Fréttablaðið - 13.12.2003, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 13. desember 2003
Flóðgáttin í búðum Korn-mannahefur víkkað og komin er ný
plata. Sem fyrr er fyrirheitið að
nýja platan sé „sú þyngsta“ hingað
til, hvað sem það nú þýðir.
Ef fyrirheitið um aukin þyngsli
átti að þýða að platan innihaldi
meiri hávaða eða kraft en áður, þá
er það ekki tilfellið. Korn virðist
hafa fullmótað sinn hljóm og eru
byrjaðir að staðna. Slæmt í ljósi
þess að nú-metal-tónninn er að
verða mjög lúinn. Korn hefði átt að
leyfa sér að leita á ný mið og kæra
sig kollótta um álit flösuþeytar-
anna.
Ef fyrirheitið um aukin þyngsli
átti að þýða að lögin séu minna gríp-
andi, þá stenst það vel. Við fyrstu
hlustun átti ég mjög erfitt með mig.
Frekar undarlegt miðað við að ég
hef verið mjög hrifinn af fyrri
verkum. Svo reyndar vinnur platan
á við hverja hlustun. Það er að segja
fyrri hlutinn, því bestu lögunum er
skellt fremst og afgangslögin látin
fylla upp í tímarammann.
Ekki slæmt, en bara ekki nógu
gott heldur. Kannski hefðu Korn-
menn átt að bíða aðeins lengur og
opna sig fyrir nýjum áhrifum.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
KORN
Take a Look in the Mirror.
Enn eitt kornið
Fimm ungmenni, þrír strákarog tvær föngulegar gellur,
fara út í skóg til að fagna skóla-
lokum og koma sér fyrir í kofa
þar sem þau ætla að sukka í viku.
Sælan verður þó skammvinn þar
sem eitt þeirra veikist heiftar-
lega, byrjar að hósta blóði og
missa húðina með tilheyrandi
subbuskap.
Þetta hljómar svo sem ekkert
merkilegra en meðalunglinga-
hrollur en Cabin Fever stendur
slíkum myndum miklu framar
enda óvenjuvel skrifuð, sneisafull
af fyndnum samtölum. mátulega
sjúkum húmor og góðum slatta af
viðbjóði. Þetta er sem sagt ekta
hryllingsmynd af gamla skólan-
um enda sækir leikstjórinn Eli
Roth innblástur til Evil Dead,
Texas Chainsaw Massacre, The
Thing og húðsjúkdóms sem hann
fékk á Selfossi fyrir áratug, eins
og frægt er orðið.
Eli hefur dásamlega tilfinn-
ingu fyrir byggingu hryllings-
mynda og það er langt síðan að
það hefur tekist jafnvel að blanda
saman gríni og viðbjóði í mynd af
þessu tagi. Þá er Eli mjög meðvit-
aður um mikilvægi nektar og kyn-
lífs í unglingahrollvekjum og not-
ar þau góðu meðul vel.
Þórarinn Þórarinsson
UmfjöllunKvikmyndir
CABIN FEVER
Leikstjóri: Eli Roth.
Aðalhlutverk: Rider Strong, Jordan Ladd,
Joey Kern.
Drepfyndinn
hrollur
8 (44)unga fólkið 12.12.2003 18:46 Page 3