Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 12
■ Andlát
Ásgeir P. Ágústsson, frá Stykkishólmi,
Aflagranda 40, lést á líknardeild Land-
spítala Íslands, Landakoti, fimmtudaginn
11. desember.
Kristjana Benediktsdóttir, dvalarheimil-
inu Hvammi, Húsavík, andaðist á Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík,
fimmtudaginn 11. desember.
Sigríður Kristjánsdóttir, frá Ási, Breið-
dalsvík, lést á elliheimilinu Grund mið-
vikudaginn 10. desember.
Deb Kumar Gurung, Blöndubakka 6,
lést á aðfaranótt laugardagsins 6. des-
ember.
■ Afmæli
Hannes Pétursson ljóðskáld, 72 ára.
Guðrún Pétursdóttir líffræðingur, 53
ára.
Guðmundur Ólafsson, leikari og rithöf-
undur, 52 ára.
Með taktinn
í lagi
12 14. desember 2003 SUNNUDAGUR
George Washington, fyrsti for-seti Bandaríkjanna, lést úr
bráðri barkabólgu þennan dag árið
1799. Hann var 67 ára.
George Washington var fæddur
árið 1732. Fjölskylda hans var
bændafólk í Westmoreland-sýslu í
Virginíu. Hann hlaut sína fyrstu
herþjálfun í nýlendustríði Virginíu
árið 1754, þegar hann stýrði litlum
herflokki í frelsisbaráttu gegn
Frökkum. Tveimur árum seinna
tók hann við stjórn varnarmála í
Vestur-Virginíu. Eftir stríðið sagði
hann skilið við herinn og sneri aft-
ur til bóndalífsins. Skömmu síðar
settist hann í ríkisstjórn Virginíu.
Næstu tvo áratugi barðist
Washington gegn sköttum og und-
irokun Breta. Árið 1774 var hann
málsvari Virginínu á sambands-
ríkjaþingi. Þegar bandaríska bylt-
ingin braust út árið 1775 var Wash-
ington valinn sem yfirmaður hins
nýstofnaða sambandsríkjahers.
Með lítt reyndum og illa búnum
hermönnum leiddi Washington ár-
angursríkan hernað gegn breskum
her í Bandaríkjunum. Í október
1781 sigraði Washington helsta
herforinga Breta, Charles
Cornwalli. Cornwalli hafði stýrt
einum sterkasta her Breta í Banda-
ríkjunum.
Eftir stríðið settist Washington
að í Mount Vernon en árið 1787
svaraði hann kalli um að snúa sér
aftur að stjórnmálum. Ári seinna
var hann einróma kjörinn fyrsti
forseti Bandaríkjanna. Hann var
endurkjörinn árið 1792 en fjórum
árum síðar hafnaði hann boði um
að leiða stjórnina þriðja kjörtíma-
bilið í röð.
Árið 1797 fékk Washington loks
að setjast í helgan stein. Hann dó
tveimur árum síðar. ■
Ég verð að vinna í dag en ætliég geri svo ekki eitthvað ró-
legt í kvöld,“ segir Gísli Galdur,
plötusnúður og tónlistarmaður,
sem er 21 árs í dag. Þessa dagana
er hann að vinna í Þjóðleikhúsinu
sem aðstoðarhljóðmaður í Dýrun-
um í Hálsaskógi og er ekki í nein-
um vafa um hvert sé uppáhalds-
atriðið sitt í því fræga barnaleik-
riti. „Það er bakarasenan. Hún er
einstaklega fyndin í þessari upp-
setningu.“
Auk þess er Gísli Galdur að
spila mikið, þannig að tónlist og
hljóð eru aldrei langt undan í hans
lífi. „Ég er að fara að spila síðustu
tónleikana mína með Quarashi
næsta laugardag,“ segir hann en
með þeirri hljómsveit hefur hann
verið að spila undanfarin tvö ár.
Fyrir þremur vikum síðan hætti
hann til að snúa sér að öðrum
verkefnum en ætlar að taka þessa
lokatónleika. „Svo er ég búinn að
vera að spila með Skyttunum frá
Akureyri og huga að eigin tón-
list.“
Það hefur greinilega lengi ver-
ið taktur í Gísla. „Ég byrjaði að
banka takt í sætið hans pabba í
bílnum þegar ég var tveggja ára.
