Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 18

Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 18
18 14. desember 2003 SUNNUDAGUR ■ Viðskipti SJÁVARÚTVEGUR Ákvörðun stjórnar Eimskipafélagsins að fela Landsbankanum að hefja sölu á útgerðarstoðinni Brimi kom ekki á óvart. Eftir að stjórnin hafði kynnt fyrirhugaða skipt- ingu félagsins í skipafélagið Eimskip og fjárfestingarfélagið Burðarás mátti vera ljóst hvert stefndi. Brim fylgdi fjárfesting- arhlutanum. Það benti eindregið í þá átt að litið væri á sjávar- útvegsstoðina sem söluvöru. Stefnt er að því að Burðarás verði fjárfestingarfélag með Landsbankann sem kjölfestueig- anda. Magnús Gunnarsson, stjórn- arformaður Eimskipafélagsins, segir töluverðan áhuga á einstök- um eignum Brims. Félagið var samsett úr sjávarútvegsfyrir- tækjunum Skagstrendingi á Skagaströnd, Haraldi Böðvars- syni á Akranesi og Útgerðarfé- lagi Akureyringa. Stærð Brims takmarkar möguleika eigenda til að selja það í heilu lagi. Fáir kaupendur eru með bolmagn til að ráðast í slíkt verkefni. Þeir sem það eru myndu lenda í vand- ræðum vegna kvótaþaksins. Magnús segir engan hafa sett sig í samband varðandi kaup á öllu félaginu. Fyrir stjórn Eimskipafélags- ins vakir að fá sem best verð fyrir Brim. Þá er einnig horft til þess að sjávarútvegurinn er við- kvæm grein vegna áhrifa henn- ar á byggðirnar. Sala á kvóta og eignum frá Brimi til Seyðfirð- inga bendir til þess að sjónar- miðið um heimabyggðirnar verði haft til hliðsjónar við sölu Brims eða fyrirtækjanna í eign þess. Tvennt kemur til greina við sölu Brims. Hægt er að selja hvert fyrirtæki sér úr stokkn- um. Með því þyrfti Landsbank- inn að leggja í tölverða vinnu við að skýra mörk á ný milli fyr- irtækjanna. Rekstrareiningarn- ar eru tiltölulega skýrar, en ein- hverjar tilfærslur hafa orðið. Hin leiðin er að safna saman hópi þeirra sem hafa áhuga á einstökum fyrirtækjum og selja þeim Brim sem hópi. Síðan myndu eigendurnir skipta upp félaginu. Sú leið er talin hugnast Landsbankanum og eigendum hans. Burðarás gæti þá áfram verið meðal eigenda, en um leið losað verulega fjármuni. Vestmannaeyingar vilja norður Útgerðarfélag Akureyringa er stærsta eignin innan Brims. Kvóti félagsins er 20 þúsund þorskígildistonn. Talið er að tveir aðilar séu einkum áhuga- samir um kaup á félaginu. Ísfé- lag Vestmannaeyja mun hafa áhuga á að kaupa. Stjórnarfor- maður Ísfélagsins, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, situr í stjórn Eimskipafélagsins. Eig- endur Ísfélagsins eiga einnig stóran hlut í Tryggingamiðstöð- inni. Ekki er ólíklegt að Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbank- ans, og bankinn sjálfur hefðu áhuga á að kaupa þann hlut. Þannig myndi Ísfélagið fá ÚA og Burðarás myndi eignast hlutinn í Tryggingamiðstöðinni. Annar hugsanlegur kaupandi að ÚA er Þorsteinn Vilhelmsson, ásamt KEA. Þorsteinn var einn stofnenda og aðaleigenda Sam- herja. Hann hefur að undan- förnu verið að selja eignir úr sjávarútvegsfyrirtækjum. Þor- steinn hefur því bæði fjárhags- legt bolmagn og þekkingu á greininni til þess að takast á við slíkt verkefni. KEA hefur einnig sýnt ÚA áhuga og hefur Andri Teitsson, forstjóri félagsins, lýst opinberlega áhuga Kaupfé- lags Eyfirðinga á félaginu. Þess- ir aðilar myndu tryggja sjónar- mið heimamanna á Akureyri. Þau rök vega töluvert í huga stjórnar Eimskipafélagsins, því umræða um byggðaröskun er eitthvað sem menn vilja forðast, verði hjá henni komist. Hugsan- legt er einnig að fjárfestingar- félagið Kaldbakur kæmi að slík- um kaupum. Samherji á um