Fréttablaðið - 14.12.2003, Side 32
Blaðauki Fréttablaðsins um undirbúning jólanna
jólin koma
Jólabókafló
ðið
er í Office 1
!
SKEIFUNNI
SMÁRALIND
AKUREYRI
EKKI BARA SUMAR
10ÞÞriðji sunnudagur í aðventu. Daginn ídag er gott að nota til að íhuga jólaboð-skapinn, rækta sína nánustu og hugsa tilvina og ættingja með því að skrifa þeimjólakveðju. Fjölskyldusamvera yfir aðventuljósun-um og kakóbolla og smákökum er tilvalin einhverntíma dagsins, meðan veðrið hamast úti fyrir.
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: jol@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Bragi Skaftason
Þinglok.
Hvað kemur þér
í jólaskap?
Mörkinni 3 • s: 588 0640
Opið mán.- föst. kl. 11 til 18
laugard. kl. 11 - 15
www.casa.is
Frábærar jólagjafir
Desember hjá sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur:
Leitum öll að ljósinu
Boðskapur jólanna styrkir okk-ur í trúnni á það góða í líf-
inu,“ segir sr. Guðný Hallgríms-
dóttir, prestur fatlaðra. Hún tek-
ur þó fram að undirbúningur jól-
anna sé mörgum erfiður, einkum
þeim sem hafi nýlega upplifað
sorg vegna ástvinamissis, heilsu-
tjóns eða skilnaðar. „Aðventan
kemur óhjákvæmilega róti á til-
finningar okkar. Myrkrið úti,
jólaljósin og hugsunin um þá há-
tíð sem í hönd fer gerir okkur
meyrari en ella. Það er ofur eðli-
legur hlutur. En við eigum að
leyfa okkur að gráta ef við höfum
þörf fyrir því tárin lauga sárin og
eftir grátinn á gleðin greiðari að-
gang að hjörtum okkar,“ segir
hún sannfærandi.
Starf Guðnýjar hefur frá 1990
að miklu leyti snúist um þjónustu
meðal fólks með þroskahömlun.
Hún kveðst hafa undirbúið sig
með sérhæfðu námi á sínum
tíma, bæði í guðfræðideild Há-
skólans og erlendis. Þó hafi hún
mest lært af reynslunni. „Besti
skólinn er lífið sjálft og þar er
grundvallaratriði að reyna að
mæta náunganum þar sem hann
er. Ef ég er í vanda stödd og veit
ekki hvað ég á að gera þá spyr ég
mig oft: Hvað hefði Kristur gert í
þessum aðstæðum?“
Nú á aðventunni hefur Guðný
haldið aðventustundir með fötl-
uðum, farið á verndaða vinnu-
staði og heimsótt sambýli og eins
og hjá öðrum prestum snýst líf
hennar mikið um sálgæslu á
þessum árstíma. „Þeir sem eru
sjúkir eða einmana finna oft
meira fyrir því á aðventunni en í
annan tíma. Það eiga ekki allir
fjölskyldu og það finna ekki allir
þann frið og þá gleði sem jólun-
um á að fylgja. En það er starf
okkar prestanna að leiða fólk í
gegnum dimma dali hugans og
leita með því að ljósinu. Þetta
gerir líka hver maður á sinn hátt
sem tekur á móti þeim gleðiboð-
skap sem jólin eru.“ ■
FALLEG STUND Í KIRKJUNNI
Sr. Guðný uppfræðir börn fyrir fermingu og fer vikulega í skólana en einu sinni í mánuði í kirkju og hér er hún í Langholtskirkju.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A