Fréttablaðið - 30.11.2003, Page 4
4 30. nóvember 2003 SUNNUDAGUR
Ætlar þú, eða ertu búin(n) að
fara, á skíði fyrir jól?
Spurning dagsins í dag:
Á Íslensk erfðagreining eftir að koma
upp gagnagrunni á heilbrigðissviði?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
89%
11%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lottó
Formaður fjárlaganefndar Alþingis um Landspítalann:
Rekstrarvandinn er eilífðarverkefni
LANDSPÍTALINN „Ég tel mikilvægt að
gera það sem hægt er til að leysa
rekstrarvanda Landspítalans. Það
eru misjafnar skoðanir um málið
innan fjárlaganefndar en menn
vinna sameiginlega að því að
tryggja að betur verði haldið utan
um stofnunina,“ segir Magnús
Stefánsson, formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis.
Samkvæmt skýrslu Ríkisendur-
skoðunar hefur sameining sjúkra-
húsanna aukið kostnað stofnunar-
innar. Rekstraráætlun þessa árs
gerði ráð fyrir 300 milljóna króna
halla en nú er útlit fyrir að hann
verði um tveir milljarðar í árslok.
Sérstök nefnd skilar væntanlega í
lok vikunnar skýrslu um fjármála-
stjórnun og áætlanagerð spítalans.
„Rekstrarvandi spítalans er
eilífðarverkefni og skýrsla Ríkis-
endurskoðunar er eitt af þeim
mörgu verkefnum og aðgerðum
sem miðar að því að leysa hann og
skilgreina,“ segir Magnús.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar sem sit-
ur í heilbrigðisnefnd, segir að
rekstrarvandi Landspítalans felist
í því að stjórnvöld hafi einblínt um
of á hagræðingu hans til langs
tíma.
„Það hefur ekki verið tekið tillit
til þess mikla kostnaðar sem sam-
eining sjúkrahúsanna hafði í för
með sér og þess vegna hefur þessi
mikli hallarekstur verið. Fjárveit-
ingavaldið hefur brugðist í þessu
máli,“ segir Margrét. ■
Unnið er að
lagabreytingu
Heilbrigðisráðherra hefur lagt fyrir starfsmenn ráðuneytisins að undir-
búa breytingar á lögum um gagnagrunn. Prófessor í lögum telur að hægt
verði að fella úr gildi rétt fólks til að segja skyldmenni úr grunninum.
GAGNAGRUNNUR Gera þarf breyt-
ingar á lögum um gagnagrunn á
heilbrigðissviði til þess að hægt
verði að hefjast handa við gerð
hans. Þetta er samdóma álit
þeirra sem að málinu koma, þar á
meðal heilbrigðisráðherra.
Dómur Hæstaréttar frá því á
fimmtudaginn gerir fjölmargar
athugasemdir við lögin og þar er
því haldið fram að ýmsar reglur
um meðferð
persónuupplýs-
inga í grunnin-
um þurfi að fast-
ákveða með lög-
um en ekki nægi
að setja reglu-
gerðir og til-
mæli þar um.
Í ljósi dóms-
ins hefur Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra lagt fyrir starfs-
menn ráðuneytisins að hefja
vinnu við lagafrumvarp um breyt-
ingar á lögum um gagnagrunn á
heilbrigðissviði. Hann segir að
ekki dugi að deila við dómarann í
þessum efnum og því þurfi að
bregðast við athugasemdum
Hæstaréttar. Hann segist ekki
eiga von á því að frumvarp þess
efnis verði lagt fyrir á þessu ári
en vonast til þess að það verði
sem fyrst; í öllu falli verði málið
rætt á vorþingi.
Jón telur að úrskurður Hæsta-
réttar sé tvíþættur. Annars vegar
fjalli hann um rétt afkomenda til
að draga upplýsingar um látna
foreldra og skyldmenni úr gagna-
grunninum; hins vegar snúi hann
að persónuverndarákvæðum.
„Ég hef lagt svo fyrir að það
verði farið í þá vinnu að vinna
frumvarp um breytingu á lögun-
um því það er áríðandi að eyða
þeirri réttaróvissu sem þarna er
svo lögin þurfi ekki að koma í veg
fyrir að þessi gagnagrunnur fari
af stað. Það er mjög áríðandi mál
að mínu mati þótt það hafi dregist.
Það er nauðsynlegt að lagaum-
hverfið sé þannig að það sé þessu
verkefni ekki fjötur um fót,“ seg-
ir Jón.
Davíð Þór Björgvinsson, laga-
prófessor við Háskólann í
Reykjavík, segir að sé það ósk
löggjafans sé hægt að haga
breytingunum þannig að réttur
einstaklinga til að segja látin
skyldmenni sín úr grunninum
falli niður.
thkjart@frettabladid.is
Innbrotsþjófur:
Stal bíl og
skartgripum
INNBROT Brotist var inn í íbúðarhús
í Keflavík í vikunni en heimilisfólk-
ið er í útlöndum. Maður sem hefur
litið til með húsinu tilkynnti um inn-
brotið um klukkan eitt í gær.
Þjófurinn hafði farið inn um
glugga og tók úr húsinu mikið af
munum, auk bifreiðar úr bílskúr.
Um mikil verðmæti er að ræða, þar
á meðal skartgripi, sjónvarp,
myndbandstæki og málverk. Lög-
reglan lýsir eftir bílnum, sem er
brúnn Chrysler Town and Country
númer EP-711. Hver sem hefur
upplýsingar um innbrotið eða bíl-
inn er beðinn um að hafa samband
við lögregluna í síma 420-2400. ■
Keflavík:
Braust inn í
heimahús
INNBROT Brotist var inn í íbúðar-
hús í Keflavík um miðja nótt, að-
faranótt laugardags.
