Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 23
staklingum með skítkasti: „Þá
hefur þú fyrst tapað málflutn-
ingi þegar þú ræðst á andstæð-
ing þinn. Reyndu að stilla þig og
reiðast ekki. Ef andstæðingur
þinn reiðist og segir ósæmileg
orð þá hefur hann tapað slagn-
um“. Og sannarlega leið mér
ekki illa undir orðum Garðars
Sverrissonar. Ég vissi að hann
gekk of langt. Ég vissi að þessi
orð sæmdu honum ekki við þess-
ar aðstæður. Garðar Sverrisson
er öflugur baráttumaður en
hann þarf að gæta meira hófs.“
Trúin hjálpar
Það viðurkenna allir að þú
sért skemmtilegur. En stundum
er talað meira um þig sem
skemmtikraft en þungavigtar-
stjórnmálamann.
„Pólitíkin hefur á sér svo
margar hliðar. Ég hef engar
áhyggjur af þessari umræðu.
Menn bjuggust ekki við miklu af
mér þegar ég varð ráðherra og
höfðu um mig alls kyns ummæli,
að ég væri gamaldags, jafnvel
fornaldarmaður, og þess vegna
leiðinlegur. Svo vegnaði mér
þokkalega, reyndar það vel að
ári síðar hlaut ég yfirburða-
kosningu sem varaformaður
Framsóknarflokksins, ekki síst
vegna þess að ég kom með
margt nýtt í umræðu um land-
búnaðarmál sem hefur breytt
ásýnd sveitanna. Svo var farið
að halda því fram að ég væri
skemmtilegur og vinsæll ráð-
herra, en ég dæmi ekki um það.
Þá brást Samfylkingin við með
því að halda því fram að ég
eyddi mestum tíma á þorrablót-
um og hestamannamótum og
væri skemmtikraftur en ekki al-
vöru stjórnmálamaður. Ég skal
viðurkenna að ég hef gaman af
að vera meðal fólksins í landinu
og á skemmtilegum samkomum.
Ég tek störf mín mjög alvarlega
en leyfi mér líka að gera að
gamni mínu. Sá maður sem leyf-
ir sér að vera frjáls og lætur
húmorinn leika um störf sín á
yfirleitt góð samskipti við þá
menn sem hann hittir.“
Þú talar mjög formfagra ís-
lensku og þaðan er ekki löng leið
yfir í ljóðformið. Yrkirðu?
„Ég er sem betur fer ekki
hagyrðingur því ég hefði
ábyggilega misnotað þann hæfi-
leika hefði mér verið gefinn
hann. Það er mikilvægt að fara
vel með gáfur sínar. En því er
ekki að leyna að stundum sest
ég niður og raða saman orðum
fyrir mig og fjölskyldu mína.
Það eru bæði ljóð og sögur.“
Guðni hefur ekki áhuga á að
birta skáldskap sinn opinber-
lega, segir hann eingöngu vera
fyrir sig og sína. „Ég vil ekki
hafa þetta með öðrum hætti sem
stendur,“ segir hann. Hann hyg-
gst lesa þó nokkuð af jólabókun-
um og er núna að lesa Bettý eft-
ir Arnald Indriðason og segist
vera mikill aðdáandi höfundar-
ins. Meðal annarra bóka á lestr-
arlistanum er ævisaga Hannes-
ar Hólmsteins um Halldór Lax-
ness. „Ég hlakka til að lesa hana
og mér sýnist af því sem ég hef
heyrt í fjölmiðlum að Hannes
hafi vandað mjög til þess verks.
Ég ætla einnig að lesa seinna
bindi ævisögu Jóns Sigurðsson-
ar eftir Guðjón Friðriksson.
Guðjón hefur í ævisögum sínum
tekið fyrir hina sterku einstak-
linga þessa þjóðfélags og opnar
viðkomandi persónur fyrir
manni. Ég hef gaman af því.“
Jólin minna mann ekki bara á
bækur heldur líka á Guð og
trúna. Ertu trúaður maður ?
„Já, og trúin hefur hjálpað
mér. Maður var vaninn við það
sem barn að signa sig og fara
með bænir fyrir svefninn. Mað-
ur býr að þessari gömlu barna-
trú. Trúin hjálpar, friðar sam-
viskuna og gerir okkur hógvær-
ari og gefur okkur von í lífinu.“
kolla@frettabladid.is
SUNNUDAGUR 14. desember 2003
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
24.940 kr.Ver› frá*
Sumarhúsaeigendur á Spáni!
Beint leiguflug til Alicante.
Ver›-
lækkun
á sumar
og sól
Sala hefst á Netinu í dag á ód‡ru sumarfargjöldunum til
Alicante. A›eins 200 sæti í bo›i.
Flugdagar eru: 2., 15. og 25. apríl, 19. maí og sí›an alla
mi›vikudaga í sumar. Flogi› er í beinu leiguflugi me›
Icelandair í morgunflugi.
Muni› a› hjá Plúsfer›um er unnt a› grei›a 5.000 kr.
me› Atlasávísunum og VR ávísunum a› eigin vild
og lækka fer›akostna›inn.
www.plusferdir.is
N E T
á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn ferðist saman.
Gildir í ferðir frá 15. apríl til 15. október. Ef einn ferðast, 25.330 kr.
22.730 kr.
*Verð miðast við að bókað sé á Netinu, sé bókað með öðrum
leiðum bætast við þjónustugjöld á hverja bókun.
á mann m. v. að tveir ferðist saman.
25. apríl - 50 sæti í boði.
NetPlús er eingöngu bókanlegur á Netinu.
Al
ic
an
te
GUÐNI ÁGÚSTSSON
„Það eru ósanngjarnar ásakanir stjórnarandstöðu að við séum undir hælnum á Sjálfstæðisflokknum. Við erum frjálsir í þessu samstarfi,
við höfum valið okkur það og höfum aldrei viljað sleppa þeim ráðherraembættum sem hafa skapað mest í samstarfinu. Við reyndum
það ekki 1999 og við reyndum það ekki nú í vor. Við framsóknarmenn erum tilbúnir til að taka á okkur mikla erfiðleika til að halda
áfram þessu sóknarstarfi fyrir íslenska þjóð.“
Mér fannst að Sam-
fylkingunni væri að
takast að ljúga því að þjóð-
inni að hér ríkti eintómur
djöfulsskapur í garð öryrkja,
ekkert nema eilífar skerð-
ingar og svik. Mér ofbauð
þegar ég sá hinn öfluga bar-
áttumann Garðar Sverrisson
halda því einnig fram að
fjárlögin væru fjárlög skerð-
inga og svika. Þá gekk ég
fram með sterkum hætti og
greip til setningar sem var
stundum notuð á mig þegar
ég var unglingur og fór mik-
inn.
,,