Fréttablaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 18
18 13. desember 2003 LAUGARDAG Það er nú þannig að föðurafiminn hét Pálmi Árni Karvels- son og við erum þrír, systkina- börnin og Pálmarnir. Elsti Pálm- inn er Pálmi Árni Karlvelsson Pálmasonar, Pálmi Árni Guð- mundsson og svo Pálmi Árni Gestsson, sem er hann ég. Við heitum allir eftir afa,“ segir leik- arinn snjalli Pálmi Gestsson sem státar sem sagt af Árnanafninu auk Pálmans. Pálmi segist ekkert vita um það hvað nafnið þýði umfram plöntuna pálma. „Utan þess að þegar ég var á Spáni í gamla daga þá voru einhverjir Spanjólar að gantast með það að palmera þýddi dauði. Ég er ekki nógu góður í spænsku til að þræta fyrir það en vitanlega finnst mér þetta út í hött og valinn vitlaus maður í það. Ég lít meira á mig sem fulltrúa lífs- ins, gleðinnar og ljóssins.“ Ekki er þetta algengt nafn en þeir eru náttúrlega þekktir Pálm- arnir Jónsson, alþingismaður fyrrverandi, Gunnarsson bassa- leikari og Pálmi í Hagkaup. Ýmis sérstæð atvik hafa komið upp í tengslum við nafn Pálma en einmitt þegar hann er að koma fram á sjónarsviðið skein stjarna nafna hans bassaleikarans sem skærast. Líkt var að ekki væri pláss fyrir nema einn Pálma á sviðinu. „Jájá, ég held að það hafi verið Gerður G. Bjarklind sjálf sem afkynnti mig ein- hverju sinni sem Pálma Gunnarsson sem þarna lauk við 6. lestur út- varpssögunnar Galapa- gos eftir Kurt Vonnegut.“ Pálmi var skírður yfir kistu afa síns þegar hann var jarðsettur og fer ekki í grafgötur með að honum þyki vænt um nafn sitt sem hann teng- ir afa sínum. Og engan vafa tel- ur hann á leika að nafn hvers manns sé ríkur þáttur í sjálfs- myndinni. „Ég má sennilega heita heppinn því þau geta ver- ið skrautleg þessi vestfirsku nöfn. Pabbi heitir til dæmis Gestur Oddleifs Kolbeins... tvö nafna hans eru í eignarfalli. Karvel Steindór Ingimar er til, langamma mín hét Evlalía og ég held að Jón Grísagónus sé til, svei mér þá. Ég væri líklega allt annar en ég er héti ég Dósi Tím, eða Dósóteus Tímóteusson.“ ■ Þarna var einhver konflikt millimín og yfirstjórnarinnar. Ekki var staðið við gerða samninga að mínu viti og ég lít á það sem upp- sögn,“ segir Hjálmar Hjálmars- son, umsjónarmaður Ekkifrétta á Rás 2 þar sem Haukur Hauksson fréttahaukurinn ákafi lætur allt vaða. Þetta þýðir að Haukurinn er hættur á Rás 2 en þar hefur hann starfað með hléum í 12 ár. Skarð fyrir skildi því þessi persóna hef- ur sett sitt mark á ímynd útvarps- stöðvarinnar. Trúnaðarbrestur „Ég er svekktur að missa þetta efni. Ég leit á þetta sem krydd í dag- skrá og skrautfjöður fyrir okkar út- varp. Mér þykir þetta miður,“ segir Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri Rásar 2. Hann segir jafnframt að það hafi verið að sínu frumkvæði á sínum tíma að ákveðið var að Hauk- urinn yrði á vetrardagskrá í fyrra þegar hann var nýbyrjaður sem dag- skrárstjóri. „Það var eitt af mínum fyrstu verkum og þá fór vel á með okkur. En það slitnaði upp úr með RÚV og Hjálmari og má skrifa það á sam- starfsörðugleika og kjaramál.“ Jóhann segir jafnframt að líta megi svo á að um ákveðin samnings- brot hafi verið að ræða af hálfu Hjálmars. Um það hafi verið samið að hann hæfi störf í byrjun október, með vetrardagskránni og hafi hann verið á launum út þann mánuð. Hins vegar hóf Hjálmar ekki störf fyrr en 20. október og í staðinn fyrir 40 fréttatíma Hauksins, líkt og til stóð að yrði, komi ekki til nema 23 Hauk- a. „Ég vil taka skýrt fram að aldrei hefur staðið til af minni hálfu að hlunnfara eða hýrudraga Hjálmar og þarna var ekki verið að tekist á um upphæð heldur launafyrirkomu- lag.