Fréttablaðið - 14.12.2003, Qupperneq 42
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 Síðasta kvikmyndasýning
MÍR á þessu ári verður í bíósalnum
Vatnsstíg. Þá verður sýnd kvikmyndin
“Frosti”, litrík mynd fyrir börn og full-
orðna, gerð í Moskvu á árinu 1964 og
byggð á vinsælu rússnesku ævintýri.
Leikstjóri Alexander Row. Enskur texti.
Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR
er ókeypis og allir velkomnir.
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 KaSa hópurinn leikur sígild-
ar perlur og spilar með Skólakór Kárs-
nesskóla á sannkölluðum jólatónleik-
um fyrir alla fjölskylduna í Salnum í
Kópavogi.
17.00 Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar áhugamanna á aðventu verða
haldnir í Seltjarnarneskirkju. Frumflutt-
ur verður Búlgarskur dans, nýtt verk eftir
Pavel Smid. Einnig leikur Peter Maté
einleik í 1. píanókonsert Sjostakovich.
Tónleikarnir enda á almennum söng við
undirleik hljómsveitarinnar. Stjórnandi er
Ingvar Jónasson.
17.00 Á aðventutónleikum Kórs
Neskirkju koma fram einsöngvarnir
Inga J. Bachman sópran, Kristín Krist-
jánsdóttir sópran, Gísli Magnason tenór
og Örlygur Benediktsson bassi. Einnig
syngur nýstofnaður kór kirkjunnar
“Pange lingua”. Orgelleikari verður Kári
Þormar og einleikari á flautu Pamela De
Sensi. Stjórnandi er Steingrímur Þór-
hallsson. Hugvekju flytur sr. Örn Bárður
Jónsson. Aðgangur er ókeypis
20.00 Karlakór Reykjavíkur
heldur jólatónleika í Hallgríms-
kirkju ásamt Gunnari Guð-
björnssyni tenór og Drengja-
kór Neskirkju. Stjórnandi er
Friðrik S. Friðriksson. Hörður
Áskelsson og Lenka Máteóvá
leika á orgel. Ásgeir H.
Steingrímsson og Eiríkur
Örn Pálsson leika á
trompet.
20.00 KaSa hópurinn leikur sígild-
ar perlur og spilar með Skólakór Kárs-
nesskóla á sannkölluðum jólatónleik-
um fyrir alla fjölskylduna í Salnum í
Kópavogi.
20.00 Kvennakór Suðurnesja og
Karlakór Keflavíkur halda sameiginlega
aðventutónleika í Grindavíkurkirkju.
21.30 Útgáfutón-
leikar á Gauki á Stöng
vegna útgáfu disksins
Verndum hálendið.
Fram koma Jóhann G.
Jóhannsson, Jóhann
Helgason, Eyvindur P.
Eiríksson, JFM, XXX
Rottweiler, Kristján
Hreinsson, Sigvarður Ari og „The
Highland Punktry Rangers” (Michael
Pollock, Ester Ásgeirsdóttir og Þórdís
Claessen).
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikhópurinn Á senunni flyt-
ur Ævintýrið um Augastein, nýtt barna-
leikrit eftir Felix Bergsson, í Tjarnarbíói.
14.00 Litli leikklúbburinn á Ísafirði
sýnir Jóladraum – jólafjölskylduleik-
sýningu á Sundhallar-
loftinu á Ísafirði.
14.00 Lína
Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á Stóra sviði
Borgarleikhússins.
14.00 Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins.
15.00 Möguleikhúsið sýnir jóla-
leikritið “Jólarósir Snuðru og Tuðru”
eftir Iðunni Steinsdóttur í Kringlusafni
Borgarbókasafns Reykjavíkur. Aðgangur
ókeypis. Allir velkomnir.
20.00 Inclusive Dance Company
frá Noregi verður með gestasýningu í
Borgarleikhúsinu sem nefnist Sauna
Under My Skin.
20.00 Tenórinn eftir Guðmund
Ólafsson í Iðnó.
■ ■ LISTOPNANIR
14.00 Sýning á verkum dönsku
myndlistar- og uppfinningamennirnir
Ebbe Dam Meinild og Palle Brage, sem
kalla sig Parfyme, verður opnuð í dag í
GUK+ á Selfossi og á Akureyri. Jafnframt
verður sama sýning opnuð í Bremen í
Þýskalandi. Fyrri hluti opnunarinnar var
um síðustu helgi þegar hún var opnuð í
Lejre í Danmörku. Sýningin stendur til
29. febrúar og er opin eftir samkomu-
lagi. Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
■ ■ SKEMMTANIR
20.30 Borgardætur leika nokkrar
af sínum uppáhaldsperlum fyrir gesti
Café Aroma.
