Fréttablaðið - 13.12.2003, Side 40
Það er rangt að Lax-á sé valdurað verðsprengingum á veiði-
leyfum hjá Stangveiðifélagi
Reykjavíkur, eins og formaður
félagsins sagði á aðalfundinum og
eins sagt var frá í veiðiþættinum
hér í blaðinu,“ sagði Árni Baldurs-
son hjá Lax-á í viðtali við Frétta-
blaðið. En Árni Baldursson og
Lax-á var oftast nefnt á nafn á að-
alfundi Stangveiðifélags, sem
haldin var fyrir skömmu. „Þvert á
móti er Lax-á að vinna með mörg-
um stangveiðifélögum sem ávallt
leiðir til verðlækkunar til félags-
manna og það að við höfum verið
með einhverjar sprengjur, sem
hækka veiðileyfin, er alls ekki
rétt.“
Geturðu komið með einhverjar
staðreynir sem styðja þetta Árni,
að þið séuð ekki valdir að hækk-
unum hjá SVFR, eins og haldið
hefur verið fram?
„Já eftirfarandi stað-
reyndir tala alveg sínu
máli og meira en það.
SVFR fékk Svartá í frjál-
su útboði og hækkar þar
veiðileyfi um 40% frá
síðasta samningstímabili.
Það er útilokað að kenna
okkur um þessa hækkun.
SVFR hækkar Skógá um
100% en Lax-á hefur
aldrei boðið í eða verið
með ána á leigu. Útilokað
er að tengja þessa hækk-
un við Lax-á. SVFR hækk-
ar veiðileyfi í Stóru Laxá í
Hreppum. Þegar Lax-á bauð í
hana, þá var SVFR ekki með ána á
leigu heldur seldi í umboðssölu
fyrir landeigendur, og öllum því
frjálst að sýna áhuga á því að taka
ána á leigu. SVFR hækkar veiði-
leyfi í Hítará, Lax-á gerði ekki til-
boð í ána fyrir sumarið 2004 en
sendi inn tilboð fyrir sumarið
2005 - enda átti áin þá að vera
laus. SVFR kom þá í veg fyrir að
áin færi í útboð með því að
sprengja upp leiguverðið og
þjófstartar nú með fyrirfram
hækkunum fyrir sumarið 2004.“
Rekið eins og einkafyrirtæki
Eru þið ekki bara í fýlu, SVFR
þarf ekki að borga skatta en eru
að fara inn á ykkar markað meira
til að selja erlendum veiðimönn-
um veiðileyfi?
„Stjórn SVFR hefur undanfarið
leyft sér að reka félagið
eins og einkafyrirtæki og
boðið í vatnasvæði hærra
en öll félög og fyrirtæki í
landinu sem eru í veiði-
leyfasölu. SVFR eru fé-
lagasamtök og hafa notið
þeirra forréttinda að
þurfa ekki að greiða
skatta af starfseminni.
Það er ótrúlegt að stjórn-
in skuli leyfa sér að mis-
nota þessa aðstöðu svo og
félagsgjöldin til að
sprengja upp verð í út-
boðum sem félagsmenn
þurfa svo að borga fyrir.“
Þið eruð að koma með ykkar
verðskrá og er lækkun á veiði-
leyfum eitthvað þar í kortunum?
„Við gefum út verðskrá í janú-
ar nk. og í mörgum tilfellum
lækka veiðileyfin frá síðasta ári.
Til að mynda með kjölfestuárnar,
þá hefur Blanda lækkað í verði en
Miðfjarðará, Laxá á Ásum og
fleiri ár hafa staðið í stað frá síð-
asta ári. Sumar ár hafa einnig
hækkað verulega í verði, til dæm-
is Langadalsá. Sú hækkun stafar
m.a. af mikilli veiði sl. ár og þar af
leiðandi aukinni samkeppni í
leigutöku, t.d. hrinti SVFR af stað
ferli sem leiddi síðan til 50%
hækkunar á leiguverði. Lax-á hef-
ur líka tekið mörg ný svæði á
leigu sem kynnt verða í verðskrá
sem kemur út í janúar, á mjög
sanngjörnum verðum.“
1500 erlendir veiðimenn á
vegum Lax-á
Eru þið ekki bara að lækka
veiðileyfin vegna slapprar veiði?
