auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Þegar ég var að alast upp varÞjóðviljinn daglega með nýj-
ar og svo magnþrungnar af-
hjúpanir á svimandi gróða
heildsalanna að mér stendur
satt að segja enn svolítill stugg-
ur af þessu ískyggilega starfs-
heiti: heildsali, en ekki síður
þessu voðalega orði: gróði. Og
þegar færustu sérfræðingar
blaðsins í fláttskap og vélum
kaupmangaranna köfuðu veru-
lega djúpt í íslenska auðvalds-
kerfið var stundum talað um
„fjölskyldurnar fjórtán“ sem
ættu allt hér sem vert væri að
eiga. Kannski var það hugtak að
einhverju leyti dæmigert fyrir
íslenska þjóðfélagsumræðu sem
endar stundum í stuðlum: fjöl-
skyldurnar voru víst ekkert
fjórtán – þetta hljómaði bara
betur þannig – og þetta voru
ekkert fjölskyldur, heldur bara
einhverjir karlar sem tengdust
allir á allra handa misjafnan
máta, til dæmis í gegnum ættir
en líka í gegnum skóla, frímúr-
araregluna, laxveiðar og auðvit-
að Flokksstarfið þar sem allir
þessir karlar fengu aðgang að
hinu pólitíska valdi. Smám sam-
an byggðist upp veldi sem
Björgólfur Guðmundsson hefur
kennt við „flókin eignatengsl“,
hópur fyrirtækja sem stundaði
virka samvinnu – eða ættum við
kannski frekar að kalla það
virka ósamkeppni?
Sennilega er það misskilning-
ur að kapítalistar séu áhugasam-
ir um samkeppni – þeir hafa
áhuga á gróða og samkeppni er
ekki gróðavænleg: saga okkar
er að minnsta kosti sú að ís-
lenskir kapítalistar séu umfram
allt ósamkeppnisfærir, með öðr-
um orðum geysilega slyngir og
færir í því að komast hjá sam-
keppni, nokkurs konar sam-
vinnumenn: þeir bindast sam-
tökum um að reyna að hafa af
okkur hinum sem allra mest fé.
Dómkirkjan
Hugtakið um Fjölskyldurnar
fjórtán breyttist allt í einu í Kol-
krabbann, en þetta nafn fengu
þessir karlar á sig að því er mig
minnir eftir að ítalskur sjón-
varpsþáttur var sýndur hér um
myrkraverk mafíunnar á
Sikiley. Manni skildist að búkur-
inn sem allir angarnir iðuðu út
frá væri Eimskipafélag Íslands.
Þetta skipafélag hefur öðlast
táknræna merkingu og furðu
mikið verðmæti í sjálfu sér sem
yfirskyggir gersamlega þann
arð sem hafa má af sjálfri starf-
semi þess: eins og öll merk fyr-
irtæki er það nokkurs konar líf-
vera. Eimskipafélagið er dóm-
kirkja viðskiptalífsins; bara
nafnið hefur á sér virðulega
spanskgrænu úreltrar orðanotk-
unar og er raunar byggt í kring-
um orð sem öðlaðist aldrei full-
an þegnrétt í íslensku máli. Sem
kann að vera við hæfi, því að
Thor Jensen, helsti hvatamaður-
inn að stofnun félagsins og sá
sem gaf því merki sitt og konu
sinnar Margrétar Þorbjargar,
Þórs/Thors-hamarinn, fékk ekki
einu sinni að sitja þar í stjórn,
enda litið á hann sem Dana og
þar með útlending – og ekkert
hefði orðið úr stofnun félagsins
ef vestur-Íslendingar hefðu ekki
stutt það með ráðum og dáð og
stórum upphæðum.
Það er því visst sögulegt rétt-
læti í því þegar Björgólfur Guð-
mundsson hefur nú náð völdum í
félaginu, ekki bara fyrir hinar
augljósu sakir Hafskipsmálsins
og ekki bara sökum þess að
Thor Jensen er tengda-afi hans
– sé hægt að tala um slíkt – held-
ur er Björgólfur líka fulltrúi
þeirra athafnamanna sem haldið
var utan við „viðhafnarstofu ís-
lenskrar kaupsýslustéttar“ eins
og Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur orðar það nokk-
uð hnyttilega í fróðlegri grein
um sögulegan bakgrunn þessara
viðburða í blaðinu í gær.
Björgólfur hefur ekki hreiðrað
um sig í hægindastólum ósam-
keppninnar heldur kemur hann
utan frá með sinn auð og sitt afl,
hann kemur inn í félagið sem
glæsilegur fulltrúi einkafram-
taksins en hann er líka og um
leið fulltrúi samkeppninnar
fremur en ósamkeppninnar sem
við höfum búið svo lengi við:
hann er fulltrúi þess heilbrigða
kapítalisma að evrópskum
hætti sem vonandi er genginn í
garð hér á landi, fyrst og fremst
fyrir tilverknað EES, en gjaldið
sem Íslendingar þurftu sárnauð-
ugir að greiða fyrir aðgang að
mörkuðum Evrópu var að inn-
leiða hér samkeppni á sem flest-
um sviðum.
