Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 20

Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 20
Bókin fjallar um formóðurmína, Sigríði Jóhannesdóttur Hansen, sem var uppi á 19. öld,“ segir Oddný Sen rithöfundur, sem nú hefur sent frá sér nýja skáld- sögu, Vængjuð spor. Bókin kom í búðir undir lok þessarar viku. „Þetta er ástar- og örlagasaga og í henni blandast saman fátækt og ríkidæmi,“ segir Oddný, en Sig- ríður var alin upp á efnaheimili í Hafnarfirði á árunum 1844-1860, giftist ríkum manni á Akranesi, eignaðist fjögur börn með honum og missti tvö þeirra. Síðar gerðist hún saumakona í Reykjavík í kringum 1868 og bjó við mikla fá- tækt og skort þar til hún fékk starf sem saumakona á heimili fyrsta kaupmannsins á Akranesi, Þorsteins Guðmundssonar. Ekki vænkaðist hagur Sigríðar við það. Hún eignaðist barn með Þorsteini sem var rangfeðrað og var annar vinnumaður látinn gangast við barninu. Hún lést svo úr sulti 39 ára gömul eftir að hafa alið tví- bura á Akranesi eftir vinnumann í grenndinni. Hálfbræður hennar úr Hafnarfirði lögðu af stað með mat til hennar en náðu ekki í tæka tíð. Svipuð vandamál kvenna „Þetta er í raun tveggja heima tal,“ segir Oddný. „Það er nútíma- kona sem segir söguna, og hún heitir jafnframt Sigríður. Hún er svona dökk artí týpa. Kona sem er komin í andlegt gjaldþrot og er að vinna að lokaritgerð í kvenna- fræðum í Kaupmannahöfn. Hún fer til Íslands til þess að kynna sér líf kvenna á Reykjanesskaga á 19. öld. Þessi Sigríður nútímans er í raun haldin vanmætti. Hjartað er kalt og nútíminn hefur ekki staðið undir væntingum hennar. Það eru fyrst og fremst persónur í kvikmyndum og ævintýrum sem standa undir hennar væntingum, og ég flétta inn í frásögnina ýms- um atriðum og vísunum í kvik- myndir samtímans. Sigríður nú- tímans hefur sterkar pólitískar skoðanir, en hún hefur gleymt að spyrja sig á þessari leið hvað hún sjálf vill.“ Sigríður lendir í ástarsam- bandi við mann í Hafnarfirði, en svo tengist líf Sigríðar fortíðar- innar og Sigríðar nútíðarinnar smátt og smátt meira saman, eftir því sem Sigríður nútímans sekkur meira inn í sögu þeirrar eldri. Sig- ríður nútímans er 39 ára þegar hún vinnur að þessari heimildar- öflun, en Sigríður 19. aldar var 39 ára þegar hún dó úr sulti eftir að hafa alið tvíburana. Sigríður nútímans kemst að því í gagnaöflun sinni að vandamál kvenna eru svipuð nú og þá, og mörg þeirra standa ennþá óleyst, eins og erfiðleikar við barneignir og erfiðleikarnir sem felast í því að reyna að njóta lífsins samfara því að vinna hörðum höndum. Þetta leiðir sögumann í spurning- ar um tilgang lífsins. „Það eru dá- lítið guðfræðilegar hugleiðingar,“ segir Oddný. „Ég flétti inn í sög- una svipmyndum úr bókinni Ör- lagabrúin eftir Thornton Wilder, en hann setti fram þá kenningu að tilgang lífsins mæti lesa í mynstri veggteppis. Ef maður horfði réttu megin á veggteppið sæi maður bara mynstur, en ef það er horft röngu megin þá sést hvernig al- heimsverkið er gert, úr þráðum sem eru ýmist langir eða stuttir, hlykkjóttir eða breiðir. Eins og mismunandi æviskeið manna. Öll þurfum við að leggja okkar af mörkum til þess að halda uppi þessu veggteppi.