Fréttablaðið - 08.10.2003, Blaðsíða 1
BANTU STEPHEN BIKO
Blökkumannaleiðtoganum Biko var mis-
þyrmt herfilega við yfirheyrslur lögreglu í
Pretoríu og lést hann af sárum sínum 12.
september 1977.
Grunaðir morðingjar
Steve Biko:
Verða ekki
ákærðir
JÓHANNESARBORG, AP Fimm lög-
reglumenn sem grunaðir voru um
að hafa myrt blökkumannaleið-
togann Steve Biko árið 1977 verða
ekki ákærðir að sögn talsmanns
dómsmálaráðuneytis Suður-Afr-
íku.
Sönnunargögn þóttu ófullnægj-
andi en engir sjónarvottar voru að
morðinu. Því var fallið frá því að
gefa út morðákæru á hendur lög-
reglumönnunum fimm. Yfirvöld
hugleiddu að ákæra lögreglu-
mennina fyrir manndráp af gá-
leysi og líkamsárás en sakir voru
fyrndar samkvæmt þeim laga-
ákvæðum þar sem morðið var
framið árið 1977.
Sannleiks- og sáttanefnd Suð-
ur-Afríku ákvað fyrir tæpum fjór-
um árum að lögreglumönnunum,
sem stóðu að morði Bikos yrði
ekki veitt sakaruppgjöf. Nefndin
sagði engar stjórnmálalegar
ástæður hafa legið að baki morð-
inu.
Steve Biko lést á lögreglustöð í
Pretoríu 12. september 1977 af
völdum heilaskaða sem hann
hlaut við yfirheyrslur. Biko hafði
verið fluttur nakinn og særður um
1.200 kílómetra leið á lögreglu-
stöðina þar sem hann lést. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 24
Sjónvarp 28
MIÐVIKUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á miðvikudögum
82%
52%
20%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
BORGIN VIRÐIR EKKI SAMN-
INGA Reykjavíkurborg neitar að greiða
mótframlag í séreignalífeyrissjóð eins og
tíðkast á almennum vinnumarkaði og hjá
ríkinu. Guðmundur Guðmundsson, trúnað-
armaður hjá Strætó bs., segir þetta óviðun-
andi. Sjá síðu 2.
FRAMLÖG TVÖFÖLDUÐ Samhugur
er meðal þingmanna stjórnar og stjórnar-
andstöðu um að auka þurfi framlög til þró-
unarhjálpar og samvinnu. Í nýrri skýrslu er
lagt til að framlög verði tvöfölduð til ársins
2006. Sjá síðu 2.
SKÓLAR SAMEINAÐIR Bæjarstjórn
Seltjarnarness ætlar að sameina stjórnir
Valhúsaskóla og Mýrarhúsaskóla undir einn
skólastjóra. Meirihlutinn í bæjarstjórn segir
faglegar ástæður ráða. Starfsfólk skólanna
hafnar rökunum. Sjá síðu 4.
RÉTTAÐ YFIR LÖGREGLUMÖNN-
UM Aðalmeðferð tveggja lögreglumanna,
sem ákærðir hafa verið af ríkissaksóknara
fyrir ólöglegar handtökur, ranga skýrslugerð
og brot í opinberu starfi, hófst í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Sjá síður 12-13.
LEIKIÐ Í BIKAR OG DEILD Tveir
leikir fara fram í Remax-deild karla í
handbolta klukkan 20. HK tekur á móti
Breiðabliki og Selfoss mætir Haukum á
Ásvöllum. Þrír leikir fara fram í 16-liða úr-
slitum SS-bikarkeppni kvenna. Fylkir
mætir KA/Þór klukkan 17.30. FH keppir
við Val og Grótta KR við Víking klukkan
19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HVESSIR Í KVÖLD Veðrið verður
skaplegt í dag en óttalega kuldalegt. Þegar
líður á kvöldið færist vindur og úrkoma í
aukana í höfuðborginni. Sjá síðu 6.
8. október 2003 – 245. tölublað – 3. árgangur
Vilji til að kaupa
Landssímann
Einkavæðingarnefnd fundar í dag um sölu Landssímans. Nokkrir hafa lýst áhuga á að kaupa
Símann. Líklegt verð er talið á bilinu 38-45 milljarðar króna. Undirbúningur að sölunni að
hefjast. Hlutabréf ríkisins verða flutt frá samgönguráðherra til fjármálaráðherra.
