Fréttablaðið - 14.12.2003, Page 24
24 14. desember 2003 SUNNUDAGUR
Jólin eru hátíð ljóss og friðar og ... spila.
Aðventuspil
Fréttablaðsins
Fréttablaðið býður lesendum sínum upp á heimasmíðað spil. Þetta er dæmigert
teningaspil, líkt og hið sígilda slönguspil. Það eina sem þarf er teningur og einhver
smáhlutur sem gefur til kynna hvar hver og einn er staddur. Leikmenn eru í hlut-
verki miðaldra karlmanns og lenda sem slíkir í ýmsum hremmingum sem árstíð-
inni fylgja. Markmiðið er að lifa af það amstur sem fylgir jólum og áramótum.
Þetta er eitt fárra spila sem menn geta einnig lesið sér til ánægju.
1. desember
Þú drífur þig á 1. desemberhátíð í
Háskólabíói. Klæðir þig upp en áttar
þig á því þegar þangað er komið að
þar er enginn maður með viti sem
ekki fær beinlínis borgað fyrir að vera
þar. Þér líður eins og eilífðarstúdent
úr sagnfræðinni og situr hjá eina um-
ferð.
2. desem
Þið félagarnir í Lion
stóru blokkinni í As
þar perur í góðgerð
stæðinu gangið þið
Kiwanismönnum h
um. Eftir háðsglósu
mál og löggan skak
lagarnir eruð áminn
fyrir að sverta ímyn
aftur á byrjunarreit
14. desember
Þú ferð í bókabúð Máls og menningar
að kaupa jólagjafirnar handa fjarskyld-
um og hrúgar á þig gömlum reyfurum
eftir MacLean og Bagley. Þá rekstu á
skólasystur þína sem þú varst skotinn
í og fór í bókmenntafræði, losar þig
snöggt við reyfarana og kaupir ís-
lenska stílfræði og Tvílýsi eftir Thor Vil-
hjálmsson í staðinn. Hleypur síðan
niður í Eymundsson, skiptir bókunum
aftur í reyfara og tefst eina umferð.
13. desember
Sonur þinn sex ára sýnir þér óskalist-
ann sinn og þú stendur frammi fyrir
tveimur kostum: Að eyðileggja jólin
fyrir stráknum þannig að hann neiti
að fara í skólann með ömurlegar
fréttir af nánasarskap foreldra sinna.
Eða halda hátíð að skapi barnanna og
lýsa þig gjaldþrota strax eftir jól. Þú
finnur enga málamiðlun og situr hjá
eina umferð.
12. desember
Þú vaknar timbraður og fullur sam-
viskubits sestu við að skrifa langan
tossalista um allt sem þarf að laga,
bæta, kaupa og ákveða fyrir jólin. Um
kvöldið skrifar þú jólakort og konan
þín spilar jólaplötu með Ellý Vilhjálms
þrisvar af einskærri ánægju með sinn
góða mann. Farðu fram um þrjá reiti.
11. desember
Þú hittir gamlan skólafélaga og þið
farið á krá. Hann er nýorðinn doktor
í stjarneðlisfræði og þið eigið ekkert
sameiginlegt lengur nema gömlu
skólasystkinin. Á fjórðu kollu sérðu
að flestum hefur gengið vel, þú
verður beiskur og heldur því fram að
stjarneðlisfræði séu gervivísindi og
doktorsnafnbótin hjóm sem enginn
taki mark á. Aftur um tvo reiti.
10. desem
Þið hjónin eruð boðin
vinkonu eiginkonunna
nýtekin saman við þur
býður ekki upp á neitt
óáfengt jólaglögg úr h
Þér leiðist og situr hjá
einn úti í horni.
15. desember
Þú ferð á jólaskemmtun í skóla dóttur
þinnar, hrósar öllu föndrinu, sofnar
ekki undir söngnum né leikritinu og
stendur þig í alla staði vel. Þar til þú
lendir á kjaftatörn við einn pabbann
upp við töflu, vilt leggja áherslu á orð
þín og þurrkar óvart út jesúbarnið
með erminni á jakkanum þínum.
Farðu aftur um þrjá reiti.
16. desember
Þú sérð mynd og viðtal við fyrrverandi
konuna þína í jólablaði Moggans og
kemst að því að hún er orðin græn-
metisæta og ætlar að hafa ofnbakaða
baunakássu í jólamatinn. Og hún
mótar kássuna fyrir börnin þannig að
hún líti út eins og gæs. Þú prísar þig
sælan yfir því að hún skildi við þig og
færð eitt aukakast.