“ Tími sem ekki má gleymast „Ég hef verið að vinna að þess- ari bók í 2 ár,“ segir Oddný. „En ég er í 100% vinnu annars staðar. Bókin hefur verið að vinnast í ró- legheitum.“ Oddný hefur áður skrifað um formæður sínar, en bók hennar Kínverskir skuggar, sem kom út 1997, fjallar um ömmu hennar, Oddnýju Erlends- dóttur Sen. Sigríður Jóhannes- dóttir Hansen var amma hennar, en móðirin var María, dóttir Sig- ríðar. Hún ólst upp hjá föður sín- um eftir skilnað þeirra Sigríðar. „María var mikil ævintýrakona,“ segir Oddný. Það virðist því vera einhver hvöt að baki sem ræður því að Oddný Sen ákveður að skrifa um formæður sínar, síendurtekið. „Mér finnst alltaf gaman að skrá- setja og safna heimildum um fólk úr fortíðinni, til þess að það fólk gleymist ekki. Þá liggur beint við að leita til formæðranna. Þetta eru allt konur sem varpa ljósi á ákveðinn tíma sem ég vil ekki að gleymist.“ gs@frettabladid.is 20 14. desember 2003 SUNNUDAGUR Mér finnst alltaf gaman að skrásetja og safna heimildum um fólk úr fortíðinni, til þess að það fólk gleymist ekki. Þá liggur beint við að leita til for- mæðranna. Þetta eru allt konur sem varpa ljósi á ákveðinn tíma sem ég vil ekki að gleymist. ,, Gull-úrið Axel Eiríksson úrsmíðameistari Álfabakka 16 Sími 587 4100 MJÓDDINNI 1902 – 2002 Falleg og björt kvennúr Sirkon, steinar og eðalstál Verð kr. 17.600 – 17.900 Poppdrottningin í nýju hlutverki: Madonna les og les Poppdrottningin Madonna hefurfundið sig ágætlega í hinu nýja hlutverki barnabókahöfundar og gerir nú víðreist og les fyrir börn úr bókum sínum. Í liðinni viku var hún í Los Angeles og las fyrir börn í bókaverslununum. Bæk- urnar eru núna orðnar tvær á skömmum tíma, fyrst komu Ensku rósirnar og síðan Eplin hans Peabodys. Báðar eru komnar út í íslenskri þýðingu Silju Aðal- steinsdóttur og seljast ágætlega um heim allan, en Madonna hefur boðað að bækurnar verði fleiri. ■ MADONNA Las fyrir börn í Los Angeles í liðinni viku. Oddný Sen hefur sent frá sér nýja skáldsögu, ástar- og örlagasöguna Vængjuð spor. Bókin er seint á ferðinni, en hún kom í búðir í lok þessarar viku. Oddný er á svipuðum slóðum og í bók sinni Kínverskir skuggar, sem kom út 1997. Skrifar um formæður sínar ODDNÝ SEN Heldur uppteknum hætti og skrifar um formæður sínar. Áður hefur hún skrifað um ömmu sína, Oddnýju Erlendsdóttur Sen, í Kínversk- um skuggum. Nú beinir hún sjónum sínum að ömmu hennar og langalangömmu sinni, Sigríði Jóhannesdóttir Hansen. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Ný rannsókn : Kaffi veldur ekki gigt Ný viðamikil rannsókn í Banda-ríkjunum hefur leitt í ljós að mikil kaffidrykkja virðist ekki auka líkurnar á því að konur fái liðagigt. Þessi niðurstaða er í and- stöðu við aðrar niðurstöður sem hafa þótt benda til samhengis milli kaffidrykkju og liðagigtar kvenna. Rannsökuð var kaffidrykkja yfir 80 þúsund kvenna í yfir 20 ár. Nið- urstaðan var sú að jafnvel óhófleg kaffidrykkja virðist ekki leiða til gigtar. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.