Heimilisfólk vaknaði við þrusk
niðri og héldu foreldrar í fyrstu
að börnin væru á ferli. Þegar bet-
ur var að gáð var innbrotsþjófur á
ferð og elti heimilisfaðirinn
þjófinn einhvern spöl en varð að
snúa við sökum hversu illa klædd-
ur hann var. Hann fór þá á bíl sín-
um til að halda áfram leitinni. Á
flóttanum henti þjófurinn frá sér
þýfinu. Lögreglan í Keflavík hef-
ur ungan mann í haldi grunaðan
um verknaðinn. ■
Náttúruverndarsamtök
Íslands:
Hrepps-
nefnd verð-
launuð
NÁTTÚRUVERND Hreppsnefnd Skeiða-
og Gnúpverjahrepps fékk sérstök
hvatningarverðlaun Náttúruvernd-
arsamtaka Íslands á árlegum haust-
fagnaði samtakanna í gærkvöldi.
Verðlaunin fékk hreppsnefndin fyr-
ir framlag sitt til verndunar Þjórs-
árvera. Þetta er í fyrsta sinn sem
slík hvatningarverðlaun eru veitt.
„Hreppsnefnd hefur, líkt og
heimamenn margir, sýnt mikla stað-
festu í því að vernda Þjórsárver og
án þessara staðföstu heimamanna
hefði ekki náðst sá árangur sem
þegar hefur náðst,“ segir Árni
Finnsson, formaður Náttúruvernd-
arsamtaka Íslands. ■
JÓN KRISTJÁNSSON
Stefnir að því að leggja fram breytingar á lögum á vorþingi.
„það er
áríðandi að
eyða þeirri
réttaróvissu
sem þarna er.
GAGNAGRUNNSMÁLIÐ Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs, segir
að dómur Hæstaréttar í máli konu
sem vildi fjarlægja upplýsingar um
látinn föður sinn úr miðlægum
gagnagrunni á heilbrigðissviði, sé
enn eitt kjaftshöggið fyrir ríkis-
stjórnina og þingmeirihlutann.
Hann segir að með þessum dómi
sé Hæstiréttur enn einu sinni að
siða ríkisstjórnina til fyrir að brjóta
á grundvallarréttindum fólks.
„Hitt er svo annað mál að enn
bólar ekkert á þessum gagna-
grunni svo þetta hefur kannski
ekki praktískt gildi nema að hugs-
anlega hafi þetta eitthvað for-
dæmisgildi gagnvart meðferð
sjúkraskráa eða slíkra hluta al-
mennt,“ segir Steingrímur J.
Steingrímur telur ljóst að
breyta þurfi lögum um gagna-
grunn áður en vinna við hann fer
af stað.
Steingrímur segir það vera
rannsóknarefni út af fyrir sig að
ýmsar heilbrigðisstofnanir hafi
lagt út í kostnað til þess að undir-
búa samstarf við Íslenska erfða-
greiningu um gerð gagnagrunns
en ekkert hafi enn orðið úr því
samstarfi. ■
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Segir að Hæstiréttur sé enn einu sinni að siða ríkisstjórnina til.
Steingrímur J. Sigfússon um gagnagrunnsdóminn:
Enn eitt kjaftshöggið
STÁLU SKREYTTU JÓLATRÉ
Eins og hálfs metra háu full-
skreyttu jólatré var stolið úr
fallegasta garðinum á Egilsstöð-
um í nótt, að sögn lögreglunnar.
Eigandi trésins hafði farið til Ak-
ureyrar á föstudag til að kaupa
jólatréð og var fram á nótt að
setja það upp. Þegar hann vakn-
aði var tréð horfið.
STÚTAR UNDIR STÝRI
Einn var tekinn fyrir ölvunar-
akstur í Kópavogi í fyrrinótt. Þá
varð annar að láta lyklana af
hendi þar sem hann var með
áfengi í blóði en reyndist vera
undir mörkum.
EINN GRUNAÐUR UM ÖLVUN
Fimm umferðaróhöpp urðu á Ak-
ureyri í gær. Engin slys urðu á
fólki en nokkurt eignatjón varð.
Einn ökumannanna er grunaður
um ölvun við akstur og var færð-
ur á lögreglustöðina í blóðtöku.
■ Lögreglufréttir
Spænskir leyniþjónustu-
menn:
Myrtir úr
launsátri
ÍRAK Ráðist var á hóp spænskra
leyniþjónustumanna í Írak í gær.
Setið var fyrir þeim suður af
Bagdad.
Stjórnvöld á Spáni sögðu sex
þeirra hafa látist og einn særst.
Blaðamaður, sem átti leið fram-
hjá árásarstaðnum, sagði mannfjöld-
ann hafa sparkað „fagnandi“ í lík á
veginum. Sumir í hópnum fullyrtu að
bandarískir leyniþjónustumenn
væru meðal hinna látnu. Tvær ger-
eyðlagðar bifreiðar voru þar rétt
hjá.
Þyrla var send á vettvang og náði
hún í líkin sex og særða Spánverj-
ann.
Í Írak eru nú staddir um það bil
þúsund spænskir hermenn. Fyrir
nokkrum vikum var spænskur
stjórnarerindreki, sem starfaði fyrir
spænsku leyniþjónustuna, myrtur
skammt frá íbúð sinni í Bagdad. ■
TÆPAR SJÖ MILLJÓNIR Einn var
með allar tölur réttar í Lottóinu
og fékk að launum 6,6 milljónir.
Réttu tölurnar voru 3, 13, 17, 21
og 28. Bónustalan var 30.
MAGNÚS STEFÁNSSON
Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að
unnið sé að því að tryggja að betur verði
haldið utan um rekstur Landsspítalans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M