Fréttablaðið - 22.09.2003, Síða 49
21MÁNUDAGUR 22. september 2003
Hinrik Fjeldsted
Öflugur sölu og markaðsráðgjafi
getur bætt við sig verkefnum.
Ég hef mikla reynslu af útgáfu-
og fjölmiðlamálum.
Hefur þitt fyrirtæki þörf fyrir að
auka sölu eða að skipuleggja
söluverkefnin?
Ég get aðstoðað fyrirtæki við:
Sölustjórn
Símasölu
Samningagerð
Gerð söluáætlana
Gerð þjónustukannana
Úttekt á sölu og
kynningamálum
Sölu og markaðsráðgjafi
Sími: 820-3453
hinrik@sjalfsvorn.is
P.O .Box 1647- 1 21 Reyk jav ík
S j á l f s t y r k i n g e h f
Sölu og markaðsráðgjafa
Vantar þig ?
! "
#$
%&'(
$))
*+ ,
$)
- ,
.
,
# #)
# $$
/"0 123%4563278
9
# # $
:;(<
= )
9
>
(! ''(? &'-(--'
7 '@< .
!
!<;-( )A
!B $ B
C112 C112
ÁTÖK
Heimsmeistarinn í súmóglímu, Asashoryu frá Mongólíu, þurfti að lúta í lægra haldi fyrir
Wakanosato frá Japan á Grand Sumo-mótinu í Tókíó. Þetta var eina glíman sem Asa-
shoryu tapaði en hann vann mótið, sem stóð yfir í fimmtán daga.
15.00 Litið yfir mörk helgarinnar í
enska boltanum á Stöð 2.
17.00 Ensku mörkin eru sýnd á Sýn.
16.45 Helgarsportið er endursýnt á
RÚV.
18.00 Spænsku mörkin eru sýnd á
Sýn.
22.30 Fjallað er um helstu íþróttavið-
burði heima og erlendis í Olís-
sporti.
23.55 Litið yfir mörk helgarinnar í
enska boltanum á Stöð 2.
ÓSÁTTUR
Martin Keown hrópaði ókvæðisorð að Ruud van Nistelrooy eftir að sá síðarnefndi hafði
klúðrað vítaspyrnu sem dæmd var á Keown.
Slagsmál í marka-
lausum leik
Markalaust jafntefli hjá United og Arsenal.
Van Nistelrooy klúðraði víti og Vieira rekinn af
velli. Lá við slagsmálum í og eftir leik.
FÓTBOLTI Ruud van Nistelrooy
klúðraði vítaspyrnu og Patrick
Vieira fékk að líta rauða spjaldið
þegar Manchester United og
Arsenal gerðu markalaust jafn-
tefli í stórleik ensku úrvalsdeild-
arinnar á Old Trafford í gær.
Manchester United hafði und-
irtökin í byrjun leiks í gær og
hefði getað komist yfir á 15.
mínútu þegar Ryan Giggs átti
skot í stöng úr aukaspyrnu.
Arsenal lá aftarlega á vellinum
en beitti stórhættulegum skynd-
isóknum með Thierry Henry
sem hættulegasta mann liðsins.
Fredrik Ljungberg hefði get-
að komið Lundúnaliðinu yfir
strax í byrjun seinni hálfleiks
eftir mistök hjá Gary Neville, en
tókst ekki að nýta færið sem
skyldi.
Ruud van Nistelrooy hefði
getað skotið Manchester United
í toppsæti deildarinnar þegar
vítaspyrna var dæmd á Martin
Keown fyrir að hrinda Diego
Forlan. Hollendingurinn átti
þrumuskot sem hafnaði í slánni
og út og þar við sat.
Þegar um tíu mínútur voru
eftir af leiknum var Vieira send-
ur af velli fyrir að reyna að
sparka í van Nistelrooy. Við það
hitnaði leikmönnum heldur bet-
ur í hamsi og lá við slagsmálum.