EINKAVÆÐING Framámenn í ís-
lensku viðskiptalífi hafa mikinn
áhuga á að kaupa Landssímann
og hafa látið þann áhuga í ljós við
Einkavæðingarnefnd. Íslands-
banki og Straumur hafa látið
nefndina vita af áhuga sínum,
Kaupþing Búnaðarbanki hefur
einnig áhuga og Opin Kerfi í
samstarfi við útlenda aðila en
þeir höfðu mikinn áhuga á að
kaupa Símann síðast þegar reynt
var að selja hann. Eins benti
Verðbréfasvið Landsbankans á
það fyrir skömmu að nú væri
rétti tíminn til að selja Símann og
það mat hefur örugglega ekki
farið fram hjá eigendum bank-
ans. Einn eigendanna Björgólfur
Thor Björgólfsson hefur verið að
hasla sér völl á fjarskiptamark-
aði og gert tilboð í samstarfi við
þýska fjárfesta í búlgarska sím-
ann.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
staðfesta áhugann á Símanum og
telja líklegt boðnar verði á bilinu
38-45 milljarða króna fyrir Sím-
ann verði hann seldur í heilu lagi,
en verðið fari eftir markaðsað-
stæðum og skilyrðum í útboðslýs-
ingu sem Einkavæðingarnefnd á
eftir að móta.
Einn heimildarmaður Frétta-
blaðsins sagði að Landssíminn
væri frábært fyrirtæki með gríð-
arlegt sjóðsstreymi og því eftir-
sóknarverður fjárfestingarkost-
ur. Annar benti á að íslenskir
bankar og fjárfestingarfélög
þeim tengd ættu mikið eigið fé
og gætu vel fjárfest í Símanum.
Einnig er því haldið fram að
markaðsaðstæður séu mun hag-
stæðari nú en þegar síðast átti að
selja Símann, haustið 2001.
Áhugi fjárfestanna hefur nú
ýtt við Einkavæðingarnefnd að
ganga í málið að nýju.
Ólafur Davíðsson, formaður
Einkavæðingarnefndar, segir að
undirbúningur að sölu Símans sé
að hefjast. Nefndin fundi í dag og
ræði málið. „Við höfum orðið
varir við áhuga víða og ætlum að
fjalla um undirbúning sölunnar á
morgun [í dag].“ Fyrstu verk
Einkavæðingarnefndar verður
að leita að ráðgjafa vegna söl-
unnar en auglýst verður eftir
honum. Gert er ráð fyrir því að
Síminn verði seldur á næsta ári.
Í stjórnkerfinu er unnið að því
að flytja hlutabréf Símans til
fjármálaráðherra frá samgöngu-
ráðherra sem hefur farið með
það hingað til en óeðlilegt hefur
þótt að sami ráðherra fari með
hlutinn og ber ábyrgð á leikregl-
um á fjarskiptamarkaði.
kgb@frettabladid.is
haflidi@frettabladid.is
SKUNDAÐ Á ÞING Í nógu er að snúast á Alþingi og þingmönnum ekki til setunnar boðið þegar þingstörf eru komin í fullan gang. Þing-
klukkan glymur og kjörnir fulltrúar þjóðarinnar skunda eftir glergöngunum albúnir til að takast á um málefni líðandi stundar.
● heldur stórafmæli á laugardag
Karl Th. Birgisson:
▲
SÍÐA 16
Fertugur í dag
● meiddist um helgina
Rúnar Kristinsson:
▲
SÍÐA 24
Líklega með gegn
Þjóðverjum
● varaforseti Alþingis
Þuríður Backman:
▲
SÍÐA 30
Vill ekki
vera herra
WASHINGTON, AP Bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, sendi skæruliða-
samtökum Hamas fjármuni á laun
meðan Bill Clinton, þáverandi for-
seti Bandaríkjanna, reyndi að miðla
málum í deilu Palestínumanna og
Ísraela. Samkvæmt viðtölum við
fyrrum FBI-starfsmenn og dóm-
skjölum hafði forsetinn enga vit-
neskju um málið.
Nokkur þúsund dollarar voru
sendir á árunum 1998 og 1999 til
einstaklinga sem taldir voru til-
heyra Hamas-samtökunum og var
þetta gert í samráði við leyniþjón-
ustu Ísraels. Aðgerðin hafði hlotið
samþykki hjá Janet Reno, dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna.
Tilgangurinn var að rekja leið
peninganna, hvort þeir yrðu notaðir
til að fjármagna hryðjuverk. Ekkert
slíkt kom fram og alríkislögreglan
handtók engan í aðgerðum sínum.
Fram kom að í að minnsta kosti eitt
skipti voru fjármunir sem FBI sendi
Hamas, notaðir í þágu munaðar-
lausra barna.
FBI segir að í öllum tilfellum
hafi verið sendar lágar fjárhæðir
svo ekki reyndist unnt að fjármagna
stórkostleg hryðjuverk með fjár-
munum FBI. ■
Bandaríska alríkislögreglan FBI:
Sendi Hamas fjármuni á laun
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
waldorf ● einyrkjar
▲
SÍÐA 18-19
nám o.fl.
Hefur mjög
gott af Pílates
Námskeið:
HAMAS SKÆRULIÐAR
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, sendi
Hamas-skæruliðum umtalsverða fjármuni
á sama tíma og Clinton, þáverandi forseti
Bandaríkjanna, reyndi að miðla málum fyr-
ir botni Miðjarðarhafs.
M
YN
D
/A
P