Fréttablaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 16
16 7. desember 2003 SUNNUDAGUR
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
á
su
nn
ud
eg
i
VIÐSKIPTI Í KAUPHÖLL ÍSLANDS
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
12,5%
-10,7%
-6,8%
-5,0%
7,7%
6,9%
15
12
9
6
3
0
-3
Mesta
hækkun
(%)*
*Gengi bréfa
síðustu sjö daga
6
3
0
-3
-6
-9
-12
Mesta
lækkun
(%)*
Mesta velta
mán. þri. mið. fim. fös. mán. þri. mið. fim. fös.
Medcare Flaga hf.
Þormóður rammi-Sæberg hf.
Hampiðjan hf.
Fyrirtæki Velta síðustu sjö daga
Íslandsbanki 3.156 milljónir
Pharmaco 2.366 milljónir
Opin kerfi 1.280 milljónir
Fasteignalán
• Ertu að huga að húsnæðis- eða sumarbústaðarkaupum?
• Viltu minnka greiðslubyrði þína af núverandi lánum?
• Viltu byggja eða breyta heima fyrir?
... eða bara nánast hvað sem er
• Allt að 80% veðhlutfall
• 50% afsláttur af lántökugjaldi*
• 50% afsláttur af greiðslumati*
• Allt að 30 ára lán
• þú færð ókeypis verðmat fasteignar*
ATH. Útlán eru háð útlánareglum SPH
*tilboð gildir til 01.12.2003
ar
gu
s
–
0
3-
04
85
440kr.
Eitt verð fyrir
alla jólapakka!
Hámarksþyngd 20 kg,
hámarksstærð 0,06 m3
(t.d. 30x40x50 sm)
03
-5
11
Líf hf.
Líftæknisjóðurinn hf.
Kögun hf.
Sjöundi himinn er hæðin köll-uð þar sem móttaka og skrif-
stofa forstjóra flugfélagsins
Atlanta er á Höfðabakka. Þaðan
er víður sjóndeildarhringur og
gott útsýni. Passar vel flug-
félagi. Höfuðstöðvarnar hafa
ekki alltaf risið svo hátt fyrir
ofan yfirborð jarðar. Fyrir rúm-
um áratug bograði undirritaður
við frágang hellulagnar fyrir
utan lágreist timburhús. Þar
voru höfuðstöðvar Atlanta. Um
svipað leyti var ungur flugmað-
ur nýlega byrjaður að vinna fyr-
ir félagið. Sá heitir Hafþór Haf-
steinsson. Síðan þá eru liðnir
margir flugtímar á flota Air Atl-
anta og Hafþór er orðinn for-
stjóri félagsins. Flugfélagið
stofnuðu hjónin Arngrímur Jó-
hannsson og Þóra Guðmunds-
dóttir. Þau eru, ásamt Magnúsi
Þorsteinssyni fjárfesti, aðaleig-
endur félagsins. „Arngrímur er
að fljúga fyrir okkur núna,“ seg-
ir Hafþór. Hann kynntist Arn-
grími og Þóru þegar þau ráku
saman flugskóla. Atlanta er
stærra félag en margan grunar
og hefur verið í örum vexti und-
anfarin ár. Félagið er tíunda
veltumesta félag á Íslandi. Ef
lagður er saman flugflotinn í
farþegaflugi og fraktflugi er fé-
lagið stærsta leiguflugfélag í
heimi. „Í dag erum við með 28
vélar og reiknum með að fjölga
þeim um fimm. Á Íslandi eru
skráðar um 60 þotur, þannig að
við erum með um helminginn,“
segir Hafþór. Vöxtur félagsins
hefur verið 15 til 16% undanfar-
in ár.
