Fréttablaðið - 13.12.2003, Page 57
53LAUGARDAGUR 13. desember 2003
ÖRN ARNARSON
Örn tvíbætti Íslandsmetið í 50 metra bak-
sundi í Dublin í gær.
EM í 25 metra laug:
Tvíbætti Ís-
landsmetið
SUND Örn Arnarson, sundmaður
úr ÍRB, varð í sjöunda sæti í 50
metra baksundi á Evrópumeist-
aramótinu í 25 m laug sem fram
fer í Dublin á Írlandi. Hann tví-
bætti Íslandsmet sitt í gær og
synti úrslitasundið á 24,47 sek-
úndum sem er 23/100 úr sekúndu
betri tími en Íslandsmet hans stóð
í fyrir daginn. Það var Þjóðverj-
inn Thomas Rupprath sem vann
sundið með yfirburðum en hann
er handhafi heims-, Evrópu- og
mótsmetsins í þessu sundi. Rupp-
rath synti úrslitasundið á 23,71
sekúndum, sem er 76/100 úr
sekúndu betri tími en hjá Erni.
Örn synti á 24,81 sekúndu í undan-
rásum og var tíundi inn í milli-
riðilinn þar sem hann synti á nýju
glæsilegu Íslandsmet, 24,53 sek-
úndur og bætti ársgamalt met sitt
um 17/100 úr sekúndu. Örn varð
sjöundi inn í úrslitin. Örn Arnar-
son hefur þar með komist í úrslit í
báðum greinunum sem hann hef-
ur tekið þátt í á mótinu en hann
varð fimmti í 200 metra baksundi
í fyrradag. Örn keppni í 100 metra
baksundi í dag. ■
Spenna í suðurriðli RE/MAX-deildar karla í handknattleik:
Stjarnan stendur betur að vígi
HANDBOLTI Lokaumferðin í norð-
ur- og suðurriðli RE/MAX-deild-
ar karla í handknattleik fer
fram í dag. Fjögur lið, Valur,
KA, Fram og Grótta/KR, hafa
þegar tryggt sér sæti í efri deild
úr norðurriðli en meiri spenna
ríkir í suðurriðlinum. Þar hafa
ÍR, Haukar og HK þegar tryggt
sér sæti í efri deild en Stjarnan
og FH berjast um fjórða sætið.
Stjarnan tekur á móti Breiða-
bliki í dag en FH sækir HK heim
í Digranes. Stjörnumenn standa
betur að vígi þar sem þeir hafa
fimmtán stig í fjórða sætinu en
FH er stigi á eftir í því fimmta.
FH-ingar hafa hins vegar unnið
báða innbyrðisleiki liðanna og
enda í fjórða sætinu ef liðin
verða jöfn á stigum.
FH-ingar verða þó að treysta á
að Breiðabliksmenn steli í það
minnsta stigi af Stjörnumönn-
um í Garðabænum til að eiga
möguleika. Þá er þó ekki allt
komið því að FH-ingar verða að
vinna HK-menn, nokkuð sem er
ekki hlaupið að þar sem HK hef-
ur sýnt það í vetur að liðið er
gríðarlega sterkt og nánast
ósigrandi á heimavelli.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari
Gróttu/KR, sagði í samtali við
Fréttablaðið að hann byggist
fastlega við því að Stjarnan
myndi halda fjórða sætinu. „Ég
sé ekki að Breiðablik geti unnið
Stjörnuna í Garðabæ. Þeir hafa
bara ekki mannskapinn í það og
því skiptir litlu máli hvernig
leikur HK og FH fer.
Ég hef reyndar ekki trú á því
að FH-ingar nái stigi í Digranes-
inu því HK-menn eru með mun
öflugra lið,“ sagði Ágúst. ■
LOGI GEIRSSON
Svo gæti farið að FH-ingurinn snjalli Logi
Geirsson muni leika í neðri deildinni eftir
jól.
6-57 (52-53)SPORT 12.12.2003 20:19 Page 3