fjórðung í Kaldbaki og Kaldbak- ur aftur um 15% í Samherja. Hámark kvóta myndi takmarka aðkomu félagsins að kaupum og nær útilokað að það yrði leið- andi fjárfestir í Útgerðarfélag- inu að kvótareglum óbreyttum. Grandi sækir á Skagann Heimamenn á Akranesi hafa verið uggandi um örlög Harald- ar Böðvarssonar. Fyrirtækið ræður yfir 15 þúsund þorskígildistonna kvóta. Grandi keppti við Eimskipafélagið um kaup á félaginu á sínum tíma. Heimamönnum þótti tryggara að hluturinn færi til Eimskipa- félagsins. Talið er víst að áhugi Granda hafi ekki dofnað. Hugs- anleg lausn er talin sú að Grandi flytji meginhluta starfseminnar til Akraness. Með því yrði at- vinna tryggð á Akranesi, en það er talin forsenda þess að friður ríki um ráðstöfun Haraldar Böðvarssonar. Hin leiðin væri að fjölskyldan sem átti fyrir- tækið kaupi það til baka með fjárfestum og heimamönnum. Skagstrendingur er minnsta fyrirtækið í hópnum. Félagið er með ríflega sex þúsund tonna kvóta. Heimamenn hafa lýst því yfir að þeir vilji komast að borð- inu verði Brim hlutað í sundur. Adolf H. Berndsen, oddviti Höfðahrepps, hefur lýst þeirri skoðun að full trú sé á rekstri Brims eins og það er, en að heimamenn muni ekki sitja auð- um höndum verði félaginu skipt upp. Fiskiðjan Skagfirðingur hefur einnig rennt hýru auga til Skagstrendings. Fiskiðjan er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Samgöngubætur á svæðinu gera sameiningu þess- ara félaga að góðum kosti. Skag- strendingar eru þó tortryggnir í garð Kaupfélagsins. Samkvæmt heimildum er ánægja með sam- vinnu við framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar, en Þórólfur Gísla- son kaupfélagsstjóri nýtur ekki trausts forystumanna á Skaga- strönd. Miðað við hversu þægilegra það væri fyrir Burðarás að selja Brim í heilu lagi má telja líklegt að þeir sem sækjast eft- ir eignum Brims ræðist við og kanni möguleika á að mynda hóp til að bjóða í félagið í heilu lagi. Stjórn Eimskipafélagsins hefur enga ákvörðun tekið um hvaða leið verði farin. Þar telja menn skynsamlegt að halda öll- um dyrum opnum. Það sé besta leiðin til þess að tryggja félag- inu sem best verð fyrir Brim. Hvort sem einstakir hlutir þess verða seldir eða félagið í heilu lagi verður að telja líklegt að fyrr eða síðar verði félaginu skipt upp. haflidi@frettabladid.is Baráttan hafin um Brim Ólíklegt verður að telja að útgerðarrisinn Brim verði rekinn til langframa í óbreyttri mynd. Sölu- ferli félagsins er hafið og margir áhugasamir um fyrirtækin sem mynduðu félagið. Enginn hefur enn sem komið er lýst áhuga á félaginu í heilu lagi. BOLTINN RÚLLAR Boðaðar voru nýjar áherslur í rekstri Eimskipafélagsins þegar ný stjórn tók við í félaginu í haust. Þegar hefur verið boðuð skipting félagsins í skipafélag og fjárfestingarfélag. Nú hefur Landsbankanum verið falin sala á útgerðarrisanum Brimi. Fyrir stjórn Eim- skipafélagsins vakir að fá sem best verð fyrir Brim. Þá er einnig horft til þess að sjávarútvegurinn er viðkvæm grein vegna áhrifa hennar á byggðirnar. Sala á kvóta og eignum frá Brimi til Seyð- firðinga bendir til þess að sjónarmiðið um heima- byggðirnar verði haft til hlið- sjónar við sölu Brims eða fyrirtækjanna í eign þess. ,, KOMMÚNISTI ÁVARPAR KAPÍTALISTA Wen Jiabao, forseti Kína, hefur verið á ferðalagi um Vesturheim undanfarna daga. Leiðtogi ríkisins sem lengi afneitaði mark- aðshagkerfinu flutti fyrirlestur við viðskipta- háskóla Harvard á dögunum og hefur ávarpað samkomur framámanna í viðskipt- um þar sem hann hefur komið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.