Fréttablaðið - 14.12.2003, Síða 25

Fréttablaðið - 14.12.2003, Síða 25
25SUNNUDAGUR 14. desember 2003 ber ð úthlutað elli til að selja yni, en á bíla- nt í flasið á um jólakort- ótast út slags- eikinn. Þið fé- f svæðisstjóra ons og sendir 3. desember Í jólaglöggi starfsmannafélagsins gætir þú þess að keppinautur þinn um deildarstjórastöðuna sé aldrei með tómt glas. Hann heldur ræðu, þuklar símastúlkuna, gubbar rúsínum á teppið fyrir framan forstjórann og sparkar að auki í hann. Forstjórinn, sem sjálfur er vel við skál, rekur hann þrisvar í veislunni. Færðu þig fram um þrjá reiti. 4. desember Eftir laufabrauðsskurð hjá mágkonu þinni stenstu ekki málið og hringir í Dægurmálaútvarpið og kvartar yfir því hversu flöt við liggjum fyrir þess- um norðlenska sið. Björn Þór Sig- björnsson heldur að þú sért Illugi Jökulsson að atast í sér og slekkur á þér í miðri setningu. Aftur um tvo reiti. 5. desember Þú ferð með börnin á Austurvöll að sjá þegar kveikt er á jólatrénu frá Norðmönnum. Þú tuðar um hversu trén hafi farið minnkandi með árun- um og gætir ekki að því að Geir Haarde og Tómas Ingi Olrich standa fyrir aftan þig. Þeir hefja þegar upp varnarræðu fyrir Norðmenn og tefja þig um eina umferð. 6. desember Þú ert kallaður á húsfund af því að þú ert sá eini sem er ekki með rauð- ar perur á svölunum. Þú stendur á rétti þínum til að hafa bláar perur og þegar nágranni þinn býðst til að borga nýjar perur handa þér sakar þú hann um jólaperufasisma. Um leið og þú rýkur á dyr heyrirðu að konan á móti segir: „Hann er búinn að eyði- leggja blokkina þessi jólin.“ Aftur um tvo reiti. ber aglögg til ún reynist alka og kara en erjasaft. a umferð, 9. desember Á meðan eiginkonan skreppur inn í Liverpool kaupir þú Jóla-Herópið af lautinant í Hjálpræðishernum, lest það uppi í sófa um kvöldið og leiðir aðeins hugann að boðskap jólanna. Veltir því fyrir þér hvort ekki sé ær- legra líf að ganga um í júniformi á guðs vegum en velkjast um í verald- legu basli. Fram um tvo reiti. 8. desember Það er ljóst að þér lánast ekki að út- vega rjúpur fyrir þessi jól. Þú hringir í Siv Friðleifsdóttur og húðskammar rit- ara hennar. Sérð þér loks þann kost vænstan að fara niður á höfn og fal- ast eftir rjúpum hjá rússneskum sjó- mönnum. Þeir selja þér torkennilegt kjöt í poka sem reynist af einhverjum orsökum vera hálfnagað þegar heim kemur. Þú hringir aftur í Siv og situr hjá eina umferð. 7. desember Þú ferð í jólaföndur með átta ára dóttur þína og lendir á borði með smíðakennara sem á son í sama bekk. Á meðan þú klessir jötungripi á klósettrúllu galdrar hann fram Jesúbarnið, Maríu, Jósef, vitringana og fjárhirða. Dóttir þín slæst í hóp með smíðakennaranum og aðdá- endum hans. Þú notar jötungripið í lófa þínum til að draga hana grenj- andi heim. Aftur um einn reit. 19. desember Konan þín dregur þig og börnin á að- ventuvöku í Bústaðakirkju. Þú bítur á jaxlinn og telur þig geta þolað við í klukkutíma. Vakan dregst hins vegar á langinn því séra Pálmi Matthíasson er kominn með móral vegna þess að hafa verið svo mikið í sviðsljósinu og tekur sér þrjá tíma í að tala um boðskap jól- anna. Þú missir úr eina umferð. 20. desember Þegar þú ferð heim til mömmu að sækja smákökurnar segir hún að þú getir bakað þínar smákökur sjálfur, heldur yfir þér fyrirlestur um kúgun kvenna og býður þér áskrift að kvennablaðinu Veru. Þú sérð á mæðulegum svip föður þíns sem sit- ur og fægir silfur að það borgar sig ekki að andmæla. Þú kemur við í bakaríi, kaupir pakka af Mömmukök- um og tefst um eina umferð. 