Fréttablaðið - 14.12.2003, Síða 27
27SUNNUDAGUR 14. desember 2003
Hver er maðurinn?
Hann er mikill gleðigjafi á góð-um stundum. Þægilegur í sam-
starfi. Hefur lítið fyrir því að gera
góða hluti og bjarga sér út úr vanda-
sömum aðstæðum. Góður og traust-
ur vinur, borðar mikið, elskar það
líkt og sjá má á hans glæsilega út-
liti,“ segir sjálfur Hemmi Gunn um
manninn sem um er spurt. Þeir hafa
haft ýmislegt saman að sælda í
gegnum tíðina líkt og reyndar á við
um margan manninn sem Hemmi
þekkir.
„Hann er mjög áræðinn og kald-
ur. Nánast til í hvað sem er. Kemur
oft með góðar hugmyndir og hefur
fullan vilja til að framkvæma þær
þó hugmyndirnar séu að mati
flestra annarra gersamlega ófram-
kvæmanlegar. Síkátur og skemmti-
legur og liggur ekki á skoðunum
sínum líki honum ekki hvernig að
málum er staðið. Stendur þá fátt eitt
í vegi,“ segir Ingvar Viktorsson,
fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði,
sem hefur haft sitthvað af mannin-
um að segja. Það á einnig við um
Hjört Howser tónlistarmann sem
dregur síðustu pensildrættina í þá
mynd sem hér er teiknuð: „Hann
segir öðrum mönnum betur frá, frá-
bær sögumaður, kannski fyrst og
fremst vegna þess hversu óhrædd-
ur hann er við að ýkja. Mjög traust-
ur vinur og á til að vera þrjóskari en
andskotinn ef hann bítur eitthvað í
sig. Þó hann sé mikill diplómat dags
daglega er ómögulegt að þoka hon-
um þegar hann hefur tekið ákvörð-
un.“
Og nú er spurt: Hver er maður-
inn? Svar á blaðsíðu 30.
ÞRJÓSKUR
Hugmyndaríkur matgæðingur sem liggur ekki á skoðunum sínum.
Síkátur sögumaður
STEFÁN JÓNSSON
Sló í gegn með Kvetch og er núna kominn
í það sem hann kallar gargandi klassík.
Leikfélag Reykjavíkur –
Sporvagninn Girnd
Kjöt á
bein-
unum
Þetta er þungavigt. Frábærtleikrit og gargandi klassík,“
segir Stefán Jónsson, sem leik-
stýrir jólasýningu Borgarleik-
hússins sem er Sporvagninn
Girnd eftir Tennessee Williams.
Stefán, sem sló í gegn sem leik-
stjóri með sýningunni Kvetch,
hefur fengið ársleyfi frá Þjóðleik-
húsinu til að stýra Nýja sviði
Borgarleikhússins og er þetta
fyrsta verkefni hans af fjórum
þar. Þar verður Sporvagninn
frumsýndur 27. desember. Sigrún
Edda Björnsdóttir leikur Blanche
en aðrir leikarar eru Björn Ingi
Hilmarsson Stanley, Harpa Arn-
ardóttir, Pétur Einarsson, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir og Þór
Tuliníius.
„Þegar maður er að vinna við
uppsetningu Sporvagnsins upp-
götvar maður af hverju leikrit
verður sígilt. Þarna er kjöt á bein-
unum sem má kjammsa á. Þetta er
gríðarleg dramatík og Blanche,
aðalpersónan, er á hverfanda
hveli. Manneskja sem er að berj-
ast fyrir tilveru sinni og að halda
lífi í sálinni.“
Margir kannast við kvikmynd-
ina sem byggir á leikritinu en þar
eru Marlon Brando og Vivien
Leigh í aðalhlutverkum. Stefán
segir leikhóp sinn fara allt aðra
leið. „Það verður engin New Or-
leans svitalykt af leikurunum.
Þetta er er ekki períódusýning
heldur tökum við þetta nær okkur
í tíma. Enda er það einkenni
sígildra verka að hefja sig yfir rit-
unartíma sinn. Þetta gæti allt eins
verið að gerast á Íslandi.“ ■
SIGRÚN EDDA BJÖRNSDÓTTIR
Fer með eina af draumarullum hverrar
leikkonu, Blanche í Sporvagninum Girnd,
og fylgir þar í fótspor Vivien Leigh.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M