■ ■ SAMKOMUR
16.00 Bragi Þórðarson, Gyrðir Elí-
asson, Jón Kalman Stefánsson, Ævar
Örn Jósepsson og Kristján Kristjáns-
son lesa úr nýjum bókum í Listasetrinu
Kirkjuhvoli á Akranesi. Boðið verður
upp á piparkökur og kaffi.
■ ■ SÝNINGAR
13.00 Jólasýning Árbæjarsafnsins
er í dag milli 13-17. Gestum gefst tæki-
færi til að fylgjast með undirbúningi jól-
anna eins og hann var í gamla daga,
hitta hrekkjótta jólasveina, föndra og
syngja jólalög með börnunum.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Sýningu Melkorku Þ. Huldudóttur í
Kling & Bang galleríi, Laugavegi 23, lýk-
ur í dag.
Sýningu Maríu Elisabethar
Wechner í sýningarsal Íslenskrar Grafík-
ur í Hafnarhúsinu lýkur í dag.
Sýningu á ljósmyndum Þórarins
Óskars Þórarinssonar í Listasafni ASÍ
lýkur í dag. Heiti sýningarinnar er
“Þórarinn Óskar og hyski hans”.
■ ■ SÝNINGAR
Í Gerðarsafni í Kópavogi hefur verið
opnuð sýningin Carnegie Art Award
2004, þar sem sýnd eru verk eftir 24 af
helstu listamönnum Norðurlanda. Sýn-
ingin stendur til 22. febrúar. Gerðarsafn
er opið 11-17 alla daga nema mánu-
daga.
Opnuð hefur verið í Nýlistasafninu
sýning í tilefni af 25 ára afmæli safns-
ins. Á sýningunni eru verk eftir nokkra af
félögum safnsins og ýmislegt sem end-
urspeglar sögu starfseminnar.
Raunsæi og veruleiki – Íslensk
myndlist 1960-1980 er heiti sýningar
sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands.
Sýningin er sú langstærsta sem haldin
hefur verið um þetta róttæka tímabil í
íslenskri listasögu. Safnið er opið alla
daga frá 11-17 nema mánudaga. Sýn-
ingin stendur til 9. janúar 2004
Auk verka úr safneigninni standa nú
yfir þrjár sérsýningar í Safni, Laugavegi
37: Nýjar teiknimyndir eftir Lawrence
Weiner, Litir eftir Adam Barker-Mill og
kynning á verkum frá ferli listamannsins
Hreins Friðfinnssonar.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir sýning á
ljósmyndum Ólafs Magnússonar, sem
var hirðljósmyndari dönsku konungsfjöl-
skyldunnar á Íslandi. Þar er einnig
þemasýning úr verkum Errós í eigu
safnsins. Henni lýkur 3. janúar.
Í Listasafninu á Akureyri standa yfir
tvær sýningar. Blómrof nefnist sýning á
málverkum Eggerts Péturssonar í aust-
ur- og miðsal safnsins. Í vestursal sýnir
Aaron Michel innsetningu á skúlptúrum
og teikningum sem hann kallar Minn-
ingar og heimildasöfn.
Egill Sæbjörnsson er með sýning-
una „Í garðinum“ í Gallerí Hlemmi. Þar
sýnir hann myndbands- og tónverk auk
ljósmynda og teikninga sem ekki hafa
verið sýnd áður.
Sjö listakonur verða með opið hús
klukkan 13-18 í dag í Skruggusteini,
Auðbrekku 4, Kópavogi, þar sem þær
reka saman vinnustofu. Listakonurnar eru
þær Halla Ásgeirsdóttir, Auðbjörg Berg-
sveinsdóttir, Olga Dagmar Erlendsdóttir,
Kolbrún Sigurðardóttir (Kolsi), Hjördis
Mörtudóttir, Guðný Hafsteinsdóttir og
Halldóra Árnadóttir, saman vinnustofuna
Skruggustein.
Rúna K. Tetzschner
sýnir myndskreytingar
við skrautskrifuð ljóð á
Horninu, Hafnarstræti
15. Sýningin er í minn-
ingu Þorgeirs Rúnars
Kjartanssonar (1955-
1998).
Benedikt Lafleur hefur opnað sýn-
inguna Nýja landmótskenningin í Húsi
málaranna, Eiðistorgi. Þór Magnús
Kapor er á sama stað með sýninguna
Annað föðurland Ísland.
