Fréttablaðið - 30.11.2003, Blaðsíða 18
tfall innlendra hlutabréfa lágt
fni sjóðsins, um 5-7%. Við höf-
það markmið að innlend hluta-
f séu um 10% af heildarsafn-
, þannig að við höfum verið að
upa töluvert af innlendum
tabréfum frá þessum tíma og
kannski verið áberandi, auk
s sem sjóðurinn hefur stækkað
kið á sama tíma.“
Tímasetningin hefur reynst
pileg því innlendur markaður
ur hækkað mikið undanfarin
seri og ávöxtun sjóðfélaga góð
þessum fjárfestingum. Sam-
ða hafa orðið miklar breytingar
markaði og umhverfi íslensks
skiptalífs. „Það hafa orðið mikl-
breytingar síðustu tíu til fimmt-
ár og það má eiginlega segja að
ytingarnar síðustu þrjú ár séu
iri en breytingarnar síðustu tíu
á undan.“ Stærstu breyting-
ar eru sókn útrásarfyrirtækja
einkavæðing bankanna, breyt-
ar sem munu að mati Alberts
a jákvæð áhrif til framtíðar.
ð er gríðarlega mikið að gerast
samfélagið að þróast úr bænda-
mfélagi yfir í þróað alþjóðlegt
mfélag.“
mkeppnisforskot
Íslendingar eru ekki frægir
ir forsjálni í fjármálum, en líf-
issjóðakerfið er undantekning
því. „Þetta er eitt af þremur
tu lífeyrissjóðakerfum í heim-
m og veitir okkur samkeppnis-
skot,“ segir Albert. Stærð líf-
issjóðanna er 100% af lands-
mleiðslu, sem er mun hærra
tfall en hjá öðrum þjóðum. Þar
ir utan eru margar þjóðir með
gnumstreymiskerfi í stað fullr-
sjóðsöfnunar, sem þýðir að
nandi fólk á hverjum tíma
ndur undir lífeyrisgreiðslum
ðar sinnar. Það getur reynst
ngur baggi. Íslendingar eru þar
ir utan 10 til 15 árum yngri að
ðaltali. „Það stefnir í að lífeyr-
óðirnir tvöfaldist á næstu 6 til
rum og verði þá komnir í 150%
landsframleiðslu. Það er með
því besta sem gerist í heiminum.
Það mun leiða til þess að lífeyris-
sjóðirnir verða ein stærsta auð-
lind Íslands.“ Albert segir þessa
staðreynd gríðarlega mikilvæga
fyrir samfélagið. „Lífeyriskerfið
getur stutt við bakið á framþróun
og alþjóðavæðingu viðskiptalífs-
ins og stuðlað að bættum lífskjör-
um til lengri tíma. Lífeyriskerfið
er ein stærsta auðlind okkar.“
Stærð lífeyrissjóðanna er því
mikill stuðningur við uppbygg-
ingu atvinnulífsins. Albert leggur
áherslu á að hvergi megi slaka á
kröfunni um arðsemi fjárfesting-
anna. Hann segir visst áhyggju-
efni að fimm fyrirtæki séu 55% af
heildarmarkaðsverði félaga
skráðra í Kauphöll Íslands. Þessi
fyrirtæki séu smá eða meðalstór á
alþjóðlegan mælikvarða. „Það er
því mikilvægt að fyrirtækjum
fjölgi og að erlendir aðilar komi
inn á markaðinn.“ Hann segir út-
rásarfyrirtæki eins og Pharmaco,
Bakkavör og Össur, auk útrásar-
verkefna bankanna, vera mjög
spennandi og gefa mikla mögu-
leika. „Þessi fyrirtæki endur-
spegla gríðarlegar breytingar í at-
vinnulífi okkar. Þarna eru stjórn-
endur með skýra framtíðarsýn,
vilja og þor til þess að takast á við
slík verkefni. Að mörgu leyti hef-
ur tekist mjög vel til, en það er
mikilvægt að menn hafi úthald til
þess að þroska fyrirtækin með
þessum gríðarlega vexti.“ Hann
bendir á að í gegnum þessi verk-
efni hafi orðið til gríðarleg
reynsla sem muni nýtast atvinnu-
lífi framtíðarinnar. „Menn fara út
og takast á við mun harðari sam-
keppni en hér heima og það á eft-
ir að gera þá sterkari.“
Upplýsingar mikilvægar
Í ljósi þessarar útrásar segir Al-
bert það mikilvægt að upplýsinga-
gjöf fyrirtækjanna sé góð. „Þróun-
in er sú að stjórnendur eru sífellt
að verða meðvitaðri um góð tengsl
við fjárfesta og að gefa upplýsing-
ar um forsendur í rekstrinum.