Í augum okkar sem stöndum
hjá kann það að virðast litlu
skipta hver á hvað í þessum við-
skiptaleik sem við heyrum um í
fréttum og lesum um í blöðum.
Hvað ragar það mig hver er í
stjórn Eimskipafélagsins? Ekki
nokkurn hlut. Hitt er mikilvæg-
ara: hinir ósamkeppnisfæru
virðast loksins á útleið. Nú bíður
maður bara eftir því að SÍS fái
líka makleg málagjöld. ■
Enn er beð-
ið á Hofsósi
Jón Gísli Jóhannesson, Hofsósi, skrifar:
Rúmt ár er liðið frá því sveit-arstjórnarkosningar fóru
fram. Eins voru kosnir fulltrúar
á Alþingi í maí 2003. Það fólk
sem kosið var virðist ekki skilja
vandann í atvinnumálum á
Hofsósi og sveitarstjórnin virð-
ist ekki hafa mikinn skilning á
því sem er að gerast hér í sveit-
arfélaginu. Þessir fulltrúar ættu
að fara að stinga saman nefjum
og gera eitthvað fyrir kjósend-
ur. Þess má geta að fulltrúarnir
komu hér um bil á fjórum fótum
til að sníkja atkvæði af okkur og
var þá öllu fögru lofað. Það tapa
allir á þessari bið. Hvað þarf að
gera til að kjörnir fulltrúar okk-
ar vakni af þessum djúpa
svefni? Þessir menn ættu að sjá
sóma sinn í því að koma hingað
og fara að gera eitthvað fyrir
fólkið á Hofsósi.
Undirritaður hélt fund mánu-
daginn 15. september sl. með
Sigurjóni Þórðarsyni og Mar-
gréti Sverrisdóttur, fulltrúum
Frjálslynda flokksins, og fyrr-
verandi starfsfólki fiskvinnsl-
unnar Höfða um atvinnumál á
Hofsósi. Á fundinum var sam-
þykkt áskorun til verkalýðsfor-
ystu, sveitarstjórnar og þing-
manna að bregðast nú þegar við
vandanum sem við blasir í at-
vinnumálum á Hofsósi. 18. sept-
ember fundaði sami hópur með
Jóhanni Ársælssyni og Önnu
Kristínu Gunnarsdóttur, fulltrú-
um Samfylkingar, um vandann.
Engin viðbrögð hafa verið af
hálfu sveitarstjórnar þegar
þessar línur er settar á blað. ■
Andsvar
ÖRN PÁLSSON
■
framkvæmdastjóri
Landssambands smá-
bátaeigenda skrifar
um línuívilnun.
Hinir Ósam-
keppnisfæru
■ Bréf til blaðsins
Línuívilnun skref
í átt að vistvænni
fiskveiðistjórnun
Er kominn tími fyrir Pútín?
■
Í flestum mál-
um sem stjórn-
arflokkarnir
leggja fyrir Al-
þingi gerist það
að stjórnarand-
staðan leggst
gegn þeim.
Línuívilnun er
ekki eitt þess-
ara málefna,
allir flokkar
sem nú sitja á
Alþingi hafa
lýst velvilja til
hennar og ríkis-
stjórnin hefur
skráð hana í
stjórnarsátt-
málann.
GUÐMUNDUR
ANDRI
THORSSON
■
skrifar um andúð
Guðbergs Bergs-
sonar á bók-
menntahátíðum.
Um daginnog veginn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Orku
-kindur
Angela Baldvinsdóttir skrifar:
Ég átti leið um Nesjavallavegum daginn, eins og svo oft
áður af því ég á sumarbústað á
Þingvöllum. Það tekur mig sárt
að sjá hvernig fé er látið spæna
í sig fallegar trjáplöntur sem
upprennandi æska hefur verið
iðin við að gróðursetja undan-
farin ár. Í fyrrasumar hringdi
ég oftar en einu sinni í Orkuveit-
una og lét þá vita af þessu en
ekkert var gert. Í vor taldi ég
um tuttugu kindur en þær gætu
verið helmingi fleiri. Til hvers
var verið að girða svæðið og
planta trjám? ■
■ Aðsendar greinar
Fréttablaðið tekur við aðsend-um greinum. Greinarnar eiga
að vera á bilinu 3.000 til 3.500 slög
með bilum í word count. Senda
skal greinarnar á netfangið kol-
brun@frettabladid.is ásamt mynd
af greinarhöfundi. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til þess að velja og
hafna og stytta greinar. ■