Fréttablaðið - 09.11.2003, Page 34
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
14.00 Norska kvikmyndin Glerbrot
verður sýnd í Barnabíói í Norræna hús-
inu. Ókeypis aðgangur!
15.00 Tsapajev nefnist kvikmyndin
sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg
10. Mynd þessi var gerð í Sovétríkjunum
1934 og voru leikstjórar svonefndir
Vassílíev-bræður. Enskur texti. Ókeypis
aðgangur.
■ ■ TÓNLEIKAR
15.00 Eftirmiðdagsjazz á Hótel
Borg á Jazzhátíð Reykjavíkur. Trompet-
stjarnan Ingrid Jensen leikur með orgel-
tríóinu B3, sem er skipað þeim Ásgeiri
J. Ásgeirssyni gítarleikara, Agnari Má
Magnússyni hammondorganista og
Eric Qvick trommara.
16.00 Caritas á Íslandi efnir til
styrktartónleika fyrir Sjónarhól, sérstök
börn til betra lífs, í Kristskirkju við
Landakot. Flytjendur eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópran, Guðný Guð-
mundsóttir fiðluleikari, Áshildur Har-
aldsdóttir flautuleikari, stúlknakór
Reykjavíkur undir stjórn Margretar
Pálmadóttur, Gunnar Kvaran sellóleik-
ari og Ulrik Ólason orgelleikari.
17.00 Unglingakór Dómkirkjunnar
og Stúlknakór Bústaðakirkju halda
tónleika í Dómkirkjunni. Flutt verður
kirkjuleg tónlist og veraldleg og þekkt ís-
lensk og erlend þjóðlög.
17.00 Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna heldur tónleika í Seltjarnarnes-
kirkju. Leikinn verður Brandenborgar-
konsert nr. 3 efitr Johann Sebastian
Bach, fagottkonsert í C-dúr eftir Vivaldi
og Haffnersinfónían eftir Mozart. Stjórn-
andi á tónleikunum er Ingvar Jónasson
og einleikari á fagott er Sigríður Krist-
jánsdóttir.
20.30 Lokatónleikar Jazzhátíðar
Reykjavíkur 2003 verða í Austurbæ við
Snorrabraut. Fram kemur sönghópurinn
New York Voices ásamt Stórsveit
Reykjavíkur undir stjórn Darmons
Meader.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
17.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner á stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Leikfélag Fljótsdalshéraðs
sýnir Gaukshreiðrið í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum í leikstjórn Odds Bjarna Þor-
kelssonar.
20.00 Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht á stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 CommonNonsense, byggt á
myndlist Ilmar Stefánsdóttur, er sýnt á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
20.00 Veislan á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
20.00 Græna landið eftir Ólaf
Hauk Símonarson er sýnt í Frumleik-
húsinu í Keflavík.
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Kitty H. M. Waage opnar
myndlistarsýningu í félagsmiðstöðinni
Árskógum 4, Reykjavík. Opið hús frá
10-16 alla virka daga.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Capri-tríó leikur fyrir dansi í
Ásgarði, Glæsibæ.
Richard Scoobie og Gunnar Bjarni
(JBJ) verða með tónleika á Gauknum.
■ ■ ÚTIVIST
11.00 Ferðafélag Íslands efnir til
gönguferðar í Byrgin norðan Grindavík-
ur. Í Grindavík verður Saltfisksetur Íslands
heimsótt, en sjálf gangan hefst við Húsa-
tóftir og gengið verður um Byrgin að Eld-
vörpum. Ferðinni lýkur við Bláa lónið. Far-
arstjóri Þórunn Þórðardóttir. Brottför frá
BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
■ ■ FUNDIR
15.30 Félagið Ísland-Palestína
boðar til fundar í Norræna húsinu á al-
þjóðlegum baráttudegi gegn aðskilnað-
armúrnum á Vesturbakkanum.