17. desember
Þér er boðið í árlegt jólapartí til Guð-
mundar Árna í Hafnarfjörðinn. Húsið er
orðið fullt og þú festist í fatahenginu
því Ingvar Viktorsson heilsar þér með
virktum, en réttir þér svo frakkann þinn
og hinir gestirnir fylgja fordæmi hans.
Þú kemst við illan leik inn í eldhús þar
sem þú slærð í gegn meðal kvennanna
með því að vera sá eini sem er búinn
að lesa Lindu og Rutharbókina og fær-
ist fram um þrjá reiti.
18. desember
Til að skrúfa niður í jólamaníu sonar
þíns ferð þú með hann í Þjóðminja-
safnið að sjá íslenskan jólasvein í
lopapeysu fara með íslenska fyndni.
Þetta fer á annan veg en þú ætlaðir,
hann bítur í sig að halda alíslensk jól
með heimatilbúnu jólatré, kvöldvök-
um, kertum og spilum. Þú sérð fram
á hörkuvinnu við að láta hann sætta
sig við rauðu jólasveinana og græn
tré. Farðu aftur um tvo reiti.
30. desember
Þú heyrir frétt um skattaafslátt vegna
hlutabréfakaupa og rýkur upp í Kaup-
þing þar sem þér er sagt að öll bréf
séu búin nema hlutdeildarskírteini í
Íslenskri erfðagreiningu. Þú kaupir fyr-
ir tvö hundruð þúsund en heyrir í
fréttum á leiðinni heim að aukaverk-
anir nýrrar parkinson-pillu frá fyrirtæk-
inu séu með þeim hætti að konum
vaxi skegg. Farðu aftur um þrjá reiti.
29. desember
Þú kemur seint heim úr vinnu og
stelst til að fljúga fjarstýrðu flugvélinni
sem þú gafst syni þínum í jólagjöf. Þú
missir stjórn og sérð á eftir vélinni út
um gluggann. Þú leitar hennar lengi
nætur og sérð loks grilla í hana á
svölunum hjá formanni húsfélagsins
sem fór með fjölskylduna til Kanarí
og kemur ekki aftur fyrr en um miðj-
an janúar. Bíddu í þrjár umferðir.
28. desember
Blaðamaður frá DV hringir í þig og
biður þig að minnast þess markverð-
asta á árinu. Þú færist allur í aukana,
talar eitthvað um frið fyrir botni Mið-
jarðarhafs og vanmátt Sameinuðu
þjóðanna. Blaðamaður spyr þig þá
hvort þú sért ekki örugglega Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra?
Viðvarandi misskilngur því þú ert
Guðni Ágústsson, formaður félags
eigenda íslenska fjárhundsins. Þú
lýsir skoðunum þínum á DV og
óvandvirkni blaðamanna. Bíddu eina
umferð.
27. de
Um morguni
inn sem kon
rekst á mann
nákvæmlega
grunsemdum
loks hendirðu
þeim orðum
um að ganga
mark um hál
legur inni í st
missir af einn
31. desember
Undir miðnætti neitar sonur þinn að
koma út og skjóta upp 20 þúsund
króna fjölskyldupakkanum og kýs
fremur að hlusta á ávarp Markúsar
Arnar í sjónvarpinu. Þú setur þér það
áramótaheit að láta barnið annað
hvort skipta um skóla eða fara með
hann til sálfræðings. Farðu fram um
einn reit.
1. janúar
Þið hjónin farið á áramótaball í
Perlunni án þess að hafa efni á því.
Enginn ræðir við ykkur nema Snorri
Ásmundsson, sem greinilega er kom-
inn í kosningaham. Þið finnið hvað
þið eigið lítið undir ykkur. Þú rekst á
forstjóra þinn sem horfir á þig eins
og þú sért að kássast upp á hans
kellu, þér væri nær að fagna áramót-
unum með þínum líkum – jafnvel á
Ölveri. Aftur um þrjá reiti.
2. janúar
Þú ert að reykja inni á baðherbergi
svo konan standi þig ekki að því að
brjóta áramótaheitið. Þegar þú hendir
stubbnum í klósettið og sturtar niður
vill hann ekki sökkva. Filterinn flýtur
enn. Þegar þú reynir í fimmta sinn
kallar konan og spyr hvað gangi á? Þú
ákveður að kaupa filterlausan Camel,
heldur áfram að sturta og tefst um
eina umferð.
BYRJA