21. desember Þú ert allt of seinn að kaupa jólatré. Í Blómavali er ekkert eftir nema krækl- óttir aumingjar eða hálfsköllóttir risar. Þegar þú sérð þokkalegt tré er annar fljótari að grípa það. Þú þekkir mann- inn og spyrð hvort þar fari ekki Halldór Ásgrímsson? Segist styðja hann full- komlega og ljótt að heyra vantrausts- raddir um að hann verði lélegur for- sætisráðherra. Hann gefur þér eftir tréð og þú ferð fram um einn reit. 22. desember Þar sem þú stendur í kös í Eymunds- son í Austurstræti kemur Bubbi Morthens askvaðandi og heilsar þér með virktum að fjölda manns aðsjá- andi. Jafnvel sonur þinn horfir á þig með virðingaraugum. Farðu fram um þrjá reiti. ember erðu út með trefil- af þér í jólagjöf og á næstu hæð með trefil. Þú fyllist rð konu þinnar og ana treflinum með ú kærir þig ekkert ð hennar brenni- Þú situr þegjanda- um kvöldið og mferð. 26. desember Í jólaboðinu hjá Mundu frænku lend- irðu í klónum á Böðvari, svila hennar. Síðast þegar þú vissir var hann dyggur stuðningsmaður Samfylkingarinnar og þú hélst að þú gætir kvatt hann í kút- inn með yfirlýsingum um ótrúverðug- leika Ingibjargar Sólrúnar. En hann er þá nýlega genginn til liðs við Vinstri græna og er hálfu verri viðureignar en áður. Milli þess sem hann talar um vingulshátt Ingibjargar og Össurar grípur hann í klarinettið og spilar Heims um ból. Aftur um tvo reiti. 25. desember Þú liggur andvaka eftir að hafa glugg- að í eina af þremur eintökum bókar- innar „Að láta lífið rætast“ eftir Hlín Agnarsdóttur sem þú fékkst í jólagjöf. Þú horfir á hin tvö á náttborðinu og prísar þig sælan að kona þín sé ekki með skáldagrillur. Morguninn eftir sefur þú af þér eina umferð. 24. desember Þú vaknar of seint til að bjarga gjöf- inni handa konunni og hringir í kunn- ingja þinn til að leita ráða. Hann segir þér að tala við listmálara, þeir hafi þess vegna opið fram yfir miðnætti. Þú hringir en allir taka þér fálega þar til þú lendir á Gylfa Ægissyni sem sel- ur þér mynd af skipinu mb Hafsteini en órar ekki fyrir hvernig þú eigi að réttlæta gjöfina. Situr hjá í fimm um- ferðir. 23. desember Þið strákarnir í vinnunni stelist til að taka upp jólagjöf fyrirtækisins sem er koníak eins og alltaf – bara ögn ódýr- ara þetta árið. Þegar þið eruð langt komnir með að klára gjafirnar ykkar ákveðið þið að skella ykkur í skötu á Óðinsvé. Það er gaman þar til þú sérð að klukkan er að slá hálf tólf og þú ekki búinn að kaupa gjöfina handa eiginkonunni. Farðu aftur á byrjunarreit. 3. janúar Ekkert til í ísskápnum, fjölskyldan hungruð, allar búðir lokaðar vegna vörutalningar og þið endið á að borða svið á Umferðarmiðstöðinni. Sonur þinn vill ekki svið og þú gefur honum aura til að leika sér í Rauða kross kassa. Stuttu síðar kemur húsvörður- inn með drenginn í eftirdragi og flytur ræðu um skaðsemi fjárhættusspila og það læri börnin sem fyrir þeim er haft. Aftur um einn reit. 4. janúar Eftir að þið hjónin hafið skoðað fjár- hagsstöðuna ákveður þú að fara út og láta keyra aftan á þig, fá kraga og mikla peninga út úr tryggingunum. Þú snögghemlar nokkrum sinnum á leið- inni en lendir alltaf á snjöllum öku- mönnum sem sveigja framhjá. Loks stoppar löggan þig og fer með þig á stöðina til að taka blóðprufu. Þú kem- ur of seint í vinnuna og situr hjá eina umferð. 5. janúar Þegar þú sérð mynd af þér í Moggan- um við grein um áramótaskaupið undir fyrirsöginni: „Hvað er fyndni?“ sérðu strax eftir því að hafa skrifað hana. Hún lítur út eins og umsókn um skaupið að ári. Það er hringt í þig frá þremur útvarpsstöðvum og þú beðinn um að segja betri brandara en voru í skaupinu. Á eftir er ljóst að þú verður ekki ráðinn. Farðu aftur um einn reit. 6. janúar Þú ákveður að kaupa veglegan flug- eldapakka en reynist vera sá eini í hverfinu sem heldur uppá þrettándann. Þar sem þú ert í óða önn að skjóta upp ganga tvær konur framhjá og þú heyrir þær hvísla að þarna sé einn sem hafi dáið úr ölvun áður en hann gat skotið upp flugeldunum á gamlárskvöld. Færðu þig aftur á byrjunarreit og bíddu þar fram að næstu jólum. ENDA Teikningar: Ómar Stefánsson

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.