■ ■ SAMKOMUR
17.00 Hátíðarsamkoma verður í
húsi KFUM og K við Holtaveg kl. 17 í til-
efni kristniboðsdagsins. Ungt fólk frá
kirkjunni okkar í Kenýju segir frá lífi og
starfi í Pókot. Hinn vinsæli Kangakvar-
tett syngur og Ómar Ragnarsson,
fréttamaður, segir frá ferð sinni til Eþíóp-
íu. Að samkomu lokinni gefst fólki tæki-
færi á að smakka eþíópískan mat.
Sunnudagar eru barnadagar í aðal-
safni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15
og í dag verður myndbandið Brúðubíll-
inn sýnt á fyrstu hæð.
■ ■ MESSUR
11.00 Jazzmessa verður Kópa-
vogskirkju á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Sálmar Lúthers í flutningi Björns
Thoroddsen á gítar, Stefáns Stefáns-
sonar á saxa, Jóns Rafnssonar á bassa,
Eric Qvick á trommur. Dr. Sigurjón A.
Eyjólfsson þjónar fyrir altari og segir frá
afstöðu Lúthers til tónlistar.
■ ■ SÝNINGAR
Í Listasafninu á Akureyri voru í gær
opnaðar tvær sýningar. Blómrof nefnist
sýning á málverkum Eggerts Péturs-
sonar í austur- og miðsal safnsins. Í
vestursal sýnir Aaron Michel innsetn-
ingu á skúlptúrum og teikningum sem
hann kallar Minningar og heimilda-
söfn.
Í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39,
sýnir Ágústa Oddsdóttir verkið „365
sinnum“. Í kjallara sýnir svo Margrét
O. Leópoldsdóttir innsetinguna „Sjó-
gangur“.
Anna Snædís Sigmarsdóttir opnaði
í gær sýninguna Undirheimar heimilis-
ins í sýningarsal Íslenskrar grafíkur,
sem er hafnarmegin í Hafnarhúsinu.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Íslensk og alþjóðleg samtímalistaverk
eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
34 9. nóvember 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
6 7 8 9 10 11 12
NÓVEMBER
Sunnudagur
Fyrsta kvikmyndin sem samditónlist við var Hitaveituævin-
týrið eftir Þorgeir Þorgeirson. Þá
var þetta ein mínúta hér, fimmtán
sekúndur þar og svoleiðis, þannig
að það hefur kannski ekki neina
heildstæða mynd,“ segir Jón Ás-
geirsson tónskáld. „Aftur á móti
þegar ég samdi fyrir Hafið núna
síðast þá vildi Baltasar að ég semdi
eitt lag sem hægt væri að spila
sem gegnumgangandi melódíu í
myndinni. Þetta lag átti að mynda
andstæðu við myndina. Upp úr því
samdi ég svo flautukonsert, en
hann hefur ekki verið spilaður
ennþá.“
Í kvöld verða tónleikar í Salnum
í Kópavogi, þar sem KaSa hópurinn
flytur kvikmynda- og leikhústónlist
eftir Jón.
Fyrst verða fluttir verða kaflar
úr tveimur konsertum eftir Jón,
öðrum fyrir horn, hinum fyrir
víólu. Stef í báðum þessum konsert-
um voru samin fyrir kvikmyndir.
Að því búnu er komið að leikhús-
tónlistinni. Flutt verður Lax-
nesssyrpa með lögum sem Jón
samdi fyrir leiksýninguna Heims-
ljós, sem gerð var eftir samnefndri
sögu Halldór Laxness. Sum þessara
laga hafa notið mikilla vinsælda
meðal þjóðarinnar.
„Ég útsetti þessi lög sérstaklega
fyrir KaSahópinn núna. Fólk hefur
mikið viljað syngja þessi lög, sum
þeirra. Maður hefur samt enga hug-
mynd um það hvaða lög ganga í
fólk. Sjálfum fannst mér eitt af
þessum lögum vera best og Lax-
ness fannst það líka. En það hefur
enginn tekið eftir því lagi.“
Loks verða flutt atriði úr óperu
Jóns, Galdra-Lofti, frá árinu 1994.
