Fréttablaðið - 22.09.2003, Qupperneq 44
bílar o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Nú er sá tími ársins kominn að allraveðra er von. Fyrsta morguninn
eftir gott næturfrost mætir stór hluti
þjóðarinnar of seint í vinnuna.
Frostrósir á rúðunum og fastar
læsingar eiga stóran þátt í því. Gott er
að vera búinn að verða sér úti um
rúðusköfu í tíma og til eru margar
gerðir af góðum sköfum. Það ber þó
að varast þær sköfur sem eru með
koparblaði því þær geta rispað rúð-
urnar og skemmt þær illa. Hanska er
líka gott að geyma í bílnum þannig að
þeir séu til staðar þegar á reynir.
Hvað læsingarnar varðar er til sér-
stakur lásaúði sem gott er að setja í
læsingarnar áður en fer að frysta. Ef
hins vegar læsingin er frosin er best
að ná sér í plastpoka, fylla hann af
heitu vatni úr krananum, leggja hann
því næst upp að læsingunni og eftir
smá stund brosir morguninn við
manni. Stranglega er bannað að hella
vatni beint á bíllinn því þá frýs hurðin
endanlega föst og ekki á heldur að
blása því þá kemst bara meiri raki inn
í læsinguna og þá festist hún oft bara
betur. Munið svo að smyrja læsinguna
áður en frystir á ný. ■
JÓN HEIÐAR
ÓLAFSSON
■ gefur góð ráð
um bíla.
Góð ráð
Ég á mér engan einn draumabíl.Sumar af eldri gerðunum hafa
alltaf höfðað til mín en líka þessir
nýjustu,“ segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda (FÍB), um
draumabílinn sinn. „Ég hef bara
gaman af bílum.“
Af eldri tegundum sem hafa ver-
ið í uppáhaldi hjá Runólfi er Jagúar
Mark 2, sem er sömu tegundar og
Kavanagh lögmaður ekur í sam-
nefndum sjónvarpsþáttum. Runólf-
ur á ekki von á því að eignast slíkan
bíl í framtíðinni: „Ég myndi ekki
leggja mikið á mig til að eignast
hann.“
Runólfur lítur á bíla sem nytja-
hluti sem komi honum frá a til ö:
„Ég hef gaman af fallegri hönnun
og vel útlítandi bílum en ég er ekki
viss um að ég myndi vilja aka dags
daglega um á svona bíl. Bretar eru
heldur ekki bestu bílagerðarmenn í
heimi,“ segir Runólfur.
„Þetta er eflaust ein-
hver nostalgía í
mér. Nóbels-
skáldið átti svona bíl. Ég sá þann bíl
sem ungur drengur og dáðist að
honum. Þetta er straumlínulagaður
bíll eins og hönnunin var í þá daga.“
Runólfur er fjölskyldumaður en
þrátt fyrir það útilokar hann ekki
að aka á Jagúar Mark 2 í framtíð-
inni: „Ég eignast hann ekki á næst-
unni en maður veit aldrei hvað er
handan við hæðina.“ ■
JAGÚAR M2
Kavanagh lögmaður ekur um á
Jagúar Mark 2.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Frostrósir og fastar læsingar
Draumabíllinn:
Jagúarinn hans Kavanagh
RUNÓLFUR ÓLAFSSON
Dáist að fallegri bílahönnun.
Vantar þig góð ráð? Spurðu Jón Heiðar á bilar@frettabladid.is