Fréttablaðið - 22.09.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 22.09.2003, Blaðsíða 11
■ Bréf til blaðsins 11MÁNUDAGUR 22. september 2003 Frelsi hvers? Matthías Eggertsson skrifar: ÍFréttablaðinu 16. september sl., ábls. 12, lýsir ritstjórinn, Gunnar Smári Egilsson, þeirri skoðun sinni að „afnám hafta í verslun með land- búnaðarvörur er líklega heillavæn- legasta aðgerðin til að jafna kjör fá- tækra og ríkra þjóða“. Síðar í grein- inni bendir hann svo á að alþjóðleg fyrirtæki hafi séð sér hag í því að flytja ýmsa starfsemi sína, svo sem fataframleiðslu og framleiðslu á tölvum og rafmagnsvörum, til fá- tækra landa þar sem launakjör eru lág. Það virðist hins vegar ekki hvarfla að Gunnari Smára að stjórn- endum alþjóðlegra fyrirtækja, sem framleiða matvæli, geti dottið í hug að nýta sér ódýrt vinnuafl í rekstri sínum. Öflug alþjóðleg fyrirtæki rækta m.a. kaffi, tómata og ávexti í láglaunalöndum og greiða afar lág laun þeim sem tína ávextina, auk þess sem atvinnuöryggi þessa fólks er ekkert, og framfarasókn þess til betra lífs er engin. Það er sjaldan rætt um hlut þess- ara fyrirtækja í umræðunni um bú- vöruframleiðsluna og bætt kjör í fá- tækum löndum. Þessi fyrirtæki, flest með höfuðstöðvar sínar í Bandaríkjunum, vinna af öllu afli að því að styrkja stöðu sína og láta sér þar fátt fyrir brjósti brenna. Þau hafa yfir að ráða besta tæknibúnað- inum, nýta sér hagkvæmni stærðar- innar, þrýsta á um notkun erfða- breyttra stofna nytjajurta og krefj- ast þess að erfðabreyttar jurtir fái viðurkenningu um allan heim. Þessi fyrirtæki skeyta ekki um umhverf- ismál þar sem þau hafa komið sér fyrir. Sé kvartað við þau hóta þau að flytja starfsemi sína til annarra landa og stilla þannig löndum hverju upp gegn öðru. Með þessu móti tekst þessum fyrirtækjum að ná niður verði á framleiðslu sinni og beita svo áhrif- um sínum til að komast í gegnum viðskiptahindranir með hjálp al- þjóðastofnana, svo sem Alþjóða við- skiptastofnunarinnar. Það hefur enn ekki tekist að fullu en bláeygðir unnendur frjálshyggju um allan heim leggjast á árar með þeim og minna á nytsama sakleysingja á kaldastríðsárunum. Á einu svæði í heiminum hafa stórfyrirtækin náð fram ætlunar- verki sínu. Í Norður-Ameríku er starfandi viðskiptabandalagið NAFTA, þar sem allar viðskipta- hindranir hafa verið aflagðar. Af því sýpur Mexikó nú seyðið. Þar hafa stórfyrirtæki náð til sín 95% af sojabaunamarkaðnum og 50% af hrísgrjóna- og hveitimarkaðnum. Afleiðingin er stórfellt hrun í land- búnaði þar sem bændur í stórum stíl missa lífsviðurværi sitt, yfir- gefa jarðir sínar og eiga sér helst það þrautaráð að komast ólöglega til Bandaríkjanna til að stunda þar svarta vinnu fyrir sultarlaun. Stórfyrirtækin vita hins veg- ar hvað þau eru að gera. Yfirráð yfir þeirri grunnþörf, sem fæða fólks er, veitir að sjálfsögðu mikil völd og reynslan sýnir að valdi er ætíð beitt hvar sem það finnst. Það er göfugt hlutverk að bæta hag fátækra þjóða en bar- áttumenn viðskiptafrelsisins mega líka gæta að sér hverjum þeir eru að þjóna. ■ Hefðbundnir stjórnmála-flokkar hafa hingað til að nokkru leyti myndast í kringum hagsmunahópa, t.d. bændur eða atvinnurekendur, en eftir gjald- þrot þessa módels í Færeyjum fyrir rúmum áratug, og vegna aukinnar þekkingar á hagstjórn, hefur fólk í auknum mæli farið að skipa sér í flokka eftir áhættufælni, þ.e.a.s. viðhorfi til samtryggingar. Þar eru vinstri- menn þeir áhættufælnari. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki passa inn í þetta mynstur. Öflugar umræður, sem ætíð hafa einkennt stjórnmálaflokka, virðast vera að hverfa í flokkn- um og minnti seinasta landsþing flokksins í Laugardalshöll óþægilega mikið á samkomu sem „frelsarinn“ Benny Hinn hélt á sama stað nokkru áður. Sóknarbörnin á Alþingi Í Laugardalshöllinni kom fagnaðarerindið að ofan. Um- ræður um mjög umdeild mál, t.d. gjafakvóta og lokað bókhald flokksins, voru ekki á dagskrá þrátt fyrir að 80% landsmanna væru þeim andsnúin, á sama hátt og bann páfans við getnað- arvörnum er ekki virt af 80% kaþólikka. Uppruni fagnaðarerindisins, sem er einhvers konar frjáls- hyggja sem búið er að „laga að“ íslenskum aðstæðum, er óljós og er sjaldan vitnað í reynslu þess erlendis. Eru þeir Hannes Hólmsteinn, Jón Steinar og Ingvi Hrafn dug- legastir við að boða það, og yngri sóknarbörnin á Alþingi, Heimdalli og SUS hafa svo verið virk í að bannfæra villutrúar- menn fyrir sósíalisma og þjóð- nýtingarstefnu. Reynsla annarra þjóða Reynsla annarra þjóða virðist skipta sóknarbörnin minna máli og hefur vikið fyrir blindri trú á fagnaðarerindið. Vekur það nokkurn ugg því að í einu landi í heiminum hefur hagstjórn farið eftir blindri trú á kenningum. Kommúnisminn ríkti í Sovét- ríkjunum fram að falli hans en þá tók við blind trú á frjáls- hyggju, einkavæðingu og frelsi. Nú eru lífskjör í Rússlandi verri en í Botsvana í Afríku. Í ljósi þess verður spurning fyrrum þingmanns íslenskra sósíalista skiljanleg: „Hvað varðar mig um þjóðarhag?“ ■ Umræðan GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON ■ verkfræðingur og MBA skrifar um Sjálfstæðisflokkinn. Er Sjálfstæðisflokk- urinn trúfélag?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.