Fréttablaðið - 13.12.2003, Síða 4
4 13. desember 2003 LAUGARDAG
Hvað finnst þér um fyrirhugaða
kjarabót þingmanna?
Spurning dagsins í dag:
Stóðu stjórnvöld við öryrkjasamkomu-
lagið með lögum sem samþykkt voru á
Alþingi?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
63,6%
14,7%
Svívirðileg
4,6%Veit ekki
Ósanngjörn
17,1%Sanngjörn
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Norðurlönd
Forstjóri Tryggingastofnunar:
Aðgerðir verður að samræma
HEILBRIGÐISMÁL „Auðvitað er það
þannig, að þegar skrúfað er fyrir
á einum stað, þá sér þess gjarnan
merki annars staðar,“ sagði Karl
Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins, um
fyrirhugaðan niðurskurð á þjón-
ustu Landspítala - háskólasjúkra-
húss vegna viðblasandi fjárhags-
vanda. „Svona aðgerðir verður að
gera með samræmdum hætti.“.
Karl Steinar kvaðst ekki vera
búinn að sjá niðurskurðartillögur
stjórnarnefndar Landspítalans,
þannig að hann gæti ekki tjáð sig
um þær sem slíkar, né farið nánar
út í áhrif þeirra. Hann kvaðst enn-
fremur myndu eiga samráðsfund
með Magnúsi Péturssyni, for-
stjóra Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, í næstu viku, þar sem
farið yrði yfir stöðuna.
„Að einhverju leyti leitar það
sem niður verður skorið sér far-
vegs á öðrum stöðum til dæmis
hjá Tryggingastofnun svo og fleiri
stöðum. Það má líkja þessu við
blöðru, fulla af lofti, sem potað er
í. Rúmmálið eykst bara annars
staðar.“ ■
LOÐSKINN „Þetta er mikið áfall og
fór á annan veg en maður vonaðist
eftir. En það er líka bágt til þess
að vita að þetta er að hluta til
heimamönnum sjálfum að kenna.
Þeir sváfu á verðinum fyrr á ár-
inu, það voru
tækifæri til þess
að ganga frá
þessu en það var
ekki gengið í
það,“ sagði Jón
Karlsson, for-
maður Öldunn-
ar, verkalýðs-
félags á Sauðár-
króki í gær.
Þá hafði
b a n k a s t j ó r n
Kaupþings-Bún-
aðarbanka stað-
fest þann kaup-
samning sem
undirritaður var í lok nóvember
um sölu á öllu hlutafé Loðskinns á
Sauðárkróki. Kaupandinn er Stök-
ur ehf. á Akureyri, eigandi
Skinnaiðnaðar á Akureyri.
Eftir að sá samningur var und-
irritaður, sendu heimamenn
Kaupþingi-Búnaðarbanka, ítrek-
un á fyrra tilboði sínu í verksmiðj-
una. Það var að mati bankastjórn
lakar en fyrirliggjandi samningur
við Stökur á Akureyri.
Starfsfólki Loðskinns var í gær
gerð grein fyrir ákvörðun banka-
stjórnar Kaupþings-Búnaðar-
banka. Þeir 40 starfsmenn sem
vinna hjá Loðskinni eru uggandi
um framtíð sína.
Ormarr Örlygsson, fram-
kvæmdastjóri Staka, segir að
fyrsta verk nýrra eigenda verði
að freista þess að snúa við tap-
rekstri sem verið hefur á starf-
seminni undanfarin ár og endur-
skipuleggja vinnslu fyrirtækisins.
Reynt verði að ná fram ákveðinni
hagræðingu og samlegðaráhrifum
með samrekstri beggja rekstrar-
eininganna að hluta. Þannig hefði
verið ákveðið að ná strax fram
hagræðingu með sameiginlegri
framkvæmdastjórn og bókhalds-
vinnu fyrirtækjanna. Ormarr seg-
ir að Stökur hafi hins vegar engin
áform uppi um annað en áfram-
hald reksturs á Sauðárkróki.
Óskað verður formlegra við-
ræðna við Sveitarfélagið Skaga-
fjörð og Skagafjarðarveitur ehf.
um starfsumhverfi Loðskinns
Sauðarkróki ehf. til framtíðar og
mögulegt samstarf.
the@frettabladid.is
Snæfríður Baldvinsdótt
Berst fyrir
forræði
FORRÆÐISDEILA Snæfríður Baldv
dóttir, sem vann mál sem fyrrvera
sambýlismaður hennar höfðaði g
henni, vill að eftirfarandi komi fr
vegna fréttar af máli hennar:
„Þess misskilnings gætir í fr
inni að Hæstiréttur hafi úrskurða
ég hefði fullt forræði yfir dó
minni. Svo er ekki. Hér var um
ræða mál þar sem fyrrverandi s
býlismaður minn krafðist afhend
ar hennar til Mexíkó. Þeirri kröfu
synjað.“ Snæfríður segir ónákvæ
hafa gætt í nokkrum efnisatrið
öðrum en sér ekki ástæðu til að re
þau frekar og óviðeigandi að fj
um málarekstur sem sé ólokið. ■
Í LÆKNINGASJÓÐ
Ásdís mun leggja ágóðann af jólabingó
í sérstakan sjóð til að fjármagna fyrirh
aðar lækningaferðir Birkis Emils til útla
Jólabingó:
Ágóðinn til
mæðgina
FÉLAGSMÁL „Ég mun leggja þe
peninga í sjóð fyrir Birki Em
segir Ásdís Jónsdóttir um það fr
tak Framsóknarfélaganna í M
fellsbæ að láta allan ágóða af j
bingói sínu renna til hennar og l
sonar hennar, Birkis Emils, sem
með goldenhar-heilkenni. Féla
málayfirvöld í Mosfellsbæ hafa
farið hafnað tímabundinni fjárha
aðstoð við mæðginin.