“ Stjórnunarkrísa Hjálmar segir þetta mál ákaf- lega snúið og það eigi sér langan að- draganda. „Ég veit svo sem ekki hvað hægt er að segja í þeim efn- um. Til dæmis hvort Dóra Ingvars- dóttir, framkvæmdastjóri útvarps, þoli ekki Haukinn eða mig persónu- lega? Það hlýtur alltaf að vera á huglægum nótum og ég hef ekkert fyrir mér í slíku.“ Hjálmar hættir sér heldur ekki út í neinar samsæriskenningar þó þær séu nærtækar. Haukurinn hef- ur náttúrlega troðið á ýmsum lík- þornum og mjög hugsanlega hafi það farið í taugarnar á einhverjum. „Það hafa náttúrlega ekkert allir þarna innanhúss gaman að þessu. En það sem gerði útsslagið var að ég vildi fá fram launasamning til undirritunar. Með það var enda- laust hringlað og Jóhann vísaði alltaf til yfirboðara sinna líkt og hann gæti ekki tekið ákvörðun. Þetta er náttúrlega stjórnunarkrísa sem litar allt ástand á RÚV. En um það var samið að Haukurinn yrði til átta mánaða og samingurinn væri í gildi frá 1. október. En svo var mér kippt út af launaskrá án samráðs við mig og lít ég á það sem skýlaust brot á þeim munnlega samningi sem ég gerði við Jóhann Hauksson sem sjálfur stakk upp á því að sam- ingurinn væri í gildi frá og með þeim tíma,“ segir Hjálmar. Launasamningur eða verktaki Jóhann segir ekkert leyndar- mál að hann hafi yfir sér tvo menn, Dóru og Markús Örn Antonsson útvarpsstjóra, og verði að bera slík mál undir þau. „Ég gerði við hann samning sem átti að standa við en það varð töf á að frá honum væri gengið vegna þess að hann var afbrigðilegur. Álitamál er hvort hægt er að tala um hans dagskrárgerð sem dæmigerða launavinnu. Hann vildi hins vegar fá launasamning. Bæði hér í út- varpinu og á sjónvarpinu er fjöldi fólks sem er að vinna vinnu sem má heita full vinna en það fólk starfar sem verktakar. Það er við- tekið fremur en hitt. Hins vegar ætlaði ég að gera við hann launa- samning en á því varð töf sem hann ekki sætti sig við og því fór sem fór,“ segir Jóhann. Hjálmar segir sig vilja vita hvað hann er að fara að gera næstu átta mánuðina auk þess sem verktakar njóti engra réttinda, svo sem orlofsgreiðslna og starfs- aldursréttinda, eru utan starfs- mannafélags og þannig má lengi telja. „Jújú, mér þykir vænt um Haukinn. Hann er orðinn partur af mér. Ég lít ekki svo á að hann sé dauður úr öllum æðum. Hann er náttúrlega dauður meðan hann er ekki í loftinu. En hann getur vel lifnað við og getur svo sem skotið upp kollinum hvar sem er,“ segir Hjálmar. jakob@frettabladid.is ■ Nafnið mitt PÁLMI GESTSSON Telur nöfn manna rík- an þátt í sjálfsmynd- inni og telur ljóst að hann hefði annan mann að geyma héti hann Dósi Tím. Fulltrúi lífsins og gleðinnar HAUKUR HAUKSSON Fréttahaukurinn knái hefur velgt mönnum undir uggum með snaggaralegum fréttaflutningi í 12 ár. Nú er hann hættur. JÓHANN HAUKSSON Segir Haukinn skrautfjöður og sér eftir honum sem slíkum, en slitnað hafi upp úr samstarfinu vegna samstarfsörðugleika og kjaramála. Einhver umdeildasti en jafnframt vinsælasti fréttamaður landsins, Haukur Hauksson, er hættur á Rás 2. Hjálmar Hjálmarsson, umsjóna maður Ekkifrétta, skýtur ekki loku fyrir að hann láti í sér heyra á öðrum vettvangi. Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri Rásar 2, segir ástæð- una samstarfsörðugleika. Haukurinn hættur á RÚV Það hafa náttúr- lega ekkert allir þarna innanhúss gaman af þessu. En það sem gerði útslagið var að ég vildi fá fram launasamning til undirritunar. ,, FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HJÁLMAR HJÁLMARSSON Haukurinn er náttúrlega dauður með hann er ekki í loftinu en Hjálmar seg hann geta skotið upp kollinum hvenæ hvar sem er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.