„Nei, alls ekki, veiðin í Blöndu
var ekki léleg en við verðlögðum
hana aðeins of hátt á síðasta ári. Í
Miðfjarðará hættum við maðka-
veiðinni 15. júlí og slepptum þar
með alveg maðkaopnun sem yfir-
leitt hefur gefið 1-200 fiska í við-
bót, ef veiðimenn hefðu fengið að
beita maðki eins og áður þá hefði
Miðfjörðurinn staðið undir vænt-
ingum. Það myndast ávallt biðlisti
í Ásana og aðrar ár hafa allar ver-
ið upp á við hjá okkur sl. ár.“
Hvað koma margir veiðimenn
á ári á ykkar vegum?
„Lax-á er ferðaskrifstofa með
10 starfsmenn allt árið um kring
sem sérhæfir sig í skipulagningu
veiðiferða innanlands og utan. Á
vegum Lax-á komu yfir 1.500 er-
lendir veiðimenn til Íslands sl. ár.
Tekjurnar af þeim skila óteljandi
störfum víða um allt land og gerir
okkur kleift að fara í alls konar
framkvæmdir til verndar og upp-
byggingar á laxastofninum.“ ■
36 13. desember 2003 LAUGARDAG
Á veiðum
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiðiskap.
■ Maður að mínu skapi
Sú fyrsta sem kemur upp í hug-ann þegar ég er spurður þess-
arar spurningar þá er það hversu
látlaus og yndisleg hún Björk
Guðmundsdóttir er,“ segir Úlfar
Eysteinsson, matreiðslumeistar-
inn mikli á Þremur Frökkum, um
þann mann sem er honum að
skapi.
Nú er tími Úlfars, aðventan, og
hann segir menn byrjaða í sköt-
unni alveg á fullu.
Fjöldi frægra gesta hafa komið
til Úlfars í gegnum tíðina en fáir
hafa heillað hann líkt og Björk.
„Hún stendur sannarlega undir
væntingum. Svo er hún svo mikill
Íslendingur í sér að það hálfa
væri nóg. Og það er til eftir-
breytni,“ segir Úlfar.
Matreiðslumeistarinn hefur
ekkert lagt sig sérstaklega eftir
verkum Bjarkar, hefur notið þeir-
ra líkt og aðrir í gegnum fjölmiðla
en það er einkum hlédrægnin sem
hann virðir við Björk. „Ef a
sem eru nú þekktir og sæmil
loðnir um lófana gætu látið þ
nig að vera ekki með nefið up
loftið þá væri þetta betri heim
Nei, ég hef ekki kafað neitt s
staklega ofan í verk hennar
hún heillaði mig algerlega upp
skónum þegar hún var með græ
lenska kórinn sinn. Hún
stöðugt að brjóta blað og þa
kemur hún, Íslendingurinn, al
einu Grænlandi á kortið eins
ekkert sé.“
Úlfar skýtur sannarlega e
loku fyrir að Björk hafi á einn
annan hátt breytt lífi sínu. „J
raun og veru. Ég hef breytt m
þá átt, í það minnsta reynt það
líta ekki niður á annað fólk. Ég
á fólk, sem ég er að lifa me
þessari jörðu, sem mína jafning
Ekkert finnst mér óþægilegra
fólk sem stillir sér á stall
hreykir sér.“ ■
Veiðifélagið Lax-á svarar óréttmætri gagnrýni frá formanni Stangveiðifélags
Reykjavíkur:
Lax-á svarar fyrir sig
ÁRNI
BALDURSSON
Hafnar því að veiði-
félagið Lax-á hafi
sprengt upp verðið á
veiðileyfum.
Björk heillar Úlfar matreiðslumeistara upp úr skónum
Björk til eftirbreytni
BJÖRK
Það rignir nú ekki upp í nefið á henni
Björk að mati Úlfars - og það er eiginleiki
sem hann metur umfram aðra.
ÚLFAR EYSTEINSSON
Meðal annars vegna Bjarkar leggur Ú
sig í framkróka um að líta á samferða
menn sína sem jafningja.