Guðbjörg Lind er með málverkasýn-
ingu í gallerínu og skartgripaversluninni
Hún og hún, Skólavörðustíg 17b.
Fyrrum myndlistarmaðurinn Bjarni
Massi er með sýning í Nonnabúð á
Smiðjustíg.
Í tilefni 140 ára afmælis Þjóðminja-
safnsins hefur verið opnuð sýning í risi
Þjóðmenningarhússins.
Þorkell Þórisson sýnir yfir 50 olíu-
og akrílmyndir í nýju gallerí að Tryggva-
götu 18 sem nefnist Gallerí T-18.
Ína Salóme sýnir textílverk í Listhúsi
Ófeigs við Skólavörðustíg. Sýningin
stendur til 30. desember og er opin á
verslunartíma.
Handverk og hönnun er með jóla-
sýninguna „Allir fá þá eitthvað fallegt“ í
Aðalstræti 12. Þetta er sölusýning þar
sem 33 aðilar sýna fjölbreytt íslenskt
handverk og listiðnað. Þetta er í fimmta
sinn sem Handverk og hönnun heldur
jólasýningu af þessu tagi.
Birna Smith sýnir olíumálverk á
striga í Gallerí Hnossi, Skólavörðustíg 3.
Einnig sýnir hún olíumálverk eftir sig í
sýningarsal Hans Petersen á Garðatorgi
í Garðabæ.
Nú stendur yfir sýning Péturs Pét-
urssonar á 11 málverkum hjá Val-
myndum í Ármúla 8. Þetta er þriðja
einkasýning Péturs og eru myndirnar all-
ar málaðar með akríllitum á striga. Sýn-
ingin er opin á opnunartíma Val-hús-
gagna og stendur yfir út desembermán-
uð.
Sigríður Pálsdóttir er með ljós-
myndasýningu á Kaffi Nauthól í Naut-
hólsvík. Sýningin heitir Mitt útsýni.
Jólasýning hefur verður opnuð í að-
alsal Hafnarborgar, sýning á 30 jóla-
skreytingum sem 300 fimm og sex ára
börn úr skóladeildum leikskóla í Hafnar-
firði, Garðabæ og Bessastaðahreppi
hafa útbúið og skreytt. Sýningin er opin
11-17 alla daga nema þriðjudaga og
henni lýkur 22. desember.
Sýning á málverkum eftir Braga Ás-
geirsson stendur yfir í forkirkju Hall-
grímskirkju. Bragi sýnir stór óhlutbund-
in olíuverk þar sem hann vinnur með
ljósið og þau birtuskil sem framundan
eru. Sýningin stendur til 25. febrúar
2004.
„Klippt og skorið“ nefnist myndlistar-
sýning, sem Örn Karlsson hefur opnað í
ReykjavíkurAkademíunni. Örn vinnur
mest með teikningar og samklipps-
myndir (collage) en einnig texta sem
hann beitir „orðaskurði“.
Þetta vilja börnin sjá! nefnist sýning
á myndskreytingum úr nýútkomnum ís-
lenskum barnabókum, sem nú er í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýningin er unnin í samvinnu við Fyrir-
mynd, Félag íslenskra myndskreyta, og
stendur til 11. janúar 2004.
Olga Lúsía Pálsdóttir hefur opnað
sýningu á grafískum verkum sínum í
Mokkakaffi að Skólavörðustíg 3a. Yfir-
skrift sýningarinnar er: „Stjörnuspeki í
augum Olgu Lúsíu“. Sýningin stendur til
10. janúar.
Ína Salóme er með sýningu á textíl-
verkum í Listhúsi Ófeigs við Skóla-
vörðustíg. Ína handmálar verk sín á
bómullarklæði. Sýningin stendur til 30.
desember og er opin á verslunartíma.
Á Café Borg í Kópavogi stendur yfir
á vegum Ritlistarhóps Kópavogs sýning
ljóða og ljóðmyndverka eftir Eyvind P.
Eiríksson. Sýningin er sú fjórða í röð
slíkra sýninga á vegum Ritlistarhópsins.
Hún stendur út desembermánuð.
Ljósmyndasýning stendur yfir á
Thorvaldsen í tilefni útgáfu ljósmynda-
ljóðabókar K.U.K.L. Ljósmyndirnar á sýn-
ingunni tók Jónatan Grétarsson. Signý
Kristinsdóttir og Silja Þorbjörnsdóttir
sömdu ljóðin. Sýningin stendur til 3 jan-
úar 2004.
Á Jólasýningu Norræna hússins
2003 sýna og selja tugir íslenskra lista-
manna, hönnuða og handverksmanna
verk sín.
