Fréttablaðið - 24.10.2003, Page 31

Fréttablaðið - 24.10.2003, Page 31
31FÖSTUDAGUR 24. október 2003 LAUGAVEGI 178 • SMÁRALIND • KRINGLUNNI • SÍMI 570 7500www.hanspetersen.is PERFECTION 1660 PHOTO • 1600 dpi, 48 lita • Skannar A4 • Tekur 35 mm filmur • Auðveldur í notkun Verð áður 19.900 kr. FÓTBOLTI Ívar Ingimarsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við 1. deildar lið Reading á Englandi. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og líst vel á. Þetta er fínt lið sem komst í um- spil um laust sæti í úrvalsdeild- inni í fyrra,“ sagði Ívar í samtali við Fréttablaðið. Ívar kom til Reading frá Úlf- unum en hann hefur ekkert feng- ið að spreyta sig frá því síðar- nefnda liðinu tókst að tryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni. „Það er lítið mál að fara aftur niður um deild enda hef ég ekk- ert fengið að leika síðan í nóvem- ber í fyrra,“ segir Ívar. „Ég lenti að vísu á bekknum undir það síð- asta en þá vissi ég að ég væri að fara. Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað, þetta er hörkudeild og á góða möguleika næstu ár.“ Crystal Palace var einnig á höttunum eftir Ívari en hann seg- ir það hafa legið beinast við að ganga til liðs við Reading. „Fyrst þeir sýndu mér áhuga fannst mér sjálfsagt að tala við þá. En á end- anum var þetta auðveld ákvörð- un,“ segir landsliðsmaðurinn. Steve Coppell situr við stjórn- völinn hjá Reading. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur áður leikið undir hans stjórn, hjá Brentford og síðar Brighton, þar sem hann var í láni. Reading er sem stendur í tíunda sæti deild- arinnar, níu stigum á eftir topp- liði Wigan. Reading mætir Sheffield United í 1. deildinni í kvöld óvíst er hvort Ívar leiki með. Ívar lék með Val og ÍBV áður en hann fór til Englands. Hann lék með Brentford í tvö og hálft ár en var seldur til Úlfanna sum- arið 2002. ■ Sænska knattspyrnan: Ásthildur skoraði fyrir Malmö FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir skoraði fyrsta mark Malmö FF sem vann Landvetter IF 3-1 í undanúr- slitum sænsku bikarkeppninnar. Landvetter jafnaði fyrir hlé en landsliðsmaðurinn Malin Anders- son skoraði tvisvar í seinni hálfleik. Ásthildur hóf leikinn sem fyrr í framlínu Malmö en eftir innáskipt- ingar seint í leiknum var hún færð aftur í sína hefðbundnu stöðu á miðjunni. Malmö FF mætir Evrópu- meisturum Umeå IK í úrslitum annan laugardag. ■ Íslenskur landsliðsmaður á faraldsfæti: Ívar samdi við Reading ÍVAR INGIMARSSON Lék með íslenska landsliðinu gegn Þjóð- verjum í undankeppni Evrópumótsins í Þýskalandi fyrir skömmu. Hann er nú kom- inn til Reading frá Úlfunum. JÓN ARNÓR MEÐ TVÖ Jón Arnór Stefánsson lék í sjö mínútur með Dallas Mavericks sem tapaði fyrir Sacramento Kings 121-99 á undirbúnings- tímabilinu fyrir NBA-deildina í fyrrinótt. Jón Arnór skoraði tvö stig, gaf eina stoðsendingu, stal boltanum einu sinni og tók eitt frákast. Hann fékk dæmdar á sig þrjár villur. Þetta var fjórði leikur Jóns Arnórs. BECKHAM MEIDDUR David Beck- ham missir að öllum líkindum af viðureign Spánarmeistara Real Madrid og Racing Santander í efstu deildinni á Spáni vegna meiðsla. Beckham meiddist í leik gegn Partizan Belgrad í Meistaradeild Evrópu á miðviku- daginn var. „Ég veit ekki hve alvar- leg meiðslin eru en að öllum líkindum leik ég ekki með um helgina,“ sagði Beckham við spænska fjölmiðla. TOPPMÖLLER TEKUR VIÐ HSV Klaus Toppmöller hefur tekið við þjálfun Hamburger Sport-Verein af Austurríkismanninum Kurt Jara sem stýrt hefur liðinu síð- ustu tvö ár. Hamburger hefur ekki gengið vel í deildinni og sit- ur í þrettánda sæti. ■ Íþróttir Opnunartími virka daga 14.00-18.00 - Laugardaga/Sunnudaga 11.00-18.00 - Stendur til 2. nóv. - Upplýsingasími 511 2226 BANJO Confetti Regatta adidasSPEEDO Triumph BANJO barnafatnaður, NÝTT MERKI - toppvara BANJO ungbarnagallar 1.990 kr. - Fullt verð 3.990 kr. BANJO úlpur 0-3ja ára 1.900 kr. BANJO fóðraðar buxur barna frá kr. 800 Barnasokkar 100 kr. - Fullt verð 300 EXIT T-bolir 500 kr. - Fullt verð 1.990 kr ONLY hlaupabuxur 1.500 kr. - Fullt verð 4.900 CATMANDOO barnaúlpur 2.500 kr. - Fullt verð 5.900 kr. ADIDAS fótboltaskór kvenna 9.450 kr. - Fullt verð 18.900 kr. ADIDAS gallar, fullorðins 4.950 kr. - 9.990 kr. Bakpokar, dömu með GSM vasa 1.900 kr. - Fullt verð 4.900 kr. PUMA stuttbuxur 990 kr. - Fullt verð 2.790 kr. SPEEDO sundbolir og bikini 1.000/1.500 kr. - 2.900/4.900 kr. OKKAR TAKMARK - ÖLL VERÐ 50%-80% UNDIR FULLU VERÐI Nú endurtökum við leikinn einu sinni enn með „Outlet“ sölu að bandarískri fyrir- mynd. Eingöngu merkjavar og verð sem varla sést nema hjá okkur. Mikið af barna- og vetrarfatnaði. Nýjar vörur á hverjum degi!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.