Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 26
Við höfum náð saman frábærumhópi og verkið sem er að
myndast á sviði Loftkastalans á
eftir að taka íslenska áhorfendur
með trompi. Ég efast ekki um það
eina mínútu,“ segir Hallur Helga-
son framleiðandi leiksýningarinn-
ar Eldað með Elvis, jólasýningar
Loftkastalans, en þar er Hallur
jafnframt leikhússtjóri.
Leikritið er eftir Bretann Lee
Hall og var frumflutt í London árið
1999 þannig að það er til þess að
gera nýtt af nálinni. Frumsýning á
Íslandi verður svo 30. desember.
Lee Hall hefur m.a. verið tilnefnd-
ur til Óskarsverðlauna fyrir hand-
rit sitt að bíómyndinni Billy Elliot.
Eldað með Elvis, sem er sót-
svartur nútímagamanleikur, hef-
ur farið sigurför um heiminn,
þykir ögrandi og verkið er krydd-
að með Elvis-lögum sem Steinn
Ármann Magnússon flytur á sinn
sérstæða hátt. Auk Steins leika í
verkinu þau Halldóra Björnsdótt-
ir, sem kemur fram með góðfús-
legu leyfi Þjóðleikhússins, Friðrik
Friðriksson og Álfrún Örnólfs-
dóttir. Álfrún er að góðu kunn fyr-
ir ýmis hlutverk sem barn og ung-
lingur, m.a. í kvikmyndinni Svo á
jörðu, og nýverið lék hún aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni Dís sem
enn hefur ekki verið sýnd. Leik-
stjóri er Magnús Geir Þórðarson.
„Verkið er allt í senn. Fyndið,
sexý og sorglegt,“ segir Hallur.
„Þetta er svört kómedía um krís-
urnar sem nútímamaðurinn á við
að eiga. Móðirin er með anórexíu,
dóttirin er með eldamennskuæði,
faðirinn er fyrrverandi Elvis-eft-
irherma bundin við hjólastól og
inn í þeirra líf kemur ósköp ein-
faldur bakaralærlingur sem gerir
allt vitlaust á heimilinu.“
Hallur á bágt með að lýsa
áhrifum þeim sem verkið fram-
kallar: Áhorfendur hlæja en
skammast sín svo því aðstæður
þessa fólks eru svo brjóstum-
kennanlegar. ■
26 14. desember 2003 SUNNUDAGUR
Þeir spara hvergi stóru orðinleikhúsmennirnir þegar þeir
lýsa jólasýningum leikhúsanna
sem nú er verið að æfa: Grenjandi
dramatík! Gargandi klassík! Hleg-
ið og grátið í senn! Algjör þunga-
vigt! Hrikalega gaman. Skrattinn
og Elvis... ef til vill ekkert sérlega
jólalegt inntakið en þetta er nú það
sem leikhúsfólk á Íslandi er að fást
við þessa dagana.
Björg Björnsdóttir, kynningar-
fulltrúi Þjóðleikhússins, segir að nú
sé að renna upp sá tími að almenn-
ingur veiti sýningum leikhúsanna
ekki mikla athygli, jólaamstrið eigi
hug hans allan. Leikhúsaðsókn er
ekki mikil í desember. Kærkomið
svigrúm til að undirbúa jólasýning-
arnar því strax upp úr áramótum
kemur gríðarlegur kippur í aðsókn-
ina. Og þá verður eftirfarandi með-
al þess sem er í boði.
jakob@frettabladid.is
Meistarinn og Margaríta erjólasýning Hafnarfjarðar-
leikhússins og byggir á sam-
nefndu stórvirki bókmenntasög-
unnar eftir Bulgakov. Hilmar
Jónsson leikstýrir og semur jafn-
framt leikgerð upp úr skáldsög-
unni en Edda hyggur á endurút-
gáfu bókarinnar, sem hefur verið
ófáanleg lengi.
Kristján Franklín Magnús,
Margrét Vilhjálmsdóttir, Egill
Heiðar, Elma Lísa Gunnarsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson og Erling-
ur Jóhannesson eru meðal þeirra
sem skipa leikhópinn en að auki
taka þátt í sýningunni hópur
nemenda við Flensborgarskólann
sem og Svanurinn – þrjátíu
manna lúðrasveit.
„Þetta er hrikalega gaman.
Sambland af draumi veruleika og
fantasíu,“ segir Hilmar og vart
hægt að greina orðaskil fyrir
lúðrablæstri. „Þetta er okkar
versjón af Meistaranum og
Margarítu þar sem skrattinn og
hans hyski koma til Mosku. Þeir
sem á vegi hans verða verða fyr-
ir einhvers konar afhjúpunum.