Í Þjóðarbókhlöðunni standa nú yfir
þrjár sýningar: Smekkleysusýningin
Humar eða frægð, sýning um Land-
nemann mikla, Stephan G. Stephans-
son, og sýning um Óskar Ingimarsson,
sagnfræðing, þýðanda og þul.
Samlagið Listhús á Akureyri er
með jólasýningu á nýjum og nýlegum
verkum eftir félagsmenn.
Sýningin Jólatré bernsku minnar
stendur yfir í Punktinum, Listagilinu á
Akureyri. Sýnd eru tré sem voru gerð á
Íslandi fyrir tíma innfluttu jólatrjánna.
Ingvar Þorvaldsson sýnir vatnslita-
myndir á Café Milano og stendur sýn-
ingin til áramóta.
Á Café Prestó, Hlíðarsmára 15 í
Kópavogi, sýnir Helga Ottósdóttir
vatnslitamyndir. Sýningin verður opin
fram að áramótum á opnunartíma kaffi-
hússins.
Í Ásmundarsafni stendur yfir sýning-
in Ásmundur Sveinsson – Nútíma-
maðurinn. Þetta er yfirlitssýning haldin í
tilefni af 20 ára afmæli Ásmundarsafns.
Hún stendur til 20. maí.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
42 14. desember 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
11 12 13 14 15 16 17
DESEMBER
Sunnudagur Þ
etta fólk spilar eingöngu af
því að það er svo gaman að
spila, og það segja mér margir
að það skíni svolítið í gegn á tón-
leikum,“ segir Ingvar Jónasson,
stjórnandi og stofnandi Sin-
fóníuhljómsveitar áhugamanna,
greinilega stoltur af sínu fólki.
Í dag heldur hljómsveitin tón-
leika í Seltjarnarneskirkju
ásamt píanóleikaranum Peter
Maté. Á efnisskránni eru tvö
verk, Píanókonsert númer eitt
eftir Sjostakovitsj og Búlgarsk-
ur dans eftir Pavel Smid.
„Við köllum þetta jólatón-
leika þótt reyndar sé ákaflega
lítið jólalegt á þeim,“ segir Ingv-
ar. Peter Maté leikur einleik á
píanóið í Píanókonsertinum.
Auk þess leikur David Noote-
boom á trompet, sem er nánast
einleikshlutverk líka í þessu
verki því trompetið er eina
blásturshljóðfærið.
„Svo frumflytjum við verk
eftir ungan mann, Pavel Smid,
sem er Íslendingur en foreldr-
arnir reyndar frá Búlgaríu og
Tékklandi. Þau eru bæði org-
anistar hér á landi.“
Pavel Smid er við nám í
Boston í tónsmíðum og píanó-
leik. Þetta er fyrsta verkið sem
hann skrifar fyrir heila hljóm-
sveit, og hefur hann notið til
þess leiðsagnar frá kennurum
sínum ytra.
Tónleikarnir í Seltjarnarnes-
kirkju eru þriðju tónleikar
hljómsveitarinnar á þessu
starfsári, en alls verða þeir sjö
áður en vetri lýkur.
„Við höfum reynt að hafa ein-
leikara með okkur, ýmist viður-
kennda stórsólóista eins og Pet-
er Maté eða inni á milli ungt fólk
sem er annað hvort nýútskrifað
eða í þann veginn að útskrifast.“
Ingvar stofnaði Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna fyrir
fjórtán árum og hefur hún vaxið
jafnt og þétt allar götur síðan.
„Ég var nýkominn heim eftir
sautján ára búsetu í Svíþjóð og
hafði orð á því við Jón Nordal að
mér fyndist vanta áhugamanna-
hjómsveit hér. Þá vissi ég ekki
að aðrir áhugamenn höfðu nefnt
þetta líka við Jón og hann leiddi
okkur saman. Þetta var fámennt
lið í upphafi, en hljómsveitin
hefur þróast og þroskast í róleg-
heitum.“ ■
Áhuginn skín í gegn
STJÓRNANDINN OG EINLEIKARINN
Ingvar Jónasson stjórnandi og Peter Maté píanóleikari í Seltjarnarneskirkju, þar sem tón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna verða síðdegis í dag.
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON
Ef ég færi í langan sunnudags-bíltúr myndi ég vilja keyra
norður í Ólafsfjörð og athuga
hvort þar sé að finna snjó og fara
á skíði,“ segir leikarinn Guð-
mundur Ólafsson. „En ef það er
snjór í Bláfjölllum þá er það besti
sunnudagsbíltúrinn.“
Rúnturinn
■ TÓNLEIKAR