Fréttablaðið - 09.11.2003, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 09.11.2003, Blaðsíða 39
39SUNNUDAGUR 9. nóvember 2003 „Tískan er í raun eitt form ljótleik- ans - svo óþolandi að henni verður að breyta á sex mánaða fresti.“ (Oscar Wilde, breskt skáld, 1854-1900.) Tískan Hugleiðing Bland í poka og dýrin í Hálsa-koti, 20 ljóð og lög eftir Birgi Svan Símonarson, er komin út. Viðfangsefni bókarinnar eru dýr- in sem okkur þykir vænst um. Bókinni fylgja nótur og gítargrip fyrir þá sem hafa gaman af spili og söng. Kristín Arngrímsdóttir myndskreytir. Samhliða útgáfu bókarinnar er gefinn út geisla- diskur með 16 lögum úr bókinni. Dragdrottning Íslands, Ólaf-ur Helgi Ólafsson, hefur nóg að gera í næstu viku: „Ég verð á fullu að auglýsa út- gáfupartí Kylie Minouge sem verður haldið á Felix á laugar- dagskvöldið og vona að sjón- varps- og útvarpsstöðvarnar taki mér vel. Ég vann titilinn dragdrottning Íslands með lagi eftir Kylie og upp frá því fékk ég æði fyrir söngkonunni og hef fylgst með því sem er að gerast á heimasíðunni hennar. Ég tók eftir því að hún er að senda frá sér nýja plötu, Body Language, og hugsaði með mér að það væri gaman að heiðra söngkonuna með því að halda útgáfupartí hér á landi. Ég fékk leyfi til að halda útgáfupartí á Felix og sé um að skipuleggja skemmti- atriðin en Skífan ætlar vonandi að gefa nokkra geisladiska í partíinu. Það fer svo auðvitað einhver tími í að æfa atriðið sem ég flyt á kvöldinu.“ En hvernig koma skemmti- atriðin til með að líta út í partí- inu: „Ég er búinn að hafa sam- band við nokkrar dragdrottn- ingar og þær ætla að koma í gervi Kylie og stæla ný og gömul lög með Kylie. Það á að koma á óvart hvaða drottningar mæta á svæðið en margar þeirra eru þekktar í bransanum. Ólafur segir Kylie Minouge því miður ekki komast í útgáfupartíið: „Hún mætir ekki á svæðið í eigin persónu þar sem hún er með útgáfutónleika sama kvöld í Hammer- smith Appollo í London en gestir kvöldsins munu án efa finna fyrir nærveru hennar í gegnum glæsileg- ar drottningar.“ ■ Vikan sem verður ÓLAFUR HELGI ÓLAFSSON ■ Dragdrottning Íslands Sabrína eða Ólafur Helgi Ólafsson skipuleggur út- gáfupartí til heiðurs söngkonunni Kylie Minouge sem haldið verður á Felix á laugardagskvöldið. Skipuleggur útgáfupartí fyrir Kylie Minouge Nú er komin út minningabókinEins og ég man það eftir El- ínu Pálmadóttur en hún á að baki einstakan feril bæði heima og er- lendis og hefur um áratuga skeið verið blaðamaður. Í fréttatilkynn- ingu útgefanda segir að Elín hafi ung tekið þátt í störfum Sameinuðu þjóðanna í New York í árdaga samtakanna og kynnst listalífi Parísar á sjötta áratugnum með Gerði Helgadótt- ur myndhöggvara. Svo gisti hún flóttamannaeyju í Asíu, varð bensínlaus í afskekktum skógi í Afríku og steig fyrst kvenna fæti á íseyju norður í höfum og fór á átakasvæði heimsins með friðar- gæsluliði Sameinuðu þjóðanna allt fram á þetta ár þar sem hætt- ur leyndust við hvert fótmál. ■ Nýjar bækur ■ Nýjar bækur Út er komin hjá Máli og menn-ingu bókin Að baki daganna sem hefur að geyma tvær ljóða- bækur Péturs Gunnarssonar í einni. Þetta eru bækurnar Að baki daganna - ljóð og textar (1974-2001) og Splunkunýr dagur (1973). Pét- ur hefur ekki gef- ið út ljóðabók í 30 ár, en fyrsta bók hans, Splunku- nýr dagur, er löngu uppseld og hefur verið með öllu ófáanleg í áratugi. Þá er í bókinni formáli Péturs um aðdraganda og tilurð Splunkunýs dags. ■ Leiðrétting Í samtali við Ásgerði Flosadóttur í blaðinu á fimmtudag kom fram kom að ágóði af sölu geisladisks sem Gerður G. Bjarklind hefur val- ið lögin á, rynni óskiptur til Mæðrastyrks- nefndar. Hið rétta er að ágóðinn skiptist jafnt á milli Fjölskylduhjálpar Íslands og Mæðra- styrksnefndar. ÍSLENSK KYLIE MINOUGE Ólafur Helgi Ólafsson kom sá og sigraði dragkeppni Íslands í gervi Kylie Minouge. Hann skipuleggur nú útgáfupartí fyrir drottninguna. Það hefur loksins fengist stað-fest að breska rokkhljómsveit- in Muse heldur tónleika hér á landi í næsta mánuði. Þeir fara fram í Laugardalshöll miðviku- daginn 10. desember. Þremenningarnir í Muse hafa reyndar komið hingað að minnsta kosti einu sinn áður en þá tók sveitin upp myndband á svörtum söndum Hólasands fyrir norðan. Talsmenn Örlygs, umsjónar- manna Airwaves-hátíðarinnar sem flytja sveitina inn, segja þá Matthew Bellamy söngvara og fé- laga hans hafa viljað koma hingað í lengri tíma. Ekki hefur náðst að setja Íslandstónleika inn á anna- sama áætlun þeirra fyrr en núna. Vinsældir nýjustu breiðskífu þeirra Absolution, sem er sú þrið- ja í röðinni, hafa verið gífurlegar og hefur sveitin leikið á um 40 tónleikum víðs vegar um heim á síðustu tveimur mánuðum. Miðasala á Muse-tónleikana hefst í verslunum Skífunar á næsta föstudag, 14. nóvember. ■ Tónlist ■ Hljómsveitin Muse heldur tónleika hér á landi í næsta mánuði.. Muse staðfesta komu sína MUSE Þremenningarnir í Muse eru á leiðinni. Tónleikarnir verða í Laugardalshöllinni, miðviku- daginn 10. desember.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.