Fréttablaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 39
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
BIKARSTEMNING
Sjö leikir fara fram í Bikarkeppni KKÍ og
Lýsingar í dag. Hæst ber leiki KFÍ og
Hauka, ÍR-inga og Grindvíkinga og
Þórsara og Keflvíkinga.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÍS Í BRAUÐI EÐA HEITT KAKÓ
Hvort ætli sé nú æskilegra í þessum
brunagaddi sem á landinu er? Það hlýnar á
morgun og verður víða farið að rigna
seinnipartinn. Sjá síðu 6
14. desember 2003 – 312. tölublað – 3. árgangur
ÁKVEÐI LAUN SÍN ÁRLEGA For-
maður Frjálslynda flokksins vill að þing-
menn ákveði á hverju hausti hvað þeir hafi
í laun næsta ár frekar en að fela sig á bak
við Kjaradóm. Sjá síðu 8
ALLT AÐ 440 MILLJÓNIR Lífeyris-
greiðslur ráðherra, þingmanna og dómara
geta lækkað um sjö milljónir og hækkað
um 440 milljónir vegna eftirlaunafrumvarps
samkvæmt útreikningum Talnakönnunar
fyrir allsherjarnefnd Alþingis. Sjá síðu 2
SIGLDU Í STRAND Viðræður leiðtoga
Evrópusambandsríkja um nýja stjórnarskrá
sigldu í strand þegar ljóst þótti að engin
sátt næðist um atkvæðisrétt aðildarríkjanna
í stjórnkerfi Evrópusambandsins. Sjá síðu 4
ÚTBOÐ Á REKSTRI Ein þeirra hug-
mynda sem stjórnarnefnd Landspítala-
háskólasjúkrahúss ræðir til að ná fram
nauðsynlegum sparnaði er að bjóða út
rekstur deilda á geðsviði spítalans. Allar
deildir verða fyrir niðurskurði. Sjá síðu 6
SJÁLFSTÆÐISVIÐLEITNI MÓTMÆLT Fólk í tugþúsundatali gekk um götur borgarinnar San Sebastian í Baskahéraði Spánar og mót-
mælti áformum héraðsstjórnarinnar um að vinna héraðinu aukið sjálfstæði frá Spáni. Mótmælendur héldu á spjöldum þar sem áform-
unum var líkt við fjárkúgun. Baskar skiptast í tvo álíka fjölmenna hópa í afstöðu sinnar til sjálfstæðis frá Spáni.
Segir ráðherra vera
hálfdrættinga í launum
Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, vísar á bug gagnrýni á hið umdeilda
frumvarp um lífeyrisréttindi forsætisráðherra og laun flokksformanna. Spyrjið verkalýðsleiðtog-
ana hvað þeir hafa í laun, segir Guðni.
KJARAMÁL „Ég vil segja við þá
menn sem nú hafa hæst og eru að
segja sig úr Samfylkingunni eða
Vinstri grænum vegna þessa
frumvarps: Spyrjið verkalýðsleið-
togana hvað þeir hafa í laun og
spyrjið líka hvaða laun og ráðn-
ingasamningar gilda við fram-
kvæmdastjóra lífeyrissjóða fólks-
ins sem þeir bera ábyrgð á,“ segir
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, í viðtali við blað-
ið í dag. Hann vísar á bug allri
gagnrýni á hið umdeilda frum-
varp um laun og lífeyrisréttindi
alþingismanna. „Að þessu frum-
varpi og þessari tillögu standa all-
ir þingflokkarnir og formenn
allra flokka urðu sammála um
þetta svona,“ segir Guðni. „Þetta
er ekki tillaga um að hækka laun
þingmanna enda heyrir það undir
kjaradóm, aðeins að formenn
stjórnmálaflokka fái álag, einn og
hálfan hlut. Hafa ekki skipstjórar
til dæmis tvo hluti og jafnvel þrjá
í tilfelli loðnuskipstjóra? Svo snýr
þetta mál mest að því að hækka
iðgjöld á alþingismenn úr fjórum
prósentum í fimm prósent. Líf-
eyrisréttur maka skerðist veru-
lega, en enginn ræðir um það,
þannig að þetta er aðeins öðruvísi
en fram hefur komið. Ef við lítum
á forystumenn í íslensku samfé-
lagi, til dæmis bæjarstjóra og for-
stjóra, þá hafa alþingismenn og
raunar einnig ráðherrar verið
hálfdrættingar þessara manna.
Kjör stjórnmálamanna verða að
vera þannig að menn vilji taka að
sér þessi störf.“ ■
Nánar á síðum 22 og 23
Aðventuspil Fréttablaðsins
Fréttablaðið býður lesendum sínum upp á heimatilbúið teningaspil fyrir jólin. Leikmenn eru í hlutverki miðaldra
karlmanns og lenda sem slíkir í ýmsum hremmingum sem tengjast árstíðinni. Markmiðið er að lifa af amstrið sem
fylgir jólum og áramótum. Spilið er eitt af fáum sem jafnframt er hægt að lesa sér til ánægju. SÍÐUR 24 og 25
▲
Skrattinn, Elvis,
klassík og drama
Leikhúsin æfa nú jólastykkin. Meistarinn og Margaríta, Eldað
með Elvis, Sporvagninn Girnd og Jón Gabríel Borkmann eru
meðal þess sem verður á fjölunum á höfuðborgarsvæðinu.
Flugfélagið Atlanta hefur vaxið hratt og
er nú stærsta félag sinnar tegundar í
heimi. Hafþór Hafsteinsson forstjóri
segir flugfélagið stefna enn hærra.
SÍÐUR 26 og 27
▲
SÍÐUR 16 og 17
▲
Hækkar flugið
Opið til kl. 22 í kvöld
10
dagar
til jóla
Keikó
allur
ANDLÁT Háhyrn-
ingurinn Keikó
drapst, öllum að
óvörum, úr bráða-
lungnabólgu við
Taknesfjörð í Nor-
egi. Hann var 27
ára gamall. ■
Nánar á síðu 4
KEIKÓ
Bráðalungnabólga
dró hann til
dauða.
Kynferðisbrot á börnum:
Tölur benda
til aukningar
MISNOTKUN Vigdís Erlendsdóttir,
forstöðumaður Barnahúss, segir að
mál sem varða kynferðislega mis-
notkun á börnum og vísað hefur
verið á Barnahús séu orðin á þriðja
hundrað á þessu ári. Þetta er um-
talsverð aukning miðað við fyrri ár.
Upplýsingar frá Stígamótum
benda einnig til þess að misnotkun
sé að verða algengari, í öllu falli
sýnilegri.
Nánar á síðum 28 og 29