Jólabingóið verður haldið í
klukkan 13 að Háholti 14, 2. hæ
Mosfellsbæ, í sama húsi og tónl
arskólinn. Ásdís sagði, að sjóður
yrði notaður til að fjármagna fer
þær sem Birkir Emil litli þyrft
fara til lækninga erlendis, min
þrjár á ári. ■
MOHAMED ELBARADEI
ElBaradei segir að kjarnavopn veiti aðeins
falskt öryggi.
ElBaradei hvetur Ísraela:
Vill eyðingu
kjarnavopna
ÍSRAEL, AP Mohamed ElBaradei, yf-
irmaður Alþjóða kjarnorkumál-
stofnunarinnar, hefur skorað á
Ísraelsmenn að eyða meintum
kjarnavopnum sínum til þess að
ryðja brautina fyrir varanlegan
frið í Mið-Austurlöndum, eins og
Suður-Afríkumenn gerðu árið
1989. Þetta kom fram í viðtali El-
Baradeis við ísraelska dagblaðið
Haaretz.
Ísraelar hafa aldrei viðurkennt
að vera eitt af kjarnorkuveldun-
um en eru taldir ráða yfir kjarna-
vopnum.
Í þessu fyrsta viðtali sínu við
ísraelskt dagblað sagði ElBaradei
einnig að Ísraelsmenn ættu skil-
yrðislaust að undirrita alþjóða-
sáttmálann gegn útbreiðslu gjör-
eyðingarvopna. ■
Reykjavík:
Reykur
í strætó
VETNISSTRÆTÓ „Það bráðnaði sla
tengd hitara og út frá því kom no
ur reykur,“ segir Steindór St
þórsson, deildarstjóri í akstursd
Strætó bs., um mikinn reyk s
varð vart í vetnisstrætisvagni í g
Steindór segir enga hættu h
stafað af reyknum, hann hafi e
komið upp nærri vetninu sem
toppi vagnsins. Hann segir bilun
eins geta hafa átt sér stað í sa
konar dísilvagni. Vetnisvagn
verður leystur af þar til gert he
verið við bilunina. ■
Bruni í Þórufelli í Breiðholti:
Íbúðin talin ónýt eftir brunann
BRUNI „Íbúarnir voru heima og son-
urinn var að horfa á sjónvarpið þeg-
ar kviknaði í því,“ segir Þorvaldur
Geirsson, hjá slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins, um bruna sem var í
íbúð á efstu hæð í Þórufelli rétt fyr-
ir klukkan þrjú í gærdag.
Þorvaldur segir móðurina hafa
strax orðið vara við eldinn enda
íbúðin í minni kantinum. Eldurinn
breiddist fljótt út, sjónvarpið stóð á
hillusamstæðu, eldurinn í gardínur
og rúður sprungu. Mikill reykur
myndaðist og barst út á stigagang-
inn og inn í næstu íbúð.
Mikill viðbúnaður var vegna
brunans og voru þrír stigagangar
rýmdir. Slökkvistarf gekk vel og
var því lokið um þremur korterum
eftir að tilkynnt var um eldinn.
Íbúðin er talin ónýt vegna elds og
reyk. Þá eru skemmdir vegna sóts í
stigagangi og næstu íbúð.
Þorvaldur vill beina því til
fólks að búa sig vel með reyk-
skynjurum og bendir á sjónvarps-
slökkvitæki sem komin eru
markað. ■
SKYNDIVERKFALL Í FINNLANDI
Tugir þúsunda Finna lögðu niður
vinnu í fimmtán mínútur til að
mótmæla yfirvofandi fjöldaupp-
sögnum í landinu. Allt var lokað,
bankar, pósthús og fjöldi versl-
ana, á meðan á verkfallinu stóð.
Stéttarfélög segja að um 150.000
manns eigi það á hættu að missa
vinnuna á næstu misserum og
saka atvinnurekendur um að
virða að vettugi gildandi samn-
inga.
TRYGGINGASTOFNUN
Aukast útgjöld hennar í samræmi við fyrir-
hugaðan niðurskurð á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi?
ELDURINN BREIDDIST HRATT ÚT
Eldurinn kviknaði út frá sjónvarpi á meðan verið var að horfa á það.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Heimamenn
misstu af Loðskinni
Kaupþing Búnaðarbanki seldi Stökum á Akureyri sútunarverksmiðju
Loðskinns á Sauðárkróki. Verkalýðsleiðtogi á Sauðárkróki segir söluna
áfall en heimamenn geti sjálfum sér um kennt.
„Þeir sváfu
á verðinum
fyrr á árinu,
það voru
tækifæri til
þess að
ganga frá
þessu en það
var ekki
gengið í það.
SKINNAIÐNAÐUR ALLUR Á EINNI HENDI
Bankastjórn Kaupþings-Búnaðarbanka hefur staðfest samning sem gerður var við Stökur
á Akureyri um kaup á sútunarverksmiðjunni Loðskinni á Sauðárkróki. Nýir eigendur hyggj-
ast leita samstarfs við bæjaryfirvöld um rekstur verksmiðjunnar og starfsumhverfi.