Ekki á Suðurskautinu
Síðustu misseri hafa verið
mótdræg flugrekstri. „Þrátt fyr-
ir það hefur vöxturinn haldið
áfram og verður 12,5% í ár og á
næsta ári liggur það fyrir að
vöxtur veltu verði á bilinu 15 til
16%.“ Atlanta gerir upp í dollur-
um enda eru tekjur félagsins í
þeim gjaldmiðli. Kostnaðurinn
utan launakostnaðar á Íslandi er
einnig í dollurum. „Velta félags-
ins verður í ár um 250 milljónir
dollara, en var 222 milljónir
dollara í fyrra.“ Félagið er tí-
unda stærsta fyrirtækið á Ís-
landi ef miðað er við veltu. Atl-
anta er með starfsemi í öllum
heimsálfunum; nema náttúrlega
Suðurskautslandinu. „Við þurf-
um að gera eitthvað í því,“ segir
Hafþór og hlær. Flugið er bakt-
ería og Hafþór á það sameigin-
legt með aðaleigendum félags-
ins að vera heltekinn af henni.
Leið Hafþórs liggur í gegnum
flugbakteríuna. Hann var þó
fljótlega farinn að sinna stjórn-
unarstörfum. „Ég var stöðvar-
stjóri í Afríku, Asíu og Finn-
landi.“ Síðan tók við stjórn flug-
rekstrarins og sölu- og markaðs-
mál. Hann settist í stól forstjóra
haustið 2001. Flugið er síkvikur
heimur og ekki laust við að það
sé ákveðinn ævintýraljómi í
kringum það. Hafþór segir ljóm-
ann kannski hafa verið meiri
áður. „Það eru engir tveir dagar
eins í starfinu og flugreksturinn
er sennilega ekki fyrir þá sem
vilja stöðugt umhverfi þar sem
hver dagur er öðrum líkur.“
Sveigjanleiki þarf að ríkja í
starfsemi fyrirtækisins. Hafþór
segir að hlutfall eigin véla og
leiguvéla sé miðað við að mæta
sveiflum í rekstrinum. „Hlutirn-
ir breytast hratt og sífellt hrað-
ar en áður. Það gildir um öll við-
skipti. Það er mikilvægt fyrir
okkur að vera sveigjanleg, því
við erum svo háð því hvernig
viðskiptavinum okkar gengur
og höfum sjálf ekki allt of mikla
stjórn á því. Viðskiptamódel
okkar byggist á því að falla inn í
rekstur annarra flugfélaga.“
Hafþór segir stór flugfélög vera
að leita að sveigjanleika. „Að
geta mætt tímabundinni eftir-
spurn og að geta dregið sig sam-
an þegar hún minnkar.“ Atlanta
leggur til vélar yfir háannatím-
ann og snýr sér að öðrum verk-
efnum þegar honum lýkur. Haf-
þór segir aukna áherslu félags-
ins á fraktflug meðal annars
helgast af því að álagstímar í
fraktflugi annars vegar og far-
þegaflugi hins vegar séu á ólík-
um tímum ársins.
Breytingin 11. september
„Stærri flugfélög leita líka til
okkar til þess að prófa nýjar
flugleiðir.“ Atlanta flýgur þá í
sex til tólf mánuði. Ef eftirspurn
Sífellt hærra í
sjöunda himni
Flugfélagið Atlanta hefur vaxið hratt á undanförnum árum og er nú stærsta félag sinnar tegund-
ar í heimi. Flugreksturinn í heiminum hefur gengið í gegnum miklar breytingar og starfsmenn
og stjórnendur félagsins nýtt sér ný tækifæri. Áfram er stefnt hærra.
HAFÞÓR HAFSTEINSSON, FORSTJÓRI ATLANTA
Hafþór er flugmaður og kemur úr hjarta greinarinnar. Flugrekstur er sveipaður ævintýraljóma og engir tveir dagar eru eins. Í nógu er að
snúast því reksturinn er í öllum heimsálfum nema á Suðurskautslandinu.
Ég vil gagnrýna á
móti að Félag íslenskra at-
vinnuflugmanna noti tæki-
færið þegar umræða kemur
upp um verktakafyrirtækið
Impregilo. Þetta er á engan
hátt sambærilegt. Við erum
að borga laun miðað við það
sem gerist og gengur á þeim
markaðssvæðum sem við
störfum á.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA