Fréttablaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 33
Leikkonan SandraBullock hefur samþykkt að leika í framhaldsmynd Ms. Congeniality. Ævin- týri lögreglukon- unnar Gracie Hart eru því ekki á enda. Vinsældir fyrri myndarinnar komu mörgum í opna skjöldu árið 2000, en hún halaði inn rúmlega 60 milljón dollara í kassann. Bróðir leikkonunnar CourteneyCox tilkynnti það í spjallþætti Sharon Osbourne að systir sín ætti von á barni. Þetta gerði hann án þess að hún vissi af því. Cox ætlar sér greini- lega að einbeita sér að því að fjölga mannkyn- inu eftir að síð- ustu Friends- þáttaröðinni lýk- ur. 33FÖSTUDAGUR 24. október 2003 ® Fréttiraf fólki MARIAH CAREY Bandaríska söngkonan Mariah Carey sést hér uppstríluð á tónleikum er hún hélt í Zurich, Sviss, á miðvikudag. Hollenskur vísindahópur hefurfengið fjölda sjálfboðaliða til þess að stunda kynlíf á meðan heili þeirra er skannaður. Á með- an á ástaratlotunum stendur verð- ur fólkið að halda höfðinu graf- kyrru og karlmennirnir verða að fá fullnægingu á innan við sjö mínútum. Könnunin er gerð til þess að hjálpa stúdentum við Há- skólan í Groningen í rannsókn sín- um á kynlífsvandamálum. Prófessor Marc Holstege segir að ekki sé hægt að taka heila- myndirnar nema sjálfboðaliðarnir gangist að kröfum þeirra. „Við báðum hópinn um að æfa sig áður en heilaritin voru tekin og allt tókst eins og í sögu,“ sagði hann í viðtali við dagblaðið De Telegraaf. „Karlmennirnir voru beðnir um að hafa sáðlát á innan við sjö mínútum og það tókst þeim öllum.“ Á meðal þess sem vísinda- mennirnir hafa komist að í rann- sóknum sínum er að fullnæging hefur svipuð áhrif á heilann og þegar líkamanum er gefin skammtur af heróíni. Hópurinn vonast til að rann- sóknirnar leiði til þess að lækna megi „sálræn“ vandræði í kynlíf- inu á svipaðan hátt og Viagra hjálpar karlmönnum við líkamleg vandræði þeirra í kynlífinu. ■ Skrýtnafréttin VÍSINDI ■ Hollenskir vísindamenn fengu nýlega hóp af sjálfboðaliðum til þess að stunda kynlíf á meðan tekið var af þeim heilarit. Í HEILASKANNANUM Ekki var greint frá því hversu marga karl- menn þurfti að vekja eftir að þeir fengu fullnægingu í heilaskannanum. Fullnæging eins og heróínskammtur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.