Fréttablaðið - 22.09.2003, Síða 16
heimili o.fl.
V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heimili@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Stöðugt fleiri frá ráðgjöf um lýsingu í heimahúsum/
Góð lýsing
tengist góðri heilsu
Guðjón L. Sigurðsson iðnfræðingurhjá Rafteikningu hf., segir fólk oft
ráðast í stórframkvæmdir og taka allt
í gegn heima hjá sér, en sitja svo stúr-
ið yfir útkomunni af því eitthvað er
ekki eins og það á að vera að fram-
kvæmdum loknum.
„Fólk kaupir sér kannski gott rúm,
góða sæng og góðan kodda. Frábæran
hægindastól, falleg húsgögn, endur-
nýjar eldhús og bað og málar allt í fín-
um litum. Í dagsljósi er útkoman full-
komin. Þegar fer að skyggja og fólk
þarf að kveikja ljós kveður svo við
vonbrigðatón,“ segir Guðjón.
Hvað er fólk að gera vitlaust?
„Það hvernig fólk lýsir upp innan-
húss á auðvitað að miðast við það
hverju fólk sækist eftir,“ segir Guð-
jón. „Þegar „rússneska“ 100 kerta per-
an er komin í perustæðið og lýsir upp
umhverfið, er allt jafn lýst. Þá vantar
auðvitað fallegan lampaskerm utan
um peruna og fallegur skermur er
keyptur. En þá er fólk líka farið að
breyta aftur, farið að blokkera birt-
una. Við erum að ráðleggja fólki svo
það lendi ekki í leiðinda aðstæðum og
spyrjum: Hvernig viltu láta lampann
lýsa? Hvernig viltu sjá umhverfið eft-
ir að dimmt er orðið?“
Guðjón segir ekki gefið að starfs-
fólk í raftækjaverslunum geti ráðlagt
um lýsingu. „Það þarf sérfræðinga til.
Best er að viðkomandi sérfræðingar
komi á staðinn, en ljósmyndir og
teikningar eru betri en ekki neitt.“
Halogenlampar ofnotaðir
En eru þá engar þumalputtareglur
fyrir leikmennina?
„Jú,“ segir Guðjón, „flúorperur eru
til dæmis vandmeðfarnar, sérstaklega
af því að fólk kaupir gjarnan ódýrar flú-
orperur sem gefa ekki rétta litaendur-
gjöf, eins og það er kallað. Þessar perur
eru algjört eitur á heimilum, en geta
verið ágætar í bílskúr eða geymslu.
Guðjón segir halogenperur gefa frá sér
milda og fallega birtu, en þær séu gróf-
lega ofnotaðar í heimahúsum.
„Halogenbirtan er falleg og mild, en
hún þjónar þeim tilgangi að skreyta og
lýsa upp það sem okkur finnst falleg-
ast, eins og málverk eða húsmuni, en er
út í hött í eldhúsinu og á baðinu. Þar
eiga að vera flúorperur.„
„Gamla góða glóperan aftur á móti
er ekki rétti ljósgjafinn til að lýsa upp
einstaka hluti, hún er fín í lampa á löng-
um vetrarkvöldum þegar við ætlum að
hafa það huggulegt og kósý,“ segir
Guðjón. „Guðjón bendir á að „kósý“
eigi hugsanlega við um tvo til þrjá
klukkutíma á kvöldi. „Ef við erum kom-
in heim um fimmleytið á daginn í
skammdeginu er enn myrkur. Þá er
nauðsynlegt að geta látið sér líða vel
við milda birtu og jafnvel kertaljós. En
hinn kosturinn þarf að vera fyrir hendi,
það er að geta haft mikla og góða birtu.
Það er nefnilega óumdeilanlegt sam-
kvæmt nýjum könnunum að lýsing hef-
ur áhrif á heilsu og líðan fólks og mjög
mikilvægt að hafa þessa hluti í lagi.“ ■
STYTTA NÝTUR SÍN EKKI
Sama borðstofa, en búið að slökkva á lýsing-
unni á styttuna. Þá sést vel hvað lýsingin er
mikilvæg fyrir stemminguna.
GUÐJÓN L. SIGURÐSSON
Guðjón sýnir hvernig lýsing getur
skipt sköpum í heimahúsum.
SKEMMTILEG LAUSN
Þarna er notuð venjuleg akrýlsúla til að lýsa upp
umhverfið. Það býður upp á óendanlega mögu-
lega því hægt er að nota allar tegundir pera inni
í súlunni.
STYTTA NÝTUR SÍN
Dæmi um lýsingu yfir borðstofuborði þar sem
lampinn er með 5 stk 40 W glóperum og 12
Volta halógen perur eru notaðar til að lýsa á
málverk og styttu.