Þegar ég var fjögurra ára var ég
farinn að raða pottum og pönnum
eins og trommusetti og vakti
pabba svo á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum með því að slá á
pönnurnar með sleifum.“ Það hef-
ur því hentað vel að senda strák-
inn í tónlistarskóla þegar hann
var sex ára til að fá útrás fyrir
taktinn og þar er Gísli Galdur enn
að læra á slagverk eins og hann
hefur gert í mörg ár.
Eftirminnilegasta afmælið var
þegar hann varð 18 ára og var í
fyrsta skipti í Bandaríkjunum.
„Þetta var í fyrsta túrnum með
Quarashi og ég ætlaði að gera svo
mikið. En strákarnir voru í viðtöl-
um allan þennan dag, þannig að
það endaði með því að ég var einn
á rölti allan daginn og allt kvöldið
þarna í New York. Öll plönin sem
ég hafði fóru út um þúfur.“ ■
Afmæli
GÍSLI GALDUR ÞORGEIRSSON
■ er 21 árs í dag. Eftirminnilegasta
afmælið var að væflast einn í
New York þegar hann varð 18.
CLIFF WILLIAMS
Bassaleikari AC/DC fæddist þennan dag
árið 1949.
14. desember
■ Þetta gerðist
1503 Nostradamus kemur í heiminn.
1911 Norski landkönnuðurinn Roald
Amundsen er fyrstur manna til að
komast á suðurpólinn. Hann
kemur á leiðarenda 35 dögum á
undan Robert F. Scott.
1918 Konur, yfir þrítugt, taka í fyrsta
sinn þátt í kosningum hérlendis.
1959 Makarios erkibiskup er kjörinn
fyrsti forseti Kýpur.
1995 Alnæmisjúklingurinn Jeff Getty
fær beinmergsgjöf úr apa.
1998 Hundruðir foringja Palestínu-
manna lýsa aftur yfir að Ísraelsríki
skuli vera eytt.
1999 Bandarískir og þýskir samninga-
menn samþykkja að koma á fót
5,3 milljarða dollara sjóði til
stuðnings fórnarlömbum nasista í
seinni heimsstyrjöldinni.
GEORGE WASHINGTON
Fyrsti forseti Bandaríkjanna lést þennan
dag árið 1799.
GEORGE WASHINGTON
■ fyrsti forseti Bandaríkjanna
lést þennan dag.
14. desember
1799
...núna á þremur stöðum
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
28
82
11
/2
00
3
Gjafabréf Útilífs
hentar öllum.
jólagjöf
Hugmynd að
SIGURJÓN
ÞÓRÐARSON
Var einn af
flutningsmönn-
um frumvarps
til laga um eftir-
laun þing-
manna, en dró
stuðning sinn
til baka í gær.
??? Hver?
Þingmaður Frjálslynda flokksins.
??? Hvar?
Ég er staddur í símaklefa á Alþingi.
??? Hvaðan?
Úr miðbænum á Sauðárkróki og Reyk-
holti, fræðasetri Skagafjarðar.
??? Hvað?
Dró stuðning minn til baka við frumvarp
til laga um eftirlaun þingmanna.
??? Hvernig?
Ég vildi leggja fram breytingartillögu
þess efnis. Þegar það var ljóst að ekki
var vilji til þess dró ég stuðning minn til
baka.
??? Hvers vegna?
Greiðslur til formanna stjórnmálaflokk-
anna eiga ekki rétt á sér, ég vildi að
þetta yrði dregið til baka.
??? Hvenær?
Í gær.
■ Persónan
Dánardagur George Washington
Hundasnyrting
. Klipping. Þvottur. Klóklipping. Reyting
Hunda - spa
Njálsgata 28
sími: 898 7770
Erna Andreassen
Faglærð
GÍSLI GALDUR ÞORGEIRSSON
Er að fara að spila síðustu tónleikana sína með Quarashi næsta laugardag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA