Fréttablaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 36
36 13. desember 2003 LAUGARDAG Kvikmyndahúsin bjóða upp ásæmilegt úrval jólamynda þó að lokahnykkur bíóársins 2003 beri þess óneitanlega merki að uppsker- an hefur verið frekar rýr að þessu sinni. Harry Potter er fjarri góðu gamni og lokamynd Hringadrótt- inssöguþríleiksins gnæfir því yfir öðrum jólamyndum. Ægivald Hringsins Fyrri myndirnar tvær, The Fell- owship of the Ring og The Two Towers, sviku engan og það bland- ast því fáum hugur um að loka- hnykkurinn, The Return of the King, verði mögnuð bíóupplifun enda fullyrðir leikstjórinn Peter Jackson að bardagaatriðin í þessari mynd séu mikilfenglegri en það sem hingað til hefur sést í þríleikn- um og þá er vitaskuld mikið sagt. Æstir aðdáendur myndabálksins hafa beðið Endurkomu konungsins í ofvæni síðastliðið ár og það má því gera ráð fyrir að það verði allt brjálað í bíóum landsins á öðrum degi jóla þegar myndin verður loks frumsýnd. Myndform, sem dreifir Hringa- dróttinssögu á Íslandi, mætir þess- ari miklu eftirspurn með sýningum í óvenjumörgum sölum en myndin verður sýnd í 4 af 5 sölum Smára- bíós, 2 sölum af 4 í Regnboganum, 2 sölum í Laugarásbíói og í Kringlu- bíói. Það þarf því engan að undra þótt væntanlegar stórmyndir séu geymdar fram yfir áramót þar sem Hringurinn mun skyggja á allt sem fyrir er. Hugh Grant og Russell Crowe fara hvergi Sýningar eru þegar hafnar á öðr- um stórmyndum þessarar jólaver- tíðar. Russell Crowe mun halda áfram að sigla seglum þöndum í Master and Commander, sem er al- vöru stórmynd, þó hún hafi ekki roð við Hringadróttinssögu. Þá er ást- arjólapakki Richards Curtis, Love Actually, byrjaður að bræða hjörtu bíógesta. Það svífur ekta jólastemning yfir vötnum í mynd- inni, sem skoðar ástina og náunga- kærleikann frá ýmsum sjónarhorn- um. Hugh Grant fer fyrir glæsileg- um hópi breskra úrvalsleikara í mynd sem mun örugglega draga fólk í bíó vel fram yfir áramót. Eitthvað fyrir alla Elf er önnur mynd sem gerir sérstaklega út á jólaskapið og gefur fólki hinn sanna anda jólanna beint í æð í hugljúfri sögu af mannsbarn- inu Buddy litla sem elst upp hjá álf- um á verkstæði jólasveinsins á Norðurpólnum. Þegar hann er orð- inn fullorðinn maður gerir hann sér grein fyrir því að hann er ekki al- vöru álfur og heldur til New York í leit að föður sínum. Sá er kaldlynd- ur og miskunnarlaus bókaútgefandi sem er á svarta listanum hjá jóla- sveininum þannig að mennski álf- urinn þarf heldur betur að bretta upp ermarnar til að bjarga sál pabba síns og jólunum um leið. Elf er ekta fjölskyldumynd rétt eins og Looney Tunes – Back in Act- ion sem Sambíóin frumsýna 26. desember. Þar mæta þeir félagar Daffy Duck og Bugs Bunny eldhressir til leiks, ásamt öðrum ódauðlegum fyrir- bærum úr litríku teikni- myndapersónugalleríi sem kennt er við The Looney Tunes. Þetta gengi lét síðast til sín taka ásamt körfubol ta - snillingnum M i c h a e l Jordan í S p a c e Jam, þar s e m blandað var saman leikinni mynd og teikni um. Það sama er uppi á teningun hér en nú eru það Brendan Fra og Jenna Elfman sem slást í með rugludöllunum. Gröm önd og kát kanína Daffy er sem fyrr gramur afbrýðisamur og fær sig nú l fullsaddan af vinsældum Bu hættir í bíóbransanum og y gefur Hollywood. Hann hel af stað í leit að bláum dema ásamt áhættuleikara sem er ný inn að missa vinnuna. Bren Fraser leikur þen nýja félaga Daffys saman þeytast þ um heiminn þve og endilangan m Bugs og stú ostýru leikna Jennu Elfman hælunum. In e l t i n g a l e i k i blandast snælduvi t la skúrkur s Steve Mar Hringadróttinssaga verður vafalaust aðaljólamynd þessa árs. Hún verður frumsýnd annan í jólum í níu bíósölum á höfuðborgarsvæðinu en sjálfsagt komast færri að en vilja. Daffy Duck og Bugs Bunny láta einnig til sín taka um jólin og Álfurinn og Hugh Grant sjá til þess að enginn fari í jólaköttinn. Hvað er í bíó um jólin? BUGS BUNNY OG DAFFY DUCK Þessir gömlu fjandvinir snúa nú aftur, krökkum á öllum aldri til mikillar ánægju. Síða þegar þeir voru með í leikinni mynd kepptu þeir upp á líf og dauða í körfubolta við vonda geimtudda. Þá höfðu þeir Michael Jordan sér til halds og trausts en nú eru þ Brendan Fraser úr Mummy-myndunum og Jenna Elfman úr Dharma & Greg sem hald vit ævintýranna ásamt ruglukollunum. KEVIN KLINE Sér um dramatísku deildina þessi jól en hann leikur gamaldags prófessor sem lendir upp á kant við nemanda sinn í drengjaskóla. * T IL B O ‹ I‹ G IL D IR T IL 2 4 . D E S E M B E R opi›: laugardaga 10-22 og sunnudaga 13-22 brátt koma björtu jólin 30.OOO KR. ÚTTEKT ef flú kaupir sófasett* flú fær› h át íð í bæ s j á u m s t ARAGORN Ryðst fylktu liði inn í 9 bíósali annan í jólum enda er eftirvæntingin eftir The Lord of Rings: The Return of the King slík að það má varla minna vera. Fjarvera Harry Potte tryggir Fróða og félögum algeran frið í ævintýradeildinni þetta árið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.