Fréttablaðið - 22.09.2003, Side 53
MÁNUDAGUR 22. september 2003
TÓNLIST Íslensku undrin í Quarashi
hafa nú staðfest þátttöku sína á
Airwaves-tónleikahátíðinni í ár.
Piltarnir hafa ekki komið þar fram
í 5 ár, allt frá því að þeir skutu sér
út fyrir landsteinana með kröftugri
spilamennsku sinni í flugskýlinu á
fyrstu hátíðinni.
„Þegar við spiluðum um daginn
á Hafnarbakkanum komum við
sjálfum okkur á óvart hversu auð-
veldlega við rúlluðum þessu upp,“
segir Sölvi Blöndal. „Ég og Steini
vorum svo að tala saman og fannst
hátíðin í ár líta vel út. Það er góð
dagskrá á kvöldinu sem við erum á
og af hverju ekki að slá til. Við
erum hvort eð er búnir að æfa upp
prógramm og erum í stuði. Þetta
verða samt síðustu tónleikar Quar-
ashi á þessu ári þar sem við erum á
kafi í plötu og viljum eiga tíma til
þess.“
Sveitin kemur fram á NASA á
föstudagskvöldið 17. október ásamt
Singapore Sling, Dáðadrengjum og
bresk/bandaríska dúettnum The
Kills. „Þetta er leið fyrir okkur til
þess að þakka fyrir okkur. Síðast
þegar við spiluðum á Airwaves
fengum við höfundaréttarsamning
sem leiddi til útgáfu úti. Eftir það
hefur allt gengið vel þrátt fyrir að
ýmislegt hafi gengið á innan sveit-
arinnar.“
Þorsteinn Stephensen, fram-
kvæmdastjóri Hr. Örlygs sem held-
ur hátíðina, segir það mikinn feng
að fá Quarashi á dagskrána. „Þeir
hafa ekki síður gert mikið fyrir
okkur en við fyrir þá,“ segir hann
um sveitina. „Það hafði gríðarleg
áhrif fyrir okkur hversu vel þeim
gekk eftir fyrstu hátíðina. Það kom
mörgum á óvart og það hefur styrkt
okkur hérna heima og hjálpað til að
vekja áhuga erlendis á Airwaves.“
Þorsteinn segist hafa fundið fyr-
ir því í gegnum árin að íslensku
sveitirnar hafa fengið flest alla at-
hyglina og bestu umfjöllunina í er-
lendu miðlunum að hátíðum lokn-
um. Sölvi segir þó kapphlaup
hljómsveita um að tryggja sér út-
gáfusamning ekki vera aðalatriði
hátíðarinnar.
„Það er allt í lagi fyrir sveitir að
líta á þetta sem tækifæri til þess
að koma sér á samning en um leið
er þetta tónleikahátíð og er rosa-
lega skemmtileg helgi í Reykja-
vík,“ segir hann. „Fyrst og fremst
lítum við á þetta sem tækifæri til
þess að fá að vera með í fjörinu. Ef
við ætluðum að græða pening eða
vekja á okkur athygli einhvers
staðar þá myndum við gera það
öðruvísi.“
„Það er ánægjulegt að fá Quar-
ashi heim á fimm ára afmæli hátíð-
arinnar,“ bætir Þorsteinn við.
biggi@frettabladid.is
FÓLK Rannsóknarlögreglumenn-
irnir sem vinna að máli upptöku-
stjórans Phils Spectors hafa nú
skilað inn skýrslu sinni. Spector
er sakaður um að hafa verið vald-
ur dauða B-myndaleikkonunnar
Lönu Clarkson sem fannst látin á
heimili hans í byrjun febrúar. Hún
lést af völdum skotsárs í andlitið.
Spector hefur ekki verið
ákærður ennþá. Upptökustjórinn
gaf það í skyn í viðtali við tímarit-
ið Esquire að Clarkson hefði
framið sjálfsmorð en lögreglan
hefur útilokað það.
Spector þurfti að borga um 78
milljónir króna fyrir frelsi sitt á
meðan á rannsókninni stóð. Hann
á að mæta fyrir rétt í byrjun
næsta mánaðar en enn er ekki vit-
að hvort hann verður kærður fyr-
ir morð eður ei.
Spector er þekktastur fyrir
vinnu sína með Bítlunum,
Ramones, Shirelles, The Ronettes
og nú síðast Starsailor. ■
Umfjölluntónlist
Hún Mary J. Blige er kjarn-orkukvendi. Hún hefur á
hörkunni einni komið sér í hóp
vinsælustu r&b-söngkvenna
heims. Hún vann sér upp aðdá-
endahóp með fyrstu plötum sínum
og skaust svo almennilega upp á
yfirborðið með útgáfu fjórðu
breiðskífunnar „Mary“ árið 1999.
Síðan þá hefur hún náð að halda
sér á floti.
Mary virðist nokkuð staðráðin
í því að halda vinsældum sínum
og tekur enga áhættu á nýút-
kominni sjöttu plötu sinni, Love &
Life. Í þennan pakka var raðað
eftir formúlunni. Tveir til þrír
skotheldir slagarar þar sem stór-
stjörnur eru í gestahlutverkum og
restin er uppfyllingarefni þar
sem útsetningar eru nákvæmlega
eins og það sem gengur í dag.
Lögin „Love @ First Sight“,
„Let Me Be The 1“ og „Willing &
Waiting“ eru efni í útvarps-
slagara, restin er of ómerkileg til
þess að minnast á. Í nokkrum
lögum er, eins og hefur verið svo
vinsælt í stelpu-R&B, karl-
peningurinn málaður upp sem
sígraður svikull óþroskaður
aumingi sem skilur lítið um ást-
ina. Þetta er orðið svolítið leiði-
gjarnt. Einnig er frumleikaleysi í
útsetningum orðið pirrandi. Lögin
hljóma á mis eins og Jennifer
Lopez, Beyoncé Knowles eða
Michael Jackson. Það er kominn
tími fyrir uppstokkun í r&b-
geiranum, og Mary er því miður
ekki boðberi nýrra tíma, þrátt
fyrir að hún sé stórkostleg
söngkona.
Birgir Örn Steinarsson
Tekur enga
áhættu
MARY J. BLIGE:
Love & Life
PHIL SPECTOR
Skýrslan er tilbúin og nú bíða menn eftir
því hvort Spector værði ákærður fyrir morð
eða ekki.
Mál Phils Spectors:
Lögreglan
skilar skýrslu
Quarashi með
á Airwaves
QUARASHI
Eftir tónleikana á hafnarbakkanum segir Sölvi Quarashi hafa fengið um 40 tilboð um spilamennsku. Hann segir að þrátt fyrir að háar
peningaupphæðir hafi verið í boði hafi sveitin afþakkað þau öll til þess einbeita sér að gerð nýju plötunnar.
Pondus eftir Frode Øverli
Tékkaðu á ‘essu!
GEÐVEIKT sóló!
Heyrðu hvernig
hann teyyygir
strenginn!
Og bítið, maður! Fjaaalltraust!
Ekkert smá að hamast á sym-
bölunum!
Megagrúvaður bassi svo!
Gæsahúð og þumalputta-
barningur!
Og tékk-
aðu...
Halló?
25
LONDONTÍSKA
Nú er tískuvikan í New York afstaðin og
við tekur tískuvika í London. Þessi glæsi-
legi búningur var hluti af sýningu Arkadius-
tískuhússins á laugardag.