Þeim lenti einnig saman eftir að
flautað hafði verið til leiksloka
og má búast við að atvikið verði
tekið fyrir hjá aganefnd Enska
k n a t t s p y r n u s a m b a n d s i n s .
Arsenal heldur toppsæti deildar-
innar með fjórtán stig, einu stigi
á undan Chelsea og United.
Í hinni viðureign dagsins
vann Middlesbrough sinn fyrsta
sigur á tímabilinu með því að
leggja Everton að velli, 1-0. ■
FÓTBOLTI Japan burstaði Argent-
ínu, 6-0, í gær á heimsmeistara-
móti kvennalandsliða í knatt-
spyrnu sem fram fer í Bandaríkj-
unum. Japan komst þar með á
topp C-riðils, við hlið Evrópu-
meistara Þjóðverja, sem unnu
Kanada 4-1. Japan og Þýskaland
eigast við í næstu umferð.
Norður-Kórea vann Nígeríu
með þremur mörkum gegn engu í
A-riðli og Bandaríkin unnu
Svíþjóð 3-1. Noregur vann Frakk-
land 2-0 í B-riðli.
Sextán lið leika í fjórum riðlum
á heimsmeistaramótinu í Banda-
ríkjunum. Tvö lið komast upp úr
hverjum riðli. Átta liða úrslitin
hefjast 1. október, undanúrslitin
þann 6. október en úrslitaleikur-
inn sjálfur verður 12. október. ■
Þjálfaramál:
Ásgeir áfram með Þrótt
FÓTBOLTI Ásgeir Elíasson heldur að
óbreyttu áfram að þjálfa Þrótt þótt
liðið félli um deild á nýafstöðnu Ís-
landsmóti. „Við erum mjög ánægð-
ir með Ásgeir þrátt fyrir þessa nið-
urstöðu undir lokin,“ segir Guð-
mundur Vignir Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Þróttar.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um framtíð Þorláks Árnasonar
hjá Val. Hann á tvö ár eftir af
samningi sínum við liðið. „Stjórnin
hefur ekki komið saman til að
ræða málin og meðan svo er stend-
ur samningurinn,“ sagði Jón S.
Helgason, formaður knattspyrnu-
deildar Vals.
Þorvaldur Örlygsson verður
áfram við stjórnvölinn hjá KA og
að öllum líkindum Magnús Gylfa-
son hjá ÍBV. „Magnús á eitt ár eft-
ir af samningnum og vonandi verð-
ur hann áfram,“ segir Birgir Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri ÍBV.
Bjarni Jóhannsson á eitt ár eft-
ir af samningi sínum við Grinda-
vík. „Það verður tekin ákvörðun
um þjálfaramál eftir helgi,“ sagði
Ingvar Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri Grindavíkur. Samningurinn
er uppsegjanlegur af beggja hálfu
frá og með 1. október.
Stjórn knattspyrnudeildar
Fram vonast til að Steinar Guð-
geirsson haldi áfram með liðið en
hefur ekki enn fengið svar hjá hon-
um. „Mótið er nýbúið og ég hef
ekki leitt hugann að því hvort ég
haldi áfram,“ sagði Steinar í sam-
tali við Fréttablaðið. ■
MARKI FAGNAÐ
Japanska stúlkan Homare Sawa fagnar
hér marki sínu gegn Argentínu á
heimsmeistaramóti kvennalandsliða í
knattspyrnu sem fram fer í Bandaríkjunum.
Japan vann leikinn 6-0.
Heimsmeistaramót
kvenna í fótbolta:
Japanskur
sigur
ÁSGEIR ELÍASSON
Verður áfram með Þrótt. Afar líklegt þykir
að Willum Þór Þórsson verði áfram með
Íslandsmeistara KR, Ólafur Þórðarson með
ÍA og Ólafur Jóhannesson með FH.
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
SEPTEMBER
Mánudagur