Fréttablaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 45
SUNNUDAGUR 14. desember 2003
Umfjölluntónlist
Fréttiraf fólki
Hér eftir verður eilífðarrokkar-inn Mick Jagger titlaður Sir í
breskum fjölmiðlum því Rolling
Stones-söngvarinn var sleginn til
riddara á föstudag. Það var Karl
Bretaprins sem framkvæmdi at-
höfnina því Elísabet Bretlands-
drottning gekkst nýlega undir
hnéaðgerð og er frá störfum.
Jagger, sem hefur verið harð-
lega gagnrýndur af gítarleikara
Rolling Stones, Keith Richards,
fyrir að gangast að heiðrinum,
segist ekki taka nafnbótina of há-
tíðlega.
Hann mætti ásamt tveimur
dætrum sínum og 92 ára gömlum
föður, klæddur í leðurjakka og
bindi. Aðspurður um viðbrögð vin-
ar síns vegna athafnarinnar sagði
Mick að hann grunaði Keith um að
vilja vera sleginn til riddara sjálf-
ur. „Þetta er eins og að fá ís,“ sagði
Mick. „Ef einn fær svoleiðis, þá
vilja hinir fá líka. Það er fínt að
vera sýndur slíkur heiður svo
lengi sem maður tekur hann ekki
of alvarlega.“ ■
LeikaranumJohn Travolta
hefur verið boð-
ið að fara út í
geim. Hann
greindi frá því í
viðtali við The
Sun að NASA
hefði boðið hon-
um að vera far-
þegi í væntan-
legri geimferð. Travolta segist
vera spenntur fyrir því að fara
og vonast til þess að finna 5 mán-
aða gat á dagskrá sinni til þess að
æfa fyrir geimskotið. Travolta er,
eins og margir vita, þotuflugmað-
ur og býr því yfir einhverri
reynslu.
Mikil leynd hafði verið yfir þvíhvar þau Gwyneth Paltrow
og Chris Martin, söngvari Cold-
play, giftu sig og hvenær. Nú er
það vitað að þau létu pússa sig
saman á búgarðinum San Ysidro í
Santa Barbara á föstudag. Ólíkt
Jennifer Lopez og Ben Affleck
hefur parið algerlega neitað að
tjá sig um brúðkaup sitt í fjöl-
miðlum, bæði fyrir og eftir at-
höfnina. Enda tókst þeim að gifta
sig.
Leikarinn ColinFarrell stakk
óvart mótleikara
sinn í Alexander
við tökur á einum
sverðbardag-
anna. Sverð
Farrell fór í
gegnum brynju
mótleikarans og sverðsoddurinn
stakkst inn í hold hans. Auka-
leikarinn lét þetta ekki mikið á
sig fá og kláraði atriðið áður en
hann kvartaði undan sársauka
sínum. Hann var þá fluttur rak-
leiðis upp á sjúkrahús þar sem
gert var að sárum hans. Þau
reyndust ekki alvarleg.
Barnaverndar-samtök í Banda-
ríkjunum segja að
Michael Jackson
hafi þvingað 12 ára
strákinn sem kært
hefur söngvarann
fyrir kynferðis-
ofbeldi og móður hans til þess
að lýsa yfir sakleysi Jacksons á
pappír og á myndbandsupptöku.
Upptakan var gerð skömmu
eftir að heimildamynd Martins
Bashirs um Jackson fór í loftið,
mörgum mánuðum áður en
kærurnar voru lagðar fram.
SjónvarpskonanOprah Winfrey
hefur sagt opinber-
lega að hún ætli
sér aldrei aftur að
verða gestur í
spjallþætti Davids
Lettermans. Hún segist hafa
orðið fyrir barðinu á köldum
bröndurum hans í bæði skiptin
sem hún hefur mætt. Vegna
þessa hefur Letterman boðið
henni sérstaklega að vera gest-
ur í þætti sínum til þess að
„grafa stríðsöxina“. Hann sagð-
ist einnig vera tilbúinn til þess
að vinna með Dr. Phil í von um
að bæta samskipti þeirra í
framtíðinni.
Mick Jagger sleginn til riddara
SIR MICK OG FJÖLSKYLDA HANS
Joe Jagger (92 ára), Mick og dæturnar Karis (32 ára) og Elizabeth (19 ára).
Hátíðlegt par
Jólaplötu Páls Óskars Hjálmtýs-
sonar og hörpuleikarans Moniku,
Ljósin heima, er ætlað að koma
fólki í jólaskap og það hlýtur hún að
gera, annað er varla inni í myndinni.
Hörpuleikur Moniku er bæði
gullfallegur og hátíðlegur og á ákaf-
lega vel við í rólegum jólalögum
sem þessum. Rödd Páls Óskars
smellpassar líka við og saman
mynda þau öflugt par. Lögin eru
bæði innlend og erlend og sum
þekktari en önnur. Páll Óskar syng-
ur með systur sinni Diddú í tveimur
lögum. Ná þau mjög vel saman en
sérstaklega þótti mér „Með bæninni
kemur ljósið“ gott. Er það án vafa
eitt besta lag plötunnar enda fagurt
með eindæmum. Fleiri lög í uppá-
haldi voru: „Ég vona að það verði í
dag,“ „Himinganga,“ hið hátíðlega
„Come Again“ og „A Spaceman
Came Travelling“.
„Yndislegt líf“ syngur Páll Ósk-
ar mjög vel sem fyrr, en núna með
hörpuundirleik. Kemur lagið mjög
vel út þannig. Í heildina hefði
kannski mátt stytta plötuna um tvö
til þrjú lög en það er bara smáatriði.
Ljósin heima er ákaflega vel
heppnuð og vönduð plata sem ætti
að koma hverjum sem er í jólaskap,
ef hann er ekki þegar kominn í það.
Freyr Bjarnason
Páll Óskar & Monika: Ljósin heima