Fréttablaðið - 22.09.2003, Page 32

Fréttablaðið - 22.09.2003, Page 32
hús o.fl. V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: hus@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is. Sæl Ebba Fyrst slæmu fréttirnar, best er að ná gulu lím- röndinni algjörlega af!!! Ég mundi athuga það að nota hitablásara og vír- bursta, svo skalt þú reyna að nota bara vírbursta og eða málningaruppleysi og vírbursta, sem sagt mikil vinna. Ef gula límröndin er þrjósk og vill ekki fara þá er kannski möguleiki að grunna vel yfir hana áður en málað er, þ.e ef hún er mjög þunn og samlagast gólfinu al- veg. Varðandi málninguna þá mundi ég persónulega nota vatnsþynnanlegt epoxy-lakk en til eru ódýrari efni. Passaðu þig á því að ef múrinn er laus þá gæti verið vandamál með ryk. Bestu kveðjur Frikki FRIÐRIK WEISSHAPPEL ■ svarar spurningum lesanda um viðgerðir og breytingar innanhúss. Frágangur á berum stein góð/ráðSæll vertu!Þakka þér fyrir góða pistla. Mig langar að leita ráða hjá þér. Þannig er mál með vext i að ég var að taka gólfteppi af hjá mér, og notaði st að sjálf- sögðu við ráð frá þér við þá iðju. Nú e r sem sagt bara ber steinninn, og gular límrendur utan með öllum köntum. Þarf ég að gera eitthva ð sérstak- lega til að ná þeim? Ég er búin að reyn a að skafa þær af, en þá tek ég pússninguna me ð líka. Ég hafði síðan hugsað mér að mála gólfi ð, þar sem ég er ekki tilbúin í að leggja mikinn pe ning í það í bili. En þá er komið að vandamálinu . Hvernig málningu á ég að velja? Mig langar að hafa þetta sem ódýrast, og auðveldast að vinna. Einnig vil ég hafa þetta í grófari kantinum, ég æt la til dæm- is ekki að sparstla í sprungur. Getur þú gefið mér ráð í sambandi við þetta? Kveðja, Ebba Vantar þig góð ráð? Spurðu Friðrik Weisshappel á hus@frettabladid.is Ellert B. Schram, forseti Íþróttasam-bands Íslands, býr í Sörlaskjóli 1 í Vesturbænum sem jafnframt er æsku- heimili hans. Þar líður honum yndis- lega að eigin sögn enda kominn heim í Heiðardalinn. „Ég er fæddur á Melun- um og bjó síðan í um fjögur ár í Norð- urmýrinni,“ segir Ellert. Árið 1948 keyptu foreldrar Ellerts húsið í Sörlaskjóli hálfskarað. Einhver hafði þá byrjað að byggja það en gefist upp á því. Húsið var tilbúið undir tré- verk og þangað flutti Ellert ásamt fjöl- skyldu sinni. Þar bjó hann þar til hann gifti sig og flutti í sína eigin íbúð upp úr 1960. „Forlögin höguðu sér þannig að mér gafst færi á að kaupa húsið fyrir sjö til átta árum. Þó það hafi verið eftir atvikum erfitt var ég mjög hamingju- samur með að komast í föðurhús á nýj- an leik,“ segir Ellert. „Þetta er yndis- lega staðsett hús. Þarna hefur maður fjöruna og fjörðinn fyrir framan sig. Fjallasýnin er einnig mjög falleg.“ Ellert játar að það hafi rifjað upp góðar æskuminningar að koma aftur í gamla húsið sitt: „Hverfið var nú aðeins frumstæðara þá enda voru mörg hús enn í byggingu. Þarna voru móar og braggahverfi og þarna voru menn að gera út sína báta á grásleppuna. Þó að þetta sé breytt núna hef ég enn útsýni til suðurs þar sem er opið og óbyggt. Þarna allt í kring eru líka ennþá afkomendur þeirra sem þarna bjuggu þegar ég bjó þarna á sínum tíma þannig að þetta er allt mjög heimilislegt.“ Ellert segist hafa þurft að endur- bæta húsið töluvert eftir að hann flutti í það með eiginkonu sína og tvö börn. „Það er stöðugt verkefni eins og geng- ur og gerist. Það þarf að halda húsum við eins og líkamanum.“ ■ Æskuheimilið mitt/ Yndisleg staðsetning VIÐ ÆSKUHEIMILIÐ Ellert býr í Sörlaskjólinu með eiginkonu sinni Ágústu Jóhannsdóttur og tveimur börnum þeirra. Kjallarinn er leigður út.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.