Fréttablaðið - 22.09.2003, Page 50
Í vikunni kom upp undarlegtdómsmál í Vín í Austurríki. Þannig er mál með vexti að maðursem hafði verið gestur á nektarný-
lenduströnd í Lobau-héraðinu
nálægt Vín kærði tvo strípalinga
fyrir líkamsárás. Hann hafði nefni-
lega verið kýldur af manni sem fór
fram á það að hann færi úr synd-
skýlu sinni, með þeim afleiðingum
að kinnbein hans brotnaði.
Árásamennirnir höfðu tekið eftir
því að einn maður á nýlendunni
spriklaði út í vatnið í sundskýlunni.
Þetta fór mikið í taugarnar á strípal-
ingunum sem gengu upp að sund-
skýlumanninum þegar hann kom
upp úr eftir sundsprettinn. Þeir
sögðu honum að nú ætluðu þeir sér
að taka hann úr skýlunni þar sem
hann væri staddur á nektarnýlendu.
Sundskýlumaðurinn brást hinn
versti við og gaf öðrum þeirra á
kjammann. Þá brást hinn strípaling-
urinn við með því að gefa honum
rothögg á kinnbeinið, sem gaf sig.
Maðurinn hentist aftur í vatnið með
látum. Síðar þurfti hann að fara í
skurðaðgerð vegna atviksins, sem
átti sér stað fyrir tveimur árum síð-
an. Í síðustu viku lagði hann svo inn
kæru og eru dómsyfirvöld í Vín að
velta því fyrir sér hvort hægt sé að
kæra strípalinginn eður ei. ■
■ ■ LEIKLIST
20.00 Grease í Borgarleikhúsinu.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Bubbi Morthens mætir með
gítarinn í Dalabúð Búðardal í tónleika-
röðinni 1000 kossa nótt.
22 22. september 2003 MÁNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
SEPTEMBER
Mánudagur
Vögguvísur eru ekki allar þarsem þær eru séðar, segja þau
Bryndís Snæbjörnsdóttir og
Mark Wilson, sem voru að opna
sýningu í Listasafni Reykjavíkur
í Hafnarhúsinu nú um helgina.
Innsetning þeirra nefnist Vöggu-
vísur.
„Þegar vögguvísur eru skoðað-
ar nánar sér maður að í þeim
koma oft fyrir einhver dýr eða
hættur sem þarf að varast,“ segir
Bryndís.
Þau Bryndís og Mark búa í
Skotlandi en hafa ferðast mikið
um norðurslóðir og sækja þangað
efnivið í listsköpun sína.
Samband mannsins við náttúr-
una leikur stórt hlutverk í verk-
um þeirra, eins og strax kemur í
ljós þegar innsetning þeirra í
Hafnarhúsinu er skoðuð.
Sterkur ilmur af grasi mætir
sýningargestum um leið og inn er
komið og notaleg stemning
myndast líkt og maður sé staddur
í útilegu.
Mark tekur fram að þau séu
ekkert endilega að reyna að koma
náttúrunni til skila eins og hún er
í raun og veru, heldur eins og hún
er í höfðinu á fólki sem er mótað
af menningunni.
Útilegustemningin er notaleg
ekki síður en ástandið milli
svefns og vöku þegar börn heyra
vögguvísur sungnar fyrir sig. Í
þessu notalega ástandi leynast
undarlegar skepnur og óvæntar
hættur, sem auðvelt er að gleyma.
Undanfarin ár hafa þau Mark
og Bryndís unnið mikið saman.
Verkin verða til í samvinnu og á
sýningum titla þau sig sameigin-
lega höfund þeirra.
„Það er mjög gott að vinna
svona. Hvort okkar er höfundur-
inn hættir að skipta máli,“ segir
Bryndís.
Bryndís hefur ekki sýnt mikið
hér á landi undanfarið. Það er
ekki vegna þess að ég vilji það
ekki, tekur hún fram brosandi.
Það hefur bara æxlast þannig.
Hún hefur alla tíð haldið því til
streitu að nota nafnið sitt, Snæ-
björnsdóttir, þótt útlendingar eigi
vægast sagt í vandræðum með að
ná tökum á því. „En það er að
byrja að skila sér núna. Þeir eru
farnir að muna eftir mér vegna
þess einmitt hve nafnið er erfitt.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ MYNDLIST
Á mörkum
draums og vöku
„Ég borða mikilvægustu máltíð
dagsins um leið og ég vakna“
„Ég borða mikilvægustu máltíð
dagsins á innan við mínútu“
Opið hús
Samhjálp kvenna verður með Opið hús í Skógarhlíð 8,
húsi Krabbameinsfélagsins, þriðjudaginn 23. september
2003, kl. 20.00.
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður fjallar um stöðu
kvenna í múhameðstrúaarríkjum, m.a. þegar veikindi ber
að höndum.
Stjórnin.
Til stuðnings konum sem
greinast með
brjóstakrabbamein
BRYNDÍS SNÆBJÖRNSDÓTTIR OG MARK WILSON
Vögguvísur nefnist innsetning þeirra í Listasafni Reykjavíkur.
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
TOPP 20 - X-IÐ977 - VIKA 38
Muse
STOCKHOLM SYNDROME
Marilyn Manson
THE NEW SHIT
The Thrills
BIG SUR
Coldplay
GOD PUT A SMILE UPON...
Limp Bizkit
EAT YOU ALIVE
Hot Hot Heat
NO NOT NOW
Murderdolls
WHITE WEDDING
Good Charlotte
LIFESTYLES OF THE RICH...
Audioslave
SHOW ME
Metallica
FRANTIC
Botnleðja
BROKO
Black Rebel Motorcycle Club
TAKE ‘EM ON YOUR OWN
Kings of Leon
MOLLY’S CHAMBERS
A Perfect Circle
WEAK & POWERLESS
All American Rejects
SWING
Rancid
FALL BACK DOWN
Deftones
BLOODY CAPE
Evanescence
GOING UNDER
Flint
AIM 4
Iron Maiden
WILDEST DREAMS
Topp 20listinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
THE THRILLS
Sveitasælan er komin alla leið í þriðja sæti
rokkstöðvarinnar.
ARTHÚR KARLSSON
Það er Gullnesti uppi í Grafar-vogi. Þar er hægt að kaupa
skemmtilega „sjabbí“ hamborg-
ara. Þennan stað uppgötvaði ég í
gamla daga þegar maður var enn
í því að sækja kærustuna upp í
Grafarvog. Þá keyrði maður svo
oft framhjá að einn daginn ákvað
ég að kíkja inn,“ segir Arthúr
Karlsson úr Djúpu lauginni og út-
varpsmaður á Radíó Reykjavík.
Besti bitinní bænum
Strípalingur á nektarnýlendu
kærður fyrir líkamsárás
NEKTARNÝLENDA
Þetta póstkort er frá árinu 1935.
Ekki er annað að sjá en þessir strípalingar
séu til friðs.
Skrýtnafréttin