Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 14
14 22. september 2003 MÁNUDAGUR ■ Jarðarfarir ■ Andlát ■ Afmæli Þennan dag árið 1945 misstibandaríski hershöfðinginn George S. Patton út úr sér að hann sæi nú ekki hvaða þörf væri fyrir að hreinsa Þýskaland af nasistum. Þetta sagði hann á blaðamannafundi og líkti um leið deilunum um nasisma í Þýska- landi við kosningabaráttu demókrata og repúblikana í Bandaríkjunum. Þessi ummæli féllu hreint ekki í góðan jarðveg svo stuttu eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar, jafnvel þótt menn ættu ýmsu að venjast frá þessum sigursæla hershöfðingja. Þetta var engan veginn í fyrsta sinn sem kjaftur- inn kom honum í vandræði. En þetta var einum of mikið fyrir bandaríska stjórnmálamenn og æðstu yfirstjórn hersins. Eng- um mátti líðast að gera lítið úr þeirri ógn sem heiminum hafði stafað af nasistum. Patton var umsvifalaust sviptur stöðu sinni sem yfirmaður bandaríska her- liðsins í Bæjaralandi í Þýska- landi. Fáeinum mánuðum síðar háls- brotnaði Patton í umferðarslysi og lést í kjölfar þess. ■ Guðný Guðnadóttir, Egilsbraut 9, Þor- lákshöfn, lést á heimili sínu fimmtudaginn 18. september. Boga Kristín Kristinsdóttir Magnussen, Skarði 2, Skarðsströnd, andaðist á dvalarheimilinu Barmahlíð fimmtudaginn 18. september. Stefanía Ásbjarnardóttir hjúkrunar- fræðingur, frá Guðmundarstöð- um, lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð, Vopnafirði, miðviku- daginn 17. september. 13.30 Björgvin Frederiksen verður jarð- sunginn frá Hallgrímskirkju. 13.30 Bergsveinn Sigurðarson, frá Hjallanesi, Dalbraut 23, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogs- kirkju. 13.30 Friðmey Benediktsdóttir, frá Erpsstöðum, Háaleitisbraut 123, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju. 13.30 Birna Ármannsdóttir, Hátúni 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 14.00 Þorbjörg Hallmannsdóttir, frá Króki í Ölfusi, verður jarðsungin frá Kotstrandakirkju. Helgi Sveinbjörnsson, bóndi áSlakka við Laugarás í Bisk- upstungum, er hættur að rækta grænmeti. Það hefur hann gert í 17 ár, ræktað gúrkur og tómata, en nú er kominn tími breytinga. „Ég losaði allt grænmetið út,“ segir Helgi. „Nú erum við að klára að breyta 800 fermetra gróðurhúsi og þangað er kominn 300 fermetra innanhúss púttvöll- ur. Svo erum við að setja upp minigolfvöll hinum megin í hús- ið. Með þessu erum við að hugsa um alla golfarana sem geta ekki sinnt íþróttinni á veturna. Þá geta þeir komið hingað og æft sig.“ Helgi hefur komið upp veit- ingasölu, með bar og öllu tilheyr- andi, og ætlar sér að koma upp frekari æfingaaðstöðu fyrir golfarana. Einnig hyggst hann bæta við leiktækjasal í húsið fyr- ir yngri gesti. Dýragarðurinn er svo enn á sínum stað enda vinsæll við- komustaður ferðalanga á sumrin. „Svo erum við búnir að taka helminginn á öðru 500 fermetra húsi og setja skeljasand á gólfið. Þangað eru páfagaukarnir nú komnir og í vetur ætlum við að hafa dýrin þar. Þangað ætlum við að setja búr og girðingar og svo getum við líka kippt dýrunum þangað inn á sumrin ef það kem- ur leiðinlegt veður. Þannig getur fólk alltaf komið í Slakka, sama hvort það er sól eða rok og rign- ing.“ Að lokum bendir Helgi einnig á að nú verður mögulegt að opna dýragarðinn á veturna, ef t.d. hóp- ur skólakrakka ætti leið framhjá. ■ Tímamót ■ Helgi Sveinbjörnsson bóndi á Slakka er hættur að rækta grænmeti og hefur aukið ferðamannaþjónustu sína til muna. Nú geta golfarar sinnt áhugamáli sínu allan ársins hring. Garðyrkjubóndi gerist ferðaþjónustubóndi ??? Hver? Meindýraeyðir og pípari. ??? Hvar? Á Ísafirði. ??? Hvaðan? Er frá Reykjavík en bjó á Þingeyri áður en ég flutti á Ísafjörð 1995. ??? Hvað? Það er mikið af villiköttum hér sem er verið að reyna að fækka vegna ólyktar og óþæginda. Það er orðið svolítið mik- ið þegar fólk er með 30 ketti í kjallaran- um hjá sér án þess að geta fóðrað þá. ??? Hvernig? Í flestum tilfellum tek ég þá í búr en í einstaka tilfellum þarf að skjóta þá. ??? Hvers vegna? Oft eru þeir það illa farnir