Þar verður Jón í hlutverki sögu-
manns, en þau Elín Ósk Óskarsdótt-
ir sópran, Bergþór Pálsson baritón
og Þorgeir Andrésson tenór sjá um
sönginn.
Tónleikarnir í Salnum eru af-
mælistónleikar í tilefni af 75 ára af-
mæli Jóns.
„Afmælið mitt er löngu liðið en
þau vildu hafa þetta svona. Maður á
víst að vera orðinn gamall og virðu-
legur borgari.“
Jón Ásgeirsson er samt enn að
semja tónlist á fullu.
„Þetta er geðveiki sem eykst
með aldrinum. Ég er að semja óp-
eru óperu núna, en tafðist við það
því ég þurfti að klára þrjá
strengjakvartetta og tvo konser-
ta. Þá beið óperan rétt á með-
an.“ ■
Bókið hópa núna! Keramik fyrir alla,
Laugavegi 48b, sími 552 2882,
www.keramik.is
Opið alla virka daga kl. 11-18,
laugardaga 13-17,
opið hús miðvikudagskvöld kl. 20-23.
Hvernig fannst þér í
Keramik fyrir alla?
- Við fórum í bekkjarferð úr skólanum og
allir voru í sjöunda himni
Sigrún úr foreldraráði.
NEW YORK
VOICES
Söngvararnir Darmon Meader, Kim Nazarian,
Peter Eldridge og Lauren Kinhan skipa New York
Voices sönghópinn. New York Voices hefur farið
sigurför um heiminn undanfarin ár. Meaders hefur
útsett klassísk jazzlög og söngdansa fyrir
sönghópinn og stórsveit og er ekki að efa að það
verður heitt í kolunum á lokatónleikum
Jazzhátíðar. Jazz fyrir alla sem unna heitri sveiflu.
Austurbær kl. 20:30 - kr. 2.900
ÁSAMT STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR
GrammyverðlaunahafarnirÍ kvöld
Forsala aðgöngumiða í JAPIS Laugavegi og
Uppplýsingmiðstöð Ferðamanna, Aðalstræti 2.
www.ReykjavikJazz.com/
Íkvöld mun Hlín Agnarsdóttir,rithöfundur og leikstjóri, mæta
niður í Borgarleikhús og spjalla
við gesti um óðalsbóndann Púntila
og áfengisfíkn hans á undan leik-
sýningunni Púntila bóndi og Matti
vinnumaður eftir Berthold
Brecht. Í bók Hlínar, Að láta lífið
rætast, fjallar hún um Púntila
bónda í tengslum við viðfangsefni
bókarinnar sem er ástarsaga að-
standenda áfengissjúklinga en
Hlín skrifaði lokaritgerð í leik-
stjóranámi á sínum tíma um lit-
ríka persónu Púntila og hann kem-
ur fyrir í einum kafla bókar henn-
ar. Spjallið verður í forsal leik-
hússins en salurinn opnar klukkan
19. Sýningin, sem fékk þrjár til-
nefningar til Grímuverðlaunanna
síðastliðið vor, hefst klukkan 20
en í aðalhlutverkum eru Theodór
Júlíusson, Bergur Þór Ingólfsson
og Harpa Arnardóttir. ■
HLÍN AGNARSDÓTTIR
Spjallar við gesti um áfengisfíkn Púntila bónda í forsal Borgarleikhússins á undan sýningu
Spjall um áfengisfíkn
■ TÓNLIST
Geðveiki sem eykst
með aldrinum
KASA-HÓPURINN
Jón Ásgeirsson tónskáld vantar á myndina, en hann verður í aðalhlutverki á tónleikum hópsins í Salnum í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T