Þegar skrattinn er settur inn í
samhengið Moskvu og fer að
leika sér, vega og meta, kemur
ýmislegt í ljós.“
Hilmar segir að inn í leikinn
fléttist píslarsaga og ástarsaga
svo eitthvað sé nefnt. „Þetta er
hræringur sem vísar beint til Ís-
lands dagsins í dag. Aktúel
ádeila. Virðist eiga sér eilíft líf.
Ýmislegt sem Rússar á fyrri
hluta síðustu aldar voru að kljást
við virðist vera að ganga aftur
hér á landi.“
Jólasýning Hafnarfjarðarleik-
hússins er eins konar afmælissýn-
ing því leikfélagið á 10 ára afmæli
á næsta ári. Hilmar segir engan
hafa órað fyrir því við stofnun að
á vegum félagsins yrðu tugir vel
heppnaðra leiksýninga. „Þetta er
síðasta sýning okkar hér í frysti-
húsinu, því frábæra leikhúsi, og
nú er verið að þreifa fyrir sér
með annað húsnæði. Fullur hugur
er á hjá bæjaryfirvöldum að láta
þetta ganga. En vel fer á því að
kveðja húsið með pompi og prakt
– gleði og glaumi – og fagna árun-
um tíu.“ ■
Þetta er grenjandi dramatík,“segir Kjartan Ragnarsson,
sem leikstýrir jólasýningu Þjóð-
leikhússins að þessu sinni. Þar er
róið á hin klassísku mið. Um er
að ræða uppfærslu á einu af
meistaraverkum Ibsens og frum-
flutning á Íslandi. Jón Gabríel
Borkmann fjallar um mann sem
hefur orðið vís að fjármálamis-
ferli og dæmdur fyrir það, hefur
setið í fangelsi og er kominn
heim. Hann lítur yfir farinn veg.
Leikrit um líf á bak við hneyksl-
isfréttir dagblaðanna og leitina
að því sem raunverulega skiptir
máli í lífinu.
„Þetta er ný pæling hjá Ibsen
sem aðalnatúralistinn, að skoða
ævi persónu sem horfir til baka.
Hvers virði það er sem hann hef-
ur gert í lífinu? Spurningin er
hversu mikið leyfist mönnum?
Hversu langt má ganga í að vaða
yfir aðra þannig að manns eigin
talent fái notið sín? Var það þess
virði?“ spyr Kjartan og Frétta-
blaðið hefur svo sem engin svör
á reiðum höndum si svona.
Í titilhlutverki er Arnar Jóns-
son sem fagnar 40 ára leikafmæli
sínu nú um stundir. Anna Kristín
Arngrímsdóttir og Ragnheiður
Steindórsdóttir fara með önnur
stærstu hlutverkin. ■
Hvað verður í leikhúsunum um jólin?
Dramatík, klassík,
skrattinn og Elvis
Leikhúsin eru nú í óðaönn að undirbúa jólasýningar sínar. Þar kennir
ýmissa grasa. Fréttablaðið forvitnaðist um hvaða sýningar er verið að
æfa hjá fjórum helstu leikhúsum höfuðborgarsvæðisins. Hafnarfjarðarleikhúsið – Meistarinn og Margaríta
Skrattinn
kemur í bæinn
VAR ÞAÐ ÞESS VIRÐI?
Stórleikarinn Arnar Jónsson er í titilhlutverkinu en engillinn er Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
Þjóðleikhúsið – Jón Gabríel Borkmann
Bak við hneykslin
KJARTAN RAGNARSSON
Leikstjórinn glímir við stórar spurningar í
einu af meistaraverkum Ibsens.
LEIKHÓPURINN
Leikararnir sem fást við hið margbrotna meistaraverk Búlgakovs.
HILMAR JÓNSSON
Vandamál sem Rússar áttu við
að stríða á fyrri hluta síðustu
aldar virðist vera að ganga í
endurnýjun lífdaga.
Loftkastalinn – Eldað með Elvis
Hlegið og grátið í senn
HALLUR HELGASON
Framleiðandinn hefur tröllatrú á verkefninu: Fyndið, sexý og sorglegt í senn.
LEIKARARNIR Í ELDAÐ MEÐ ELVIS
Saklaus bakarasveinn lendir í klóm allsérstakrar fjölskyldu svo ekki sé nú meira sagt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
R
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
R
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M