Þetta er gríðarlega mikilvægt með
fyrirtæki sem eru í örum vexti á
erlendum mörkuðum.“ Hann segir
að það sem muni stuðla öðru frem-
ur að þroska markaðarins séu út-
rásarverkefni og innkoma er-
lendra fjárfesta á markaðinn.
„Kaup erlendra fjárfesta á íslensk-
um skuldabréfum sýna traust á
innviðum efnahagskerfisins. Þó að
markaðurinn sé lítill erum við með
sams konar innviði og menntunar-
stig og stærri þróuð iðnríki.“ Al-
bert er bjartsýnn á þróun íslensks
efnahagslífs. „Ef við horfum á þá
fimm þætti sem munu skapa hag-
sæld okkar, þá eru það lífeyris-
kerfið, náttúruauðlindir, menntun-
arstig sem er hátt og auk þess
sækjum við okkur menntun um all-
an heim. Ferðamannaiðnaðurinn á
líka eftir að vaxa mikið. Þróunin er
í þá átt að við verðum alþjóðlegri í
allri hugsun. Við eigum að geta
komist mjög langt í alþjóðlegu
samhengi.“
Albert segir erlend hlutabréf
eiga eftir að verða stærri hluta ís-
lenskra lífeyrissjóða á næstu
árum. Það sé skynsamlegt út frá
áhættudreifingu. Lífeyrissjóðir
byrjuðu erlend hlutabréfakaup
þegar markaðir voru í hámarki,
flestir í litlum mæli. „Við fórum
aðeins seinna af stað en margir
aðrir og fórum okkur hægt. Við
höfum verið að kaupa jafnt og þétt
allan lækkunarferilinn og höldum
því áfram nú þegar markaðir virð-
ast vera að taka við sér.“ Hann
segir lífeyrissjóðina þurfa að
skoða fjárfestingarkosti á heims-
vísu vegna mikils vaxtar lífeyris-
kerfisins til að ná áhættudreifingu
auk þess sem minna framboð
verði af frambærilegum fjárfest-
ingarkostum innanlands til lengri
tíma. Mikilvægt sé líka að fylgja
fjárfestingarstefnu sinni þrátt
fyrir sveiflur á mörkuðum. „Það
er að mörgu leyti það erfiðasta
sem sjóðstjóri gerir; að fylgja
stefnunni þegar hún fer ekki sam-
an við það hvernig vindurinn blæs
hverju sinni,“ segir Albert. Á
skrifstofunni hangir heimskort.
Verkefnin eru næg og heimurinn
er undir. Hvergi glittir í alla millj-
arðana á skrifstofunni. Þeir eru
annars staðar, í skipulegri dreif-
ingu, þar sem þeir vaxa til þess að
búa í haginn fyrir framtíðina.
haflidi@frettabladid.is
17NNUDAGUR 30. nóvember 2003
Veitir stjórnendum betri yfirsýn
• Nákvæm kostnaðargreining
• Fjölbreyttir skýrslumöguleikar
Öflugt og sveigjanlegt launakerfi
• Microsoft samhæft vinnuumhverfi
• Tengist helstu fjárhags- og viðverukerfum
Auðveldar störf launadeilda
• Stutt vinnuferli við skráningu starfsmanna,
framkvæmd launakeyrslu og gerð skilagreina
• Vinnur náið með Axapta HRM – mannauðskerfinu
Ske i funni 8 • 108 Reyk jav ík • S ími 545 1000 • www.ax . i s • ax@ax. i s
ALLUR HEIMURINN UNDIR
Íslenskir lífeyrissjóðir munu í auknum mæli fjárfesta erlendis. Þeir vaxa hratt og möguleik-
ar til innlendrar langtímafjáfestingar eru takmarkaðir, auk þess sem erlend verðbréf auka
áhættudreifingu sjóðanna.