að ekki er hægt að ná þeim í búr. Aðstæður eru þá þannig að maður neyðist til að lóga þeim. ??? Hvenær? Á öllum tímum. ■ Persónan Ég ætla fjandakornið ekki aðgera neitt á morgun,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson blaða- maður, sem í dag er 47 ára. Hann bendir á að ekki aðeins sé þetta ómerkilegt afmæli heldur beri það einnig upp á mánudag. „Ég fer bara að vinna og vona að enginn hafi vitneskju um þennan dag,“ segir hann og hlær og bætir við að hann sé löngu hættur að fagna þessum degi. Áður fyrr hafi hann vissulega haldið upp á þennan dag þegar hann bar upp á helgi en það var á þeim tíma þegar öll tilefni voru notuð til veisluhalda. „Það þroskaðist af mér, svo dyggilega að það þurfti að þröngva mér til að taka þátt í fertugsafmælinu mínu sem aðrir sáu um að undir- búa,“ segir hann og viðurkennir að það hafi verið gaman því menn vildu vera notalegir og gáfu hon- um grill sem kom sér afar vel. „Bestu afmælisgjöfina nú er ég einmitt þessa stundina að fá. Að fá að vera með Lindu Andreu fóst- urfrænku minni í Egilshöll þar sem hún keppir með 5. flokki ÍR og stendur sig frábærlega vel.“ Friðrik Þór hóf nýverið störf á tímaritinu Mannlífi og er þar rit- stjórnarfulltrúi við hlið Gerðar Kristnýjar. Hann segist vonast til að með því geti gott blað orðið betra. Stjórnmál og þjóðfélagsmál eru eitt hans helstu áhugamál og blaðamennskan gerir honum kleift að sinna þeim að nokkru leyti í vinnunni. „En fyrst og fremst hef ég löngun til að gera þjóðfélagið betra,“ segir Friðrik Þór, sem einnig hefur gaman af þjóðlegum fróðleik og ættfræði að ógleymdum íþróttum. ■ Afmæli FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON ■ Hann ætlar í vinnunna eins og aðra daga og vonar að enginn viti af af- mælisdeginum enda bara venjulegur mánudagur. NICK CAVE Ástralski tónlistarmaðurinn Nick Cave, sem gerði mikla lukku með tónleikum sínum hér á landi síðasta vetur, er 46 ára í dag. 22. september ■ Þetta gerðist 1828 var Shaka Zulu, stofnandi konungsrík- is Zulumanna í sunnanverðri Afríku, myrtur. Hann var þá orðinn illa hald- inn af geðsýki. Morðingjarnir voru hálfbræður hans. 1862 sendi Abraham Lincoln, forseti Bandaríkjanna, frá sér drög að frelsis- yfirlýsingu fyrir þræla. 1949 sprengdu Sovétmenn fyrstu kjarn- orkusprengju sína. 1956 fæddist Debbie Boone söngkona. Hún er dóttir Pat Boone og þekktust fyrir lagið You Light Up My Life. 1980 hófst stríðið milli Íraks og Írans fyrir alvöru með því að Írakar réðust inn í Íran. 1988 báðust kanadísk stjórnvöld formlega afsökunar á að hafa stungið japönsk- um íbúum landsins í fangelsi á tím- um seinni heimsstyrjaldarinnar. 1989 lést bandaríski sönglagahöfundurinn Irving Berlin, sem um ævina dældi frá sér lögum á borð við Puttin’ on the Ritz, Cheek to Cheek og There’s No Business Like Show Business. Kjaftfori hershöfðinginn PATTON HERSHÖFÐINGI ■ Sá ekki þörfina fyrir að hamast svona gegn nasistum eftir lok seinni heimstyrj- aldarinnar. 22. september 1945 Löngu hættur að fagna afmælisdögum FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON Hann hélt upp á fertugsafmælið og fékk grill í afmælisgjöf. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A Ragnar Bjarnason söngvari er 69 ára. Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld er 51 árs. Bryndís Pétursdóttir leikkona er 75 ára. RONALDO Fótboltasnillingurinn Ronaldo frá Brasilíu fagnar 27 ára afmæli sínu í dag. VALUR RICHTER SLAKKI Hér sést innipúttvöllurinn sem búið er að setja upp í Slakka. Hann opnaði formlega í gær en myndin var tekin á meðan á framkvæmdum stóð. GÓMSÆTT OG VEL FRAM BORIÐ Öllum íbúum Grímsneshrepps var boðið í mat hjá Byrgismönnum. Hátíð við Ljósafoss FRAMKVÆMDIR Margt manna gladd- ist með vistmönnum Byrgisins við Ljósafoss í Grímsnesi um helgina þegar sundlaugin á staðnum var opnuð eftir miklar breytingar sem unnið hefur verið að í allt sumar. Eftir að laugin hafði verið skoðuð og ræður haldnar var öll- um boðið í kvöldverð að